bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24893 |
Page 1 of 2 |
Author: | ValliFudd [ Thu 11. Oct 2007 15:12 ] |
Post subject: | Nýr meirihluti myndaður í borgarstjórn |
Jahh, nú veit ég ekki mikið um stjórnmál, en er þetta gott eða slæmt? eða hafa menn kannski mjög misjafnar skoðanir á því? mbl.is frétt um málið Visir.is frétt um málið |
Author: | Stanky [ Thu 11. Oct 2007 15:15 ] |
Post subject: | |
Fuglahræðan er EKKI efni í borgarstjórn. Það er komið óorð á gamla R-listann (S) í borgarstjórn. ...en samt sem áður á Villi ekkert að sleppa undan þessu. |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 11. Oct 2007 15:50 ] |
Post subject: | |
Dagur B gæti ekki stjórnað bíl ![]() |
Author: | raxions [ Thu 11. Oct 2007 16:12 ] |
Post subject: | |
Rétt er það. Maðurinn er fífl. ![]() |
Author: | IngóJP [ Thu 11. Oct 2007 17:25 ] |
Post subject: | |
haha sáuði rónana ![]() |
Author: | freysi [ Thu 11. Oct 2007 17:57 ] |
Post subject: | |
þetta er hræðilegt |
Author: | Schulii [ Thu 11. Oct 2007 18:44 ] |
Post subject: | |
Ég er ánægður með það að þetta sé allt komið í dagsljósið. Ég er sjálfstæðismaður en sama hver á í hlut á svona lagað ekki að líðast. Það sem mér þótti verst í þessu er þriggja manna fundur þar sem Bjarni Ármannsson, Haukur Leósson og að ég held Björn Ingi ákveða að selja Bjarna x mikinn hlut og þeir þrír ákveða á hvaða verði hann eigi að fá þennan hlut! Þetta er algjör skandall og fyrr skal ég dauður liggja en að fjármálarisarnir nái með þekkingu sinni á lögum og viðskiptum að hrifa af okkur þessa auðlind og þeim tekjumöguleikum sem hún hefur uppá að bjóða. Mér finnst Björn Ingi sleppa alltof vel frá þessu. Hann var auðvitað í þeirri lykilstöðu að geta sagt að hann myndi ekki slíta samstarfinu nema að hann fengi góða stöðu í nýju samsuðunni. Svo standa allir oddvitarnir (eða hálfvitarnir) og segja að hann hafi nú beðist afsökunnar og sé að reyna að bæta sig og bla bla bla... svo segir Björn Ingi að hann vilji bara hafa hreina samvisku og líði best þannig ![]() Mér finnst þetta leiðinlegt því að mér fannst margt gott hafa gerst á þessum stutta tíma sem þessi stjórn starfaði. En að klúðra því með svona skítamáli er ófyrirgefanlegt og þau fengu sína rassskellingu en ég er því miður ekkert viss um að það sé komið betra fólk með lyklana.. |
Author: | Stanky [ Thu 11. Oct 2007 20:09 ] |
Post subject: | |
Schulii wrote: Ég er ánægður með það að þetta sé allt komið í dagsljósið. Ég er sjálfstæðismaður en sama hver á í hlut á svona lagað ekki að líðast. Það sem mér þótti verst í þessu er þriggja manna fundur þar sem Bjarni Ármannsson, Haukur Leósson og að ég held Björn Ingi ákveða að selja Bjarna x mikinn hlut og þeir þrír ákveða á hvaða verði hann eigi að fá þennan hlut! Þetta er algjör skandall og fyrr skal ég dauður liggja en að fjármálarisarnir nái með þekkingu sinni á lögum og viðskiptum að hrifa af okkur þessa auðlind og þeim tekjumöguleikum sem hún hefur uppá að bjóða.
Mér finnst Björn Ingi sleppa alltof vel frá þessu. Hann var auðvitað í þeirri lykilstöðu að geta sagt að hann myndi ekki slíta samstarfinu nema að hann fengi góða stöðu í nýju samsuðunni. Svo standa allir oddvitarnir (eða hálfvitarnir) og segja að hann hafi nú beðist afsökunnar og sé að reyna að bæta sig og bla bla bla... svo segir Björn Ingi að hann vilji bara hafa hreina samvisku og líði best þannig ![]() Mér finnst þetta leiðinlegt því að mér fannst margt gott hafa gerst á þessum stutta tíma sem þessi stjórn starfaði. En að klúðra því með svona skítamáli er ófyrirgefanlegt og þau fengu sína rassskellingu en ég er því miður ekkert viss um að það sé komið betra fólk með lyklana.. Djöfull er bændaflokkurinn sniðugur...... sænga bara með þeim sem þeir græða mest á. Hafa gert það í gegnum tíðina - maður var nú að vonast til þess að þessi flokkur færi nú að drepast - kannski upplifir fólk núna hvurslags maður þessi Bingi er og kýs ekki bændaflokkinn aftur. |
Author: | Geirinn [ Thu 11. Oct 2007 20:16 ] |
Post subject: | |
Ég verð nú bara að segja að ég er hrikalega ósáttur og reiður. Djöfulsins ómenni er Björn Ingi og hans skítaflokkur. Gangi þeim vel að mynda meirihluta með einhverjum plástrum. |
Author: | slapi [ Thu 11. Oct 2007 21:40 ] |
Post subject: | |
Þetta samstarf springur |
Author: | Schulii [ Thu 11. Oct 2007 21:59 ] |
Post subject: | |
Forsendurnar fyrir þessu samstarfi eru svo óeðlilegar að þetta getur ekki gengið. Ég held að þau Svandís, Dagur og Margrét hafi ekki getað hugsað sér að mynda meirihlutastjórn við verri aðstæður. Þ.e.a.s að VERÐA að taka Björn Inga Hrappsson með sér og þ.a.l. allan skítinn sem hann hefur í eftirdragi. En þá er bara málið að "..við brosum bara öll rosa feitt í myndavélarnar og segjum eitthvað eins og.. t.d. að stefna þessa nýja meirihluta sé að standa vörð um hagsmuni borgarbúa í orkumálum, bara eitthvað nógu klisjað og í takt við umræðu síðustu daga. Við erum komin í stjórn og við finnum svo útúr restinni seinna" |
Author: | raxions [ Fri 12. Oct 2007 00:08 ] |
Post subject: | |
Sammála öllu sem hér hefur komið fram. Mér finnst líka súrt að hann Dagur skuli verða borgarstjóri......mér verður næstum því óglatt að þurfa að hlusta á manninn næstu 3 árin að þruma yfir borgarbúa þessari vitleysu sem hann alltaf gerir.. ![]() |
Author: | Kristjan [ Fri 12. Oct 2007 02:31 ] |
Post subject: | |
Ég horfði á þetta lið áðan í kastljósinu og þau minntu mig á nemendaráðið í menntó í fyrstu viku eftir að vera kjörin. Alveg úti á túni. |
Author: | adler [ Fri 12. Oct 2007 13:09 ] |
Post subject: | |
raxions wrote: Sammála öllu sem hér hefur komið fram. Mér finnst líka súrt að hann Dagur skuli verða borgarstjóri......mér verður næstum því óglatt að þurfa að hlusta á manninn næstu 3 árin að þruma yfir borgarbúa þessari vitleysu sem hann alltaf gerir..
![]() Ég er svo sammála því sem kemur fram í öllum þessum þræði þetta er hræðilegt mál fyrir okkur sem búum í Reykjavík. Dagur er umræðupólitíkus sem er alinn upp af Ingibjörgu Sólrúnu sem flúði úr borgar stjórastólnum þegar að allt var komið í klessu á sínum tíma. Það verður sama sem mun gerast núna því að framsóknar mafían mun halda áfram að koma sér og sínum áfram bak við tjöldin í öll lykilstörf sem skipta máli og það áður en að Dagur nær að að segja HA! Framsóknar flokkurinn hefur ekkert með pólitík að gera Þetta er Mafía að verstu gerð. |
Author: | Steinieini [ Fri 12. Oct 2007 17:04 ] |
Post subject: | |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |