bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Að tilkynna tjón á bíl https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=25078 |
Page 1 of 1 |
Author: | Einarsss [ Fri 19. Oct 2007 11:49 ] |
Post subject: | Að tilkynna tjón á bíl |
Er einhver með á hreinu hvernig ferlið er við að skila inn tjónaskýrslu? Eftir minni bestu vitneskju hefur maður um 7 virka daga til að skila inn skýrslu til tryggingafélagsins frá dagsetningu skýrslunar, ef maður skilar ekki inn þá er skýrslan hjá þeim skilaði tekin gild. Gaurinn sem klessti á e30 hjá mér um daginn skilaði ekki inn skýrslu til vís og þegar ég var ekki búinn að heyra neitt í 3 vikur tjekkaði ég á málinu. TM sendir þeim svo skýrsluna mína og þau senda hinum aðilanum bréf sem gefur honum 10 daga til að koma henni til skila. Mér finnst þetta eitthvað ekki rétt. Getur maður virkilega trassað að skila inn skýrslu í nokkrar vikur án þess að ekkert sé gert? nema að aðilinn sem er heiðarlegur kemur henni til hins tryggingafélagsins? |
Author: | grettir [ Fri 19. Oct 2007 14:26 ] |
Post subject: | |
Ég rakst aftan á jeppa í fyrravetur og leit það sem mitt tjón og var ekkert að stressa mig á að skila skýrslunni. Við vorum báðir hjá TM. Viku seinna sendi TM mér ítrekun um að koma með skýrsluna sem ég gerði og þá var búið að borga jeppakallinum 50.000 fyrir rispuna á króknum. Væntanlega þarf Vís að borga þér og það eru þeir sem eru að draga lappirnar og ekki í fyrsta sinn ![]() Engu að síður hefðu TM menn átt að reka á eftir þeim því til að tryggja að þú fengir borgað. Kannski hefðirðu bara átt að mæta með bílinn í tjónaskoðun hjá Vís til að reka á eftir þessu ![]() |
Author: | Bjössi [ Fri 19. Oct 2007 14:55 ] |
Post subject: | |
til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila |
Author: | Geirinn [ Fri 19. Oct 2007 14:57 ] |
Post subject: | |
Bjössi wrote: til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila
Sumir kalla þetta "tilganslaust útkall á Lögregluna" en fyrir alla muni, Lögreglan er þarna til að verja hagsmuni fólks, nýtið það. |
Author: | Danni [ Fri 19. Oct 2007 15:13 ] |
Post subject: | |
Geirinn wrote: Bjössi wrote: til þess að koma í veg fyrir svona trassaskap á að hringja í lögguna sem tekur skýrslu og skilar inn fyrir báða aðila Sumir kalla þetta "tilganslaust útkall á Lögregluna" en fyrir alla muni, Lögreglan er þarna til að verja hagsmuni fólks, nýtið það. Ég var einusinni farþegi í bíl sem keyrði aftaná annan á háannatíma á Kringlumýrabraut. Hringdum á lögregluna og biðum í 30 mín áður en einhver kom. Þá gafst hinn aðilinn upp á biðinni og fór. Hann gerði ekki tjónaskýrslu vegna þess að við höfðum ekki svoleiðis í okkar bíl og hann ekki í sínum. Við ákváðum samt að bíða eftir lögreglunni þar sem við töldum bílinn ekki ökuhæfan í því ástandi sem hann var. Biðum í klukkutíma í viðbót og þá hringdi ég og tilkynnti lögreglunni að við gáfumst upp á biðinni og fórum. Það merkilega var að það keyrði lögreglubíll framhjá okkur í rólegheitunum og gerði EKKERT í því að það voru tveir bílar komnir upp á umferðareyju, annar í mauk að framan og hinn að aftan svo það var ekki hægt að loka skottinu. Svo í öðrum árekstri þar sem keyrt var í hliðina á bílnum mínum á áramótunum eftir að strákur vanvirti biðskyldu (ég gruna að hann var drukkinn miðað við hraðann á honum). Þar kölluðum við til lögreglu. Það kom stuttu seinna einn bíll og lögreglumaðurinn spurði hvort það hefðu orðið meiðsl á fólki. Ég svaraði að það voru engin alvarleg meiðsl. Þá réttu þeir mér tjónaskýrslu og fóru. Sögðust hafa eitthvað mikið betra að gera niðri í bæ. Eftirá var ég mjög reiður útí lögregluna að hafa ekki einusinni látið mig né hinn ökumanninn blása því ég er nokkuð viss um að hann var undir áhrifum, bara hafði ekki vit á því á "slysstað" þar sem ég var í miklu áfalli enda harður árekstur sem ég var alls ekki að búast við. Þetta varð til þess að ég hef núna ekkert álit á lögreglunni til að hjálpa mér þegar ég lendi í árekstri og hef einusinni lent í árekstri síðan og datt ekki til hugar að hringja á lögregluna þá. |
Author: | crashed [ Sun 21. Oct 2007 00:54 ] |
Post subject: | |
hef lent í 3 árekstrum bæði á fólksbíl og vörubílnum sem ég vinn á og alltaf kallað til lögreglu en lögreglan hefur alltaf neitað að sjá um þetta hafa annað að gera að þeira sögn sama hvort þetta sé á annatíma eða ekki og meiraðseigja hefur neiðarlínan einu sinni neitað að senda lögregluna á staðinn þar sem aldrei var slis á fólki. þetta er farið að vera helvíti fúl vinnu brögð hjá þeim. hækka segtir og minka þjónustu (farnir að vera aðeins of upteknir á því að takka fólk sem er 10 km yfir hámarkshraða fynst mér ) |
Author: | Kull [ Sun 21. Oct 2007 03:14 ] |
Post subject: | |
crashed wrote: hef lent í 3 árekstrum bæði á fólksbíl og vörubílnum sem ég vinn á og alltaf kallað til lögreglu en lögreglan hefur alltaf neitað að sjá um þetta hafa annað að gera að þeira sögn sama hvort þetta sé á annatíma eða ekki og meiraðseigja hefur neiðarlínan einu sinni neitað að senda lögregluna á staðinn þar sem aldrei var slis á fólki. þetta er farið að vera helvíti fúl vinnu brögð hjá þeim. hækka segtir og minka þjónustu (farnir að vera aðeins of upteknir á því að takka fólk sem er 10 km yfir hámarkshraða fynst mér )
Que? |
Author: | arnorp [ Wed 24. Oct 2007 18:59 ] |
Post subject: | |
ég skilaði inn 4 mánaðar gömlu tjóni einu sinni og fékk það alveg bætt. Reyndar bara kaskó tjón eftir eigið óhapp ekkert skemmdist nema mitt ökutæki. kannski annað með árekstur? |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |