bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Stóri bróðir......
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25649
Page 1 of 3

Author:  bimmer [ Wed 14. Nov 2007 08:54 ]
Post subject:  Stóri bróðir......

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1302719

Author:  Daníel [ Wed 14. Nov 2007 08:56 ]
Post subject: 

Ég hugsa að þetta sé nú ekki svo mikið mál fyrir hinn almenna borgara miðað við það aukna öryggi sem þetta gefur. Ég lifi amk. ekki svo spennandi lífi að ég sjái stóra bróður fyrir mér liggja yfir skjánum að fylgjast með ferðum mínum! :lol:

Author:  bimmer [ Wed 14. Nov 2007 08:59 ]
Post subject: 

KLyX wrote:
Ég hugsa að þetta sé nú ekki svo mikið mál fyrir hinn almenna borgara miðað við það aukna öryggi sem þetta gefur. Ég lifi amk. ekki svo spennandi lífi að ég sjái stóra bróður fyrir mér liggja yfir skjánum að fylgjast með ferðum mínum! :lol:

Þess þarf ekki. Tölvukerfið monitorar bara hvenær þú ert að keyra
yfir hámarkshraða og sendir þér sekt í pósti..... :wink:

Author:  Daníel [ Wed 14. Nov 2007 09:05 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
KLyX wrote:
Ég hugsa að þetta sé nú ekki svo mikið mál fyrir hinn almenna borgara miðað við það aukna öryggi sem þetta gefur. Ég lifi amk. ekki svo spennandi lífi að ég sjái stóra bróður fyrir mér liggja yfir skjánum að fylgjast með ferðum mínum! :lol:

Þess þarf ekki. Tölvukerfið monitorar bara hvenær þú ert að keyra
yfir hámarkshraða og sendir þér sekt í pósti..... :wink:

Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.

Author:  bimmer [ Wed 14. Nov 2007 09:28 ]
Post subject: 

KLyX wrote:
Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.

Les það ekki út úr þessari setningu:

"Það mun jafnframt þýða að allir bílar verða undir gervihnattaeftirliti."

Author:  Daníel [ Wed 14. Nov 2007 09:31 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
KLyX wrote:
Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.

Les það ekki út úr þessari setningu:

"Það mun jafnframt þýða að allir bílar verða undir gervihnattaeftirliti."

Já, þetta er frekar kjánalega orðað, en ég fór að lesa greinina í 24 stundum og þar er tekið sérstaklega fram: "Upplýsingarnar um stað og stund liggja eingöngu fyrir þegar bíll lendir í óhappi. Þess á milli er ekkert eftirlit."

Það eru persónuverndarsjónarmið sem koma eflaust til með að tryggja að annars konar eftirlit verður ekki hægt að hafa með bílum, nema þá með dómsúrskurði um hvert einstakt tilfelli, ef það er þá yfir höfuð hægt að virkja þennan búnað á annan hátt.

Author:  Einarsss [ Wed 14. Nov 2007 09:38 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
KLyX wrote:
Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.

Les það ekki út úr þessari setningu:

"Það mun jafnframt þýða að allir bílar verða undir gervihnattaeftirliti."

Bílarnir munu ekki geta sent frá sér staðsetningu nema í gegnum t.d gprs eða sms.

GPS staðsetningartæki senda engin gögn frá sér heldur taka þau merki frá nokkrum hnöttum og reikna út staðsetningu og hraða. Að mínu mati þá finnst mér mjög ólíklegt að það verði stöðugar sendingar frá bílum um staðsetningu og hraða með stuttu millibili, þetta á örruglega bara við ef að bíllinn fær á sig mikið högg og fer þá búnaðurinn í gang sem sendir út hvar síðasta merki náðist og á hvaða hraða.

Annars er nú bara fínt að eiga gamlan bíl og losna við svona dót ;)

Author:  bebecar [ Wed 14. Nov 2007 10:02 ]
Post subject: 

einarsss wrote:

Ég hef prófað þetta kerfi og þetta sendir samtíma upplýsingar um hraða, hvort maður tekur skarpt af stað, hemlar snögglega eða tekur beygju hratt.

Samskonar kerfi eru í notkun hér í DK þar sem ungt fólk á þess kost að setja svona í bílinn hjá sér gegn því að fá lægri iðgjöld. Þar virkar það þannig að ef þú ferð upp fyrir hámarkshraða þá byrjar kerfið að pípa og ef þú lækkar ekki hraðann strax færðu punkt = og þar með hærri tryggingar.

Búnaðurinn er mjög sniðugur t.d. fyrir foreldra ungra ökumanna sem eru á foreldra bílum. En þetta verður að vera valfrjálst og miðast við að draga úr slysum - allt annað er bara 1984.

Author:  xzach [ Wed 14. Nov 2007 11:46 ]
Post subject: 

KLyX wrote:
bimmer wrote:
KLyX wrote:
Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.

Les það ekki út úr þessari setningu:

"Það mun jafnframt þýða að allir bílar verða undir gervihnattaeftirliti."

Já, þetta er frekar kjánalega orðað, en ég fór að lesa greinina í 24 stundum og þar er tekið sérstaklega fram: "Upplýsingarnar um stað og stund liggja eingöngu fyrir þegar bíll lendir í óhappi. Þess á milli er ekkert eftirlit."

Það eru persónuverndarsjónarmið sem koma eflaust til með að tryggja að annars konar eftirlit verður ekki hægt að hafa með bílum, nema þá með dómsúrskurði um hvert einstakt tilfelli, ef það er þá yfir höfuð hægt að virkja þennan búnað á annan hátt.

Ef ég skil þetta rétt þá er þetta bara neyðar búnaður. Ef þetta er eitthvað í samlíkingu við sjálfvirka staðsetningarkerfið hjá skipunum þá ætti lögreglan aldrei að fá aðgang að þessu kerfi. Aðalega útf því að ef lögreglan hefur aðgang að svona búnaði með dómsúrskurði eða bara að sínum eigin vilja þá fer fólk kannski að aftengja þennan búnað bara.

Held það að það sé svoleiðis hjá Landhelgisgæslunni. Hún hefur ekki aðgang að þessum upplýsingum svo að skip sem eru að ólöglegum veiðum séu ekki að rífa sendinn úr sambandi.

Allavegana er ég þeirra skoðunar að búnaður sem á að bjarga mannslífum á aldrei að vera hægt að nota til að fylgjast með ferðum fólks.
En hver veit hve langt Bjarni vill komast.

Author:  Kristján Einar [ Wed 14. Nov 2007 11:49 ]
Post subject: 

það sem mér var sagt með gps dæmið í alla bíla frá manni innan umferðarstofu er þetta:

þeir eru að fara að setja þetta í alla bíla til að geta skattlagt þá eftir því hvaða götur þeir keyra og hversu mikið, skattur sem er núna í raun og veru á bensíninu, en í staðinn setja þeir þetta á einstakling eftir KM fjölda sem þeir keyra, og allar götur verða "tollaðar" sérstakt þannig að það kostar mis mikið að keyra á mismunandi götum..

Author:  bimmer [ Thu 15. Nov 2007 07:19 ]
Post subject: 

Kristján Einar wrote:
það sem mér var sagt með gps dæmið í alla bíla frá manni innan umferðarstofu er þetta:

þeir eru að fara að setja þetta í alla bíla til að geta skattlagt þá eftir því hvaða götur þeir keyra og hversu mikið, skattur sem er núna í raun og veru á bensíninu, en í staðinn setja þeir þetta á einstakling eftir KM fjölda sem þeir keyra, og allar götur verða "tollaðar" sérstakt þannig að það kostar mis mikið að keyra á mismunandi götum..

Ekki skánar þetta!!!!! :shock:

Author:  gunnar [ Thu 15. Nov 2007 08:08 ]
Post subject: 

Maður bjóst nú við þessari vitleysu í BNA eða í UK en hérna,,,, :shock:

Það búa 300.000 manns hérna, maður hefði nú ekki haldið að þetta væri orðið svona mikið vandamál.

Author:  jon mar [ Thu 15. Nov 2007 08:53 ]
Post subject: 

bebecar wrote:
einarsss wrote:
bimmer wrote:
KLyX wrote:
Held reyndar að þetta kerfi komi aðeins til með að fara í gang lendi bíllinn í slysi.

Les það ekki út úr þessari setningu:

"Það mun jafnframt þýða að allir bílar verða undir gervihnattaeftirliti."

Bílarnir munu ekki geta sent frá sér staðsetningu nema í gegnum t.d gprs eða sms.

GPS staðsetningartæki senda engin gögn frá sér heldur taka þau merki frá nokkrum hnöttum og reikna út staðsetningu og hraða. Að mínu mati þá finnst mér mjög ólíklegt að það verði stöðugar sendingar frá bílum um staðsetningu og hraða með stuttu millibili, þetta á örruglega bara við ef að bíllinn fær á sig mikið högg og fer þá búnaðurinn í gang sem sendir út hvar síðasta merki náðist og á hvaða hraða.

Annars er nú bara fínt að eiga gamlan bíl og losna við svona dót ;)

Ég hef prófað þetta kerfi og þetta sendir samtíma upplýsingar um hraða, hvort maður tekur skarpt af stað, hemlar snögglega eða tekur beygju hratt.

Samskonar kerfi eru í notkun hér í DK þar sem ungt fólk á þess kost að setja svona í bílinn hjá sér gegn því að fá lægri iðgjöld. Þar virkar það þannig að ef þú ferð upp fyrir hámarkshraða þá byrjar kerfið að pípa og ef þú lækkar ekki hraðann strax færðu punkt = og þar með hærri tryggingar.

Búnaðurinn er mjög sniðugur t.d. fyrir foreldra ungra ökumanna sem eru á foreldra bílum. En þetta verður að vera valfrjálst og miðast við að draga úr slysum - allt annað er bara 1984.

Þú ert að tala um ökulagsrita, er svoleiðis í öllum bílum í vinnunni frá SAGA.

Held að svoleiðis eigi ekkert skilt við þennann búnað.

Author:  Bjarki [ Thu 15. Nov 2007 09:17 ]
Post subject: 

ég trúi því að á öllum vandamálum séu lausnir!

Author:  bimmer [ Thu 15. Nov 2007 09:24 ]
Post subject: 

jon mar wrote:

Þú ert að tala um ökulagsrita, er svoleiðis í öllum bílum í vinnunni frá SAGA.

Held að svoleiðis eigi ekkert skilt við þennann búnað.

"Samgönguráðuneytið, Neyðarlínan og fyrirtækið ND vinna að því...."

http://www.nd.is

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/