bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hvað er í gangi... https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25716 |
Page 1 of 1 |
Author: | Elnino [ Sat 17. Nov 2007 14:59 ] |
Post subject: | Hvað er í gangi... |
Quote: Ölvuðum farþega í bíl á leið frá Þorlákshöfn til Reykjavíkur í nótt þótti ekki nógu greitt ekið og brá á það ráð að henda ökumanninum út og aka sjálfur í bæinn. För hans varð þó endaslepp því að við komuna til borgarinnar greip lögreglan hann og stakk í steininn, þar sem hann situr enn, nú í morgun.
Ökumaðurinn sem neitað hafði að auka hraðann að kröfu hins ölvaða sat aftur á móti eftir einn og yfirgefinn í Þrengslunum, en mun þó hafa bjargast til byggða. Að öðru leyti segir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að verkefni sín í nótt hafi verið hefðbundin. Sex voru teknir fyrir brot á lögreglusamþykkt, fjórir fyrir akstur undir áhrifum áfengis, tveir fyrir akstur undir áhrifum ávana- og fíkniefna og einn undir áhrifum annarra lyfja. |
Author: | Svenni Tiger [ Sat 17. Nov 2007 16:05 ] |
Post subject: | |
jááá sæællll ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |