bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
EuroTrip III - IAA o.fl. https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24364 |
Page 1 of 4 |
Author: | Bjarki [ Sun 16. Sep 2007 20:08 ] |
Post subject: | EuroTrip III - IAA o.fl. |
Kem hér með til gaman nokkrar myndir úr Evrópuferð sem ég er í ásamt bróðir mínum og vini, (_Halli_) Flugum á laugardegi til Bremen með Ryanair frá Stansted. Tókum bílaleigubíl þar, fengum 118d! Bara skemmtilegur, togar þvílíkt og hægt að halda góðum hraða - eyðir rosalega litlu 6,5l/100km Á sunnudeginum fórum við til Frankfurt og skoðuðum e39 530d, keyptum hann svo daginn eftir. Virkilega skemmtilegur bíll 06/00 ek 155tkm, sjálfskiptur, hrikalega vel búinn...leður, sportsæti, minni, rafmagn í stýri, glertopplúga, rafmagn í sætum, regensensor, cruisecontrol, cd, soundsystem, xenon, tempo, multifunktion stýri, klimaautomatik, aftakanlegur dráttarkrókur, niðurfellanleg aftursæti, boardcomputer, PDC, blabla ég er alveg að fíla þetta. Endalaust tog, svartur reykur þegar maður stendur hann og þægilegt túrbínuhljóð. Keyptum svo 1200kg 2 öxla kerru með stóru segli, 1,9m hæð inni í kerrunnu! Svo erum við bara búnir að vera á ferðinni að fylla kerruna. Keyptum 2 mótora, felgur og fleira dót. Erum búnir að vera í Köln, Frankfurt, Bremen. Erum núna í München, tókum létt á því í gær. Mjög mikið af huggulegum stúlkum í Þýskalandi við vorum nú samt bara alveg slappir. Búnir að keyra 3þkm og ekki hálfnaðir, slatti mikill olíukostnaður í svona ferðum. En við borðum ódýrt og gistum í tjaldi....Sem er betra en margir halda, fullt af flottum tjaldstæðum í Evrópu. Svo bara mæta snemma grilla og hafa það gott. Svo spilar það líka inní að þegar maður er með svona stóra og háa kerru þá leggur maður ekki hvar sem er og það er mikið af drasli í kerrunni. Verðum eitthvað áfram hérna í Bayern að skoða og njóta lífsins. Svo er það bílasýningin í Frankfurt ásamt fleiri ferðamannastöðum, svo tökum við ferjuna heim. EuroTrip III fór í 2 vikur í mars og keyrði einhverja 8þkm, mjög gaman. Svo fór ég stutta ferð í maí en náði samt að keyra 3þkm. ![]() Hvar er bjarki....bid a milli fluga a stansted ![]() asinn ![]() köln ![]() Billinn og kerran ![]() allt fullt af snurum, 7 12v tengi og svo i venjlegt husrafmagn og fjoltengi ![]() hehe alltaf gaman ad sja svona ![]() einn motor kominn ![]() verid ad grilla ![]() alltaf ad gera og graeja ![]() alltaf gott ad borda... ![]() og olid ![]() RedBull virkar ekki alltaf ![]() partasali sem atti thennan ![]() stadan tekin ![]() frekar threyttur tharna ![]() bjorinn i münchen ![]() vid med kampakatum thjodverjum i münchen ![]() reyndum og reyndum ad kynnast innfaeddum stulkum ![]() thessa var adeins of gomul ![]() ....ekkert gekk ![]() thessi var til solu a einni bensinstodinni ADAC => FIB ![]() tveir eins (braedur) ![]() kastalinn ![]() aftur ![]() forum svo ut a bat ![]() i fotabad ![]() bara sma ad tekka a thessari, hun var med gaur meira seinna kv fra München Bjarki, Einar og Halli |
Author: | Alpina [ Sun 16. Sep 2007 20:13 ] |
Post subject: | |
Hei,,,, Kunnuglegar slóðir ... Frábært að vera þarna.. njóttu vel |
Author: | Viggóhelgi [ Sun 16. Sep 2007 20:16 ] |
Post subject: | |
ÞEssi ferð er eitthvað bara í lagi. sé eftir því að hafa bailað á ykkur. hjartað mitt er marg brotið! ![]() |
Author: | bimmer [ Sun 16. Sep 2007 20:18 ] |
Post subject: | |
Flottir á því ![]() |
Author: | Einarsss [ Sun 16. Sep 2007 20:23 ] |
Post subject: | |
Lítur út fyrir að vera eðal roadtrip! Góða skemmtun og passið ykkur á hommunum í hamburg ![]() |
Author: | gunnar [ Sun 16. Sep 2007 20:24 ] |
Post subject: | |
Shiit er þessi kerra ekki að taka alveg svaakalegann vind á autobahn? Eða fariði ekki á svoleis með þetta aftaní? Hvernig er líka með að skilja kerruna eftir á næturnar? Ekkert smeykir að það sé verið að messa í dótinu ykkar? ![]() |
Author: | saemi [ Sun 16. Sep 2007 20:29 ] |
Post subject: | |
Jeeeeyyyy, bara gaman ![]() Svona á að gera þetta. Er með ykkur í anda, þetta er vel skemmtilegt. Tók svona túr með bræðrum mínum um árið, það var mjög gaman. |
Author: | ömmudriver [ Sun 16. Sep 2007 22:17 ] |
Post subject: | |
Össsss..........djöfull öfunda ég ykkur, fallegur bíll ![]() |
Author: | Djofullinn [ Sun 16. Sep 2007 22:26 ] |
Post subject: | |
Snilld ![]() |
Author: | sh4rk [ Sun 16. Sep 2007 22:34 ] |
Post subject: | |
Bjarki þú ert töffari ![]() |
Author: | ///M [ Sun 16. Sep 2007 22:37 ] |
Post subject: | |
Ég og svezel vorum einmitt að tala um að fyrir ári vorum við að blasta með blæjuna niðri á 253 á gps... bara hálvitara að vera ekki þarna úti núna.... |
Author: | Gunni [ Sun 16. Sep 2007 22:43 ] |
Post subject: | |
Uss þetta er alveg að gera sig. Þessi 530d er líka alveg í lagi! Þetta eru snilldarbílar, ég er allavega að fíla minn vel. Skemmtið ykkur vel, og ef þið skerið upp eitthvað tjald munið að taka myndband af því ![]() |
Author: | Knud [ Sun 16. Sep 2007 23:02 ] |
Post subject: | |
Hehe, það er greinilega fjör þarna úti, hefði verið gaman að vera þarna. Ekki allir sem skreppa út kaupa bíl, kerru og 2 mótora, ![]() Vona bara að þetta gangi vel hjá ykkur, góða skemmtun |
Author: | moog [ Mon 17. Sep 2007 00:49 ] |
Post subject: | |
Alltaf gaman að taka DE tour með Bjarka,,, góða skemmtun kappar og skilið ykkur heilum heim ![]() |
Author: | sh4rk [ Mon 17. Sep 2007 02:11 ] |
Post subject: | |
![]() Bjarki ekkert að því þó gólftuskunar séu aðeins gamlar |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |