bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

tjón
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24402
Page 1 of 1

Author:  Jónas [ Tue 18. Sep 2007 09:32 ]
Post subject:  tjón

Hefur einhver lent í svipuðu?

Núna snemma í morgun var keyrt á múttu, hún fór yfir á grænu ljósi ( Það var ekki gulgrænt, né gulrautt, það var GRÆNT) og einhver kerlingarandsk. fer yfir á rauðu ljósi og neglir á múttu..

Núna eru engin vitni að þessu, og hin segist hafa farið yfir á gulrauðu (Sem hún gæti mögulega séð á ljósunum sem eru fyrir framan sú ljós sem hún fór yfir á rauðu (það eru s.s. ljós og svo 50metrar í næstu ljós).

Mútta er náttúrulega í 110% rétti, en hvernig er svona dæmt, orð á móti orði??

kv

Author:  einarornth [ Tue 18. Sep 2007 09:36 ]
Post subject: 

Ég lenti einu sinni í því að gamall karl fór yfir á rauðu og smellti á mig. Sá sem keyrði á eftir gamla karlinum vitnaði um það, en sá gamli fékk vin sinn til að ljúga því að hann hefði verið þar og að ég hefði farið yfir á rauðu.

Þetta var bara dæmt 50/50, ekkert hægt að gera í því. Ótrúlegt hvað fólk getur verið ómerkilegt.

Author:  Jónas [ Tue 18. Sep 2007 09:37 ]
Post subject: 

einarornth wrote:
Ég lenti einu sinni í því að gamall karl fór yfir á rauðu og smellti á mig. Sá sem keyrði á eftir gamla karlinum vitnaði um það, en sá gamli fékk vin sinn til að ljúga því að hann hefði verið þar og að ég hefði farið yfir á rauðu.

Þetta var bara dæmt 50/50, ekkert hægt að gera í því. Ótrúlegt hvað fólk getur verið ómerkilegt.

Gastu ekki kært það?

Author:  Kull [ Tue 18. Sep 2007 09:39 ]
Post subject: 

Ef hin segist hafa farið yfir á gulrauðu þá er hún væntanlega í órétti. Mig minnir að það megi aðeins fara yfir á gulu ef það myndi skapa hættu fyrir bíla aftan við þig að negla niður. En þar sem það var enginn fyrir aftan ætti hún að stoppa.

Samt aldrei að vita, tryggingarfélögin eru nú þekkt fyrir sína 50/50% dóma.

Author:  Jónas [ Tue 18. Sep 2007 09:50 ]
Post subject: 

Kull wrote:
Ef hin segist hafa farið yfir á gulrauðu þá er hún væntanlega í órétti. Mig minnir að það megi aðeins fara yfir á gulu ef það myndi skapa hættu fyrir bíla aftan við þig að negla niður. En þar sem það var enginn fyrir aftan ætti hún að stoppa.

Samt aldrei að vita, tryggingarfélögin eru nú þekkt fyrir sína 50/50% dóma.

Einmitt, er gulrauða ekki "leyfilegt " til að hreinsa frá gatnamótum

Urgh, svona fer í pirrurnar á manni, að helví*is m**lan skuli vera að ljúga :evil: :x

Author:  Geirinn [ Tue 18. Sep 2007 10:02 ]
Post subject: 

Jónas wrote:

Fight fire with fire............

Author:  einarornth [ Tue 18. Sep 2007 13:38 ]
Post subject: 

Jónas wrote:
einarornth wrote:
Ég lenti einu sinni í því að gamall karl fór yfir á rauðu og smellti á mig. Sá sem keyrði á eftir gamla karlinum vitnaði um það, en sá gamli fékk vin sinn til að ljúga því að hann hefði verið þar og að ég hefði farið yfir á rauðu.

Þetta var bara dæmt 50/50, ekkert hægt að gera í því. Ótrúlegt hvað fólk getur verið ómerkilegt.

Gastu ekki kært það?

Jújú, þetta fór eins langt og hægt var miðað við tjónið, ég var ekki tilbúinn til að leggja út í einhvern lögfræðikostnað fyrir fimm stafa tölu. Svona er þetta stundum, maður reynir bara að láta svona bjána ekki hafa áhrif á sig.

Author:  jeppakall [ Tue 18. Sep 2007 19:46 ]
Post subject: 

Þetta fer soldið eftir því í hvaða tryggingafélagi þú ert í, ef báðir aðilar eru hjá sama fyrirtæki þá er þetta bókað 50/50 til að þeir spari pening, en ef ekki þá er bara að pressa á tryggingafélagið ykkar og hitt að dæma í málinu....bara vera harður.

Því eins og hefur komið fram er bannað að keyra yfir á gulu nema bíll sé rétt fyrir aftan!

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/