bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25924 |
Page 1 of 3 |
Author: | Kristjan [ Wed 28. Nov 2007 12:01 ] |
Post subject: | Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk. |
Kærastan mín fór að láta gera við bílinn fyrir skoðun. Honda Civic 98 lsi Spindlar báðu megin að neðan og viftureim. 30.000 krónur takk 18.000 í vinnu. takk fyrir 3,5 tímar. Er þetta eðlilegt? |
Author: | flamatron [ Wed 28. Nov 2007 12:07 ] |
Post subject: | |
5000.kr tíminn. það er fínt verð, ekkert of mikið finnst mér. |
Author: | bjornvil [ Wed 28. Nov 2007 12:09 ] |
Post subject: | |
flamatron wrote: 5000.kr tíminn. það er fínt verð, ekkert of mikið finnst mér.
En er þetta ekki svolítið langur tími í svona verk? 3,5 tímar í að skipta um 2 spindla og viftureim. Kannski ekki svo mikið ef maður er heima að dunda, en á verkstæði? |
Author: | gstuning [ Wed 28. Nov 2007 12:11 ] |
Post subject: | |
Fer eftir hvernig spindlarnir eru festir/losaðir og hversu lengi tekur að losa ef um vesen er að ræða enn 3.5tímar er soldið mikill tími finnst mér. |
Author: | íbbi_ [ Wed 28. Nov 2007 12:11 ] |
Post subject: | |
verð á útseldum tíma er frá 5 uppí 11þús, þannig að það þarf ekkert að vera óeðlilegt við þetta |
Author: | saemi [ Wed 28. Nov 2007 12:54 ] |
Post subject: | |
Prufið að skipta um gróna spindla í gömlum bíl.................! Ég myndi alveg gefa mér klukkutíma í hvorn ef þetta er vel fast og vesen. En.. ég hef reyndar ekki gert við hondu ![]() |
Author: | íbbi_ [ Wed 28. Nov 2007 12:56 ] |
Post subject: | |
spindilkúlur geta verið dauðinn |
Author: | Benzari [ Wed 28. Nov 2007 12:58 ] |
Post subject: | |
Gott verð. Hef séð verri "nauðganir" |
Author: | srr [ Wed 28. Nov 2007 12:58 ] |
Post subject: | Re: Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk. |
Kristjan wrote: Kærastan mín fór að láta gera við bílinn fyrir skoðun.
Honda Civic 98 lsi Spindlar báðu megin að neðan og viftureim. 30.000 krónur takk 18.000 í vinnu. takk fyrir 3,5 tímar. Er þetta eðlilegt? Hefðir sloppið betur ef þú hefðir fengið einhvern hérna til að framkvæma þetta verk fyrir þig ![]() |
Author: | Bjarki [ Wed 28. Nov 2007 13:00 ] |
Post subject: | |
Þetta bara kostar, ég myndi ekki vilja reka verkstæði jafnvel þó það væri fullbókað alla daga vikunar. Launakostnaður, verkfæri&tæki, húsnæðiskostnaður, tryggingar, umsýsla(móttaka/bókhald/viðhald). Þetta er ekki neinn dans á rósum held ég. Best að reka verkstæði sem er með samning við umboð og fær til sín mestmegnis einfaldar viðgerðir (bremsur/fjöðrun/undirvagn/tímareimar). Verkstæði leika sér með fjölda rukkaðra tíma á móti verðs á útseldum tíma. Held að flest umboðsverkstæði rukki eftir "flat rate" þ.e. hver verkþáttur er rukkaður eftir uppgefinni töflu bílaframleiðanda. Held að algengt nýtingarhlutfall sé 80%. Það þurfa allir að fá eitthvað fyrir sinn snúð. |
Author: | bimmer [ Wed 28. Nov 2007 13:51 ] |
Post subject: | Re: Hár reikningur á verkstæði fyrir lítið verk. |
Kristjan wrote: Kærastan mín fór að láta gera við bílinn fyrir skoðun.
Honda Civic 98 lsi Spindlar báðu megin að neðan og viftureim. 30.000 krónur takk 18.000 í vinnu. takk fyrir 3,5 tímar. Er þetta eðlilegt? Hvað finnst þér sanngjarnt og hvernig færðu þá tölu út? |
Author: | gstuning [ Wed 28. Nov 2007 14:43 ] |
Post subject: | |
Held að hann sé að kvarta bara yfir skráðum tímum, Ég myndi giska á að þetta eru spindilkúlur sem boltast í og úr? þ.e spindilkúlan kemur í festingu sem boltast af og á, það þarf ekki að pressa neitt úr og svona vesen. Ef einhver kvartar yfir reiknings upphæð sá ætti sá hinn sami að reyna finna tilboð í verk áður enn bílinn fer á verkstæðið, held að það sé aragrúi af mönnum á þessu spjalli sem og l2c sem hefðu getað gert þetta ódýrar. Og eru með jafn mikinn afslátt af varahlutum og flest verkstæði |
Author: | Astijons [ Wed 28. Nov 2007 14:50 ] |
Post subject: | |
talaðu við mig þegar þú borgar stimpilgjöld... |
Author: | Kristjan [ Wed 28. Nov 2007 17:32 ] |
Post subject: | |
Ég vissi bara ekkert hvað mér fannst sanngjarnt, fannst þetta hljóma undarlega hátt bara. Þar að auki er ég fyrir norðan, enginn snillingur mér að vitandi með aðstöðu hérna. |
Author: | Elnino [ Wed 28. Nov 2007 17:45 ] |
Post subject: | |
það bara kostar að eiga bíl ![]() |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |