bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hroki meðlima? https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24745 |
Page 1 of 2 |
Author: | Kristjan PGT [ Fri 05. Oct 2007 08:58 ] |
Post subject: | Hroki meðlima? |
Ég get ekki orða bundist lengur. Megnið af þeim sem hér skrifa eru málefnalegir, fróðlegir eða að minnsta kosti fyndnir. En svo eru örfáir sem mér finnst vera farnir að setja sig á svo háan hest að þeim hlýtur að vera farið að svima. Þetta eru aðilar sem hafa stundað kraftinn í dágóðan tíma og eiga fallega og öfluga bíla og því virðist sem allt rugl, bull, þvæla og stælar sé bara látið sem vind um eyru þjóta. Svo kemur einhver ungur töffari sem er ekki með eins fallegan eða öflugan bíl og segir svipað og er skotinn í kaf og allt brjálað, saman ber Viktor á sínum tíma. Taki til sín sem eiga! |
Author: | fart [ Fri 05. Oct 2007 09:13 ] |
Post subject: | |
Ég er að mörgu leiti sammála þér. Það er dálítill hroki í mörgum, kaldhæðni í öðrum (sem skillst ekki yfir netið) og svo hreinar uppnefningar hjá öðrum sbr.. Kristjan PGT wrote: Rólegur chocko. Þó menn séu ekki hrifnir af vissum body-um bmw þá er óþarfi að segja þeim að "hypja sig" eitthvað annað.
nema viðkomandi sé þekktur sem "chocko" sem gæti vel verið, ég átti marga vini sem báru furðulegustu kenninöfn. Reyndar finnst mér líka vera töluvert af öfund í gangi gagnvart þeim sem eru að gera mikið fyrir bílana sína, og þá er ég ekki endilega að tala um eitthvað sem kostar mikin pening. Held að það sem vantar á kraftinn er að menn andi inn um nefið og út um munninn, noti "skoða" valmöguleikan og lesi yfir það sem þeir skrifa áður en þeir gera "senda". En nú er ég væntanlega búinn að kalla á vælubílinn, og er því farinn yfir á blýfót. ![]() |
Author: | Svezel [ Fri 05. Oct 2007 09:17 ] |
Post subject: | |
það er náttúrlega bara ógeðslega kúl að vera harður á internetinu, þannig nær maður í kellingar og svona ![]() |
Author: | Kristjan PGT [ Fri 05. Oct 2007 09:17 ] |
Post subject: | |
Já þetta chocko dæmi er kannski misskilið og á ekki rétt á sér. Þetta er bara orð sem er notað innan míns vinahóps í gríni og ég því orðin vanur því en að sjálfsögðu gæti það misskilist sem háð. |
Author: | Aron Fridrik [ Fri 05. Oct 2007 09:18 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Daníel [ Fri 05. Oct 2007 09:31 ] |
Post subject: | |
Kristjan PGT wrote: Já þetta chocko dæmi er kannski misskilið og á ekki rétt á sér. Þetta er bara orð sem er notað innan míns vinahóps í gríni og ég því orðin vanur því en að sjálfsögðu gæti það misskilist sem háð.
Er það samt ekki mergurinn málsins með margt sem fer miður hérna? Að eitthvað sem einn álítur húmor misskilst hjá öðrum sem persónuleg árás eða eitthvað og þar með er fjandinn laus? Þó ég sé nú ekki mikið að hafa mig frammi hérna á kraftinum að þá les ég nú flest það sem hingað kemur, og undanfarið hefur mér fundist andinn hérna frekar slæmur miðað við fyrst. Held að menn þurfi að fara að slaka örlítið á "djókinu" og setja betur fram það sem þeir meina svo það sé ekki hætta á misskilningi. |
Author: | Hemmi [ Fri 05. Oct 2007 10:14 ] |
Post subject: | Re: Hroki meðlima? |
sammála, svo sýnir það líka þroskastig einstaklinga þegar þeir kvarta yfir að meiga ekki brjóta lögin eða kvarta yfir hraðamyndavélum. Mér finnst krafturinn hafa versnað mikið, ég varla nenni að kíkja hingað lengur. |
Author: | HPH [ Fri 05. Oct 2007 10:18 ] |
Post subject: | |
Tuðið og nöldrið fer að minka bráðum. ÞAð hefur yfir leitt alltaf dáið eftir fyllerí hjá kraftinum og svo smátt og smátt verður aftur tuð og nöldur þangað til að næsta fyllerí kemur. svona heldur þetta áfarm aftur og aftur. ![]() |
Author: | ValliFudd [ Fri 05. Oct 2007 10:33 ] |
Post subject: | Re: Hroki meðlima? |
Hemmi wrote: sammála,
svo sýnir það líka þroskastig einstaklinga þegar þeir kvarta yfir að meiga ekki brjóta lögin eða kvarta yfir hraðamyndavélum. Mér finnst krafturinn hafa versnað mikið, ég varla nenni að kíkja hingað lengur. Þetta með hraðamyndavélina var ábending vegna þess að undanfarið hafa markmið lögreglunar breyst úr því að minnka hraða í að auka tekjur. En ég skil ekki alveg þetta væl í ykkur ![]() ![]() Allavega hef ég ekki tekið eftir neinu nema móral á leið upp síðustu vikuna ![]() dare i say it? *víííúúúvíííúúú* ![]() |
Author: | Geirinn [ Fri 05. Oct 2007 11:02 ] |
Post subject: | |
Þetta bitnar eflaust hvað mest á þeim sem hafa BMW sem sitt topp áhugamál. Það er töluverður munur að getað leitað í gagnabrunnana sem margir hér eru, á okkar móðurmáli. Við viljum ekki skemma það með einhverjum móral. Það eru alltaf rotin epli inn á milli, maður hefur sjálfur staðið í því að vera með súran húmor sem slær stundum í gegn en stundum er maður skotinn í kaf, a.k.a. threadkillers ![]() Það er öllum frjálst að skrá sig, þetta er frítt og flestir eru með internetið svo það er ekkert skrítið að mórallinn fari upp og niður ![]() Hins vegar vil ég benda mönnum á ákveðið atriði sem hefur hjálpað mörgum... og það er að segja ekkert nema að hafa vissan rökstuðning að baki, nú eða taka skýrt fram þegar um ágiskanir er að ræða, fátt sem getur ruglað menn meir en að segja að ákveðið vandamál sé "pottþétt" eitthvað sem það er ekki. Fyrir þá sem eru að byrja að stunda Kraftinn vil ég benda á að það er ekki vitlaust að lesa umræðurnar sem hafa farið hér í gegn áður en eitthvað er sent inn. Það er margt hér sem er ekki vel liðið, eða ekki jafn vel liðið og á öðrum spjallborðum. Við erum margir hverjir nördar og við elskum staðreyndir. Það er margoft búið að ræða hvaða felgur eru með hvaða offset, hvaða dekk passa á hvaða felgur, hvernig menn eru að þrífa bílana sína, hvaða perur passa í hvaða ljós, hvaða olía passar á hvaða vélar/kassa/drif etc., hvaða frostlög menn eiga að nota....... Basically, þegar menn vanda sig þá helst klassi spjallsins. Sumir vilja stimpla sig rækilega inn strax eftir skráningu... Það sem mér finnst efst á baugi hvað leiðindi varðar eru þessi ENDALAUSU skot á a.m.k. tvo meðlimi spjallsins. Sumum fannst það fyndið í byrjun en mér t.d. fannst það bara aldrei fyndið og alveg óviðeigandi. Mismunandi skoðanir manna. |
Author: | bjahja [ Fri 05. Oct 2007 11:38 ] |
Post subject: | Re: Hroki meðlima? |
ValliFudd wrote: Hemmi wrote: sammála, svo sýnir það líka þroskastig einstaklinga þegar þeir kvarta yfir að meiga ekki brjóta lögin eða kvarta yfir hraðamyndavélum. Mér finnst krafturinn hafa versnað mikið, ég varla nenni að kíkja hingað lengur. Þetta með hraðamyndavélina var ábending vegna þess að undanfarið hafa markmið lögreglunar breyst úr því að minnka hraða í að auka tekjur. En ég skil ekki alveg þetta væl í ykkur ![]() ![]() Allavega hef ég ekki tekið eftir neinu nema móral á leið upp síðustu vikuna ![]() dare i say it? *víííúúúvíííúúú* ![]() Sammála x milljón |
Author: | Bjarkih [ Fri 05. Oct 2007 11:56 ] |
Post subject: | |
Hafa bara í huga það sem maður lærði þegar fyrstu skrefin í umræðum á netinu (póstlistar) voru stigin fyrir vel yfir áratug síðan. Aldrei skrifa svar í reiði, lesa yfir póstinn áður en ýtt er á senda og ef um kaldhæðni eða annað slíkt sem skilst illa á hreinu texta formi er að ræða nota broskalla, til þess eru þeir. |
Author: | Kristjan PGT [ Fri 05. Oct 2007 12:33 ] |
Post subject: | |
KLyX wrote: Kristjan PGT wrote: Já þetta chocko dæmi er kannski misskilið og á ekki rétt á sér. Þetta er bara orð sem er notað innan míns vinahóps í gríni og ég því orðin vanur því en að sjálfsögðu gæti það misskilist sem háð. Er það samt ekki mergurinn málsins með margt sem fer miður hérna? Að eitthvað sem einn álítur húmor misskilst hjá öðrum sem persónuleg árás eða eitthvað og þar með er fjandinn laus? Þó ég sé nú ekki mikið að hafa mig frammi hérna á kraftinum að þá les ég nú flest það sem hingað kemur, og undanfarið hefur mér fundist andinn hérna frekar slæmur miðað við fyrst. Held að menn þurfi að fara að slaka örlítið á "djókinu" og setja betur fram það sem þeir meina svo það sé ekki hætta á misskilningi. Já..þetta er klárlega málið! |
Author: | jens [ Fri 05. Oct 2007 13:29 ] |
Post subject: | |
Finst ábendingar um hraðayndavélar og aðrir gagnlegir hlutir eiga allan rétt á sér hér inni og vona að menn haldi áfram að setja inn svoleiðis ábendingar. |
Author: | Einarsss [ Fri 05. Oct 2007 13:32 ] |
Post subject: | |
EF einhver nöttarinn þarna út er með staðsetningu þessara myndavéla á nákvæmuhnit formi þá get ég safnað þeim saman og sett í file sem verður hægt að uploada í Garmin gps tæki og vara við áður en þú kemur að þeim. Einnig ef vitað er hraða takmarkið á vélunum þá væri hægt að græja þetta þannig að þú fengir viðvörun áður ef þú ert að keyra hraðar en þessi takmörk. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |