Ég er ánægður með það að þetta sé allt komið í dagsljósið. Ég er sjálfstæðismaður en sama hver á í hlut á svona lagað ekki að líðast. Það sem mér þótti verst í þessu er þriggja manna fundur þar sem Bjarni Ármannsson, Haukur Leósson og að ég held Björn Ingi ákveða að selja Bjarna x mikinn hlut og þeir þrír ákveða á hvaða verði hann eigi að fá þennan hlut! Þetta er algjör skandall og fyrr skal ég dauður liggja en að fjármálarisarnir nái með þekkingu sinni á lögum og viðskiptum að hrifa af okkur þessa auðlind og þeim tekjumöguleikum sem hún hefur uppá að bjóða.
Mér finnst Björn Ingi sleppa alltof vel frá þessu. Hann var auðvitað í þeirri lykilstöðu að geta sagt að hann myndi ekki slíta samstarfinu nema að hann fengi góða stöðu í nýju samsuðunni. Svo standa allir oddvitarnir (eða hálfvitarnir) og segja að hann hafi nú beðist afsökunnar og sé að reyna að bæta sig og bla bla bla... svo segir Björn Ingi að hann vilji bara hafa hreina samvisku og líði best þannig
Mér finnst þetta leiðinlegt því að mér fannst margt gott hafa gerst á þessum stutta tíma sem þessi stjórn starfaði. En að klúðra því með svona skítamáli er ófyrirgefanlegt og þau fengu sína rassskellingu en ég er því miður ekkert viss um að það sé komið betra fólk með lyklana..