bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Íbúðarkaup
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24296
Page 1 of 3

Author:  Kristjan [ Thu 13. Sep 2007 22:11 ]
Post subject:  Íbúðarkaup

Jæja nú er maður að fara bjóða í sína fyrstu íbúð.

Við erum að skoða eina sem er búin að vera í nokkra mánuði á markaðnum, hugguleg íbúð en með upprunalegar innréttingar frá miðjum áttuna áratugnum. Við frúin hugsum að við getum keypt sjálf innréttingar og haft hlutina eftir eigin höfði þegar þar að kemur. Einnig þarf að taka baðið í gegn líka.

Einhverjar ábendingar sem þið getið boðið á þessum mikilvæga tíma.

Það ættu nú að vera nokkrir hérna sem hafa verið að standa í því sama miðað við það sem er oft sagt í söluauglýsingunum hérna (til sölu vegna íbúðarkaupa) (Bara grín)

Author:  bímer330ix [ Thu 13. Sep 2007 22:45 ]
Post subject: 

Til hamingju með það..það er alltaf gaman að kaupa íbúð..af reynslu veit ég að mesti kostnaðurinn liggur í að græja bað og eldhús þarftu að moka öllu út?

Author:  Kristjan PGT [ Fri 14. Sep 2007 00:05 ]
Post subject: 

Baðherbergið er dýrasta herbergið í húsinu :)

Málið er bara að gera þetta með smá viti..oft sem þú getur keypt virkilega fallega hluti/efni í byko/húsa en fólk vill endilega kaupa eitthvað sér innflutt sem ENGIN sér svo muninn á og er rándýrt.....hef tekið þátt í nokkrum þannig verkefnum þar sem maður gapir yfir verðinu á eitthverju sem ég, sjálfur iðnaðarmaðurinn, tek varla eftir :D

Author:  bimmer [ Fri 14. Sep 2007 07:46 ]
Post subject: 

Ég myndi benda þér á að tala við pabba minn - hann er
matsmaður og tekur einmitt að sér að skoða íbúðir með þeim
sem eru að spá í að kaupa en hafa litla reynslu í þeim efnum.

http://www.mat.is

Author:  Svezel [ Fri 14. Sep 2007 08:30 ]
Post subject: 

Það er 70's eldhúsinnrétting í íbúðinni minni og ég sprautaði hana sjálfur úti í skúr en málaði fasta fleti. Kom að mínu mati (og allra sem hafa séð afraksturinn) bara mjög vel út .

Það kostaði mig innan við 20k í í efni og svona 3 daga í vinnu. Þar sem ég vildi ekki standa í innréttingaskiptum strax þá var þetta fín lausn.

Author:  Daníel [ Fri 14. Sep 2007 08:54 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Ég myndi benda þér á að tala við pabba minn - hann er
matsmaður og tekur einmitt að sér að skoða íbúðir með þeim
sem eru að spá í að kaupa en hafa litla reynslu í þeim efnum.

http://www.mat.is


Tek undir með Þórði, borgar sig að fá fagaðila til að skoða íbúðina, því þarna er yfirleitt um aleigu fólks að ræða og skelfing að lenda í miklum útgjöldum til að gera við hluti sem hefði verið hægt að komast hjá.

Ef þið gerið kauptilboð áður en matið fer fram látið þá koma fram í því tilboði að íbúðin verði að standast þessa skoðun, þá getið þið losnað undan tilboði sem annars væri bindandi.

Author:  Spiderman [ Fri 14. Sep 2007 10:05 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Ég myndi benda þér á að tala við pabba minn - hann er
matsmaður og tekur einmitt að sér að skoða íbúðir með þeim
sem eru að spá í að kaupa en hafa litla reynslu í þeim efnum.

http://www.mat.is


Þetta er brilliant og sanngjarnt verð hjá kallinum líka, ég mun klárlega nýta mér þetta :!:

Author:  Eggert [ Fri 14. Sep 2007 10:20 ]
Post subject: 

Hugsaðu dæmið til enda Kristján... hvað lánin varðar. Hvað verða þau há eftir 2 ár? En 4 ár? Hvað ætlarðu að búa þarna lengi?

Ef þú ert að taka hátt lán hlutfallslega séð á íbúðina, þá þarftu að treysta á miklar hækkanir, bara til þess eins að þurfa ekki að taka þér annað lán til að niðurgreiða þegar á svo að selja seinna meir. Þú borgar ekkert nema vexti af húsbréfinu fyrstu árin og ekkert fer inná höfuðstólinn, en á meðan hækkar lánið, hratt, vegna vísitölunnar.

Gott dæmi er íbúðin sem ég átti í Berjarima... ég var með lán á henni uppá 10.5 til að byrja með, en þegar ég seldi og greiða átti upp húsbréfið stóð það í 13 milljónum, tveimur og hálfu ári síðar. Hefði ég ekki verið svo heppinn að kaupa áður en miklar hækkanir áttu sér stað væri ég líklega í 3m króna tapi, þegar sölulaunum hefur verið bætt við.

Reiknaðu dæmið til enda, sjáðu hvað lánið geti hækkað mikið ca. miðað við X tíma, og sjáðu hvað þessi upphæð myndi duga lengi í leigu. Þú átt eftir að verða hissa á útkomunni.

Fólk þarf auðvitað þak yfir höfuðið og þessvegna er ekki hægt að horfa á fasteignakaup eins og verðbréfafjárfestingu. Vildi bara benda þér á þetta ef þú vissir ekki af þessu fyrir.... það er dýrt að kaupa og allt í einu lítur leiga, svo lengi sem hún sé skynsamlega lág, ekkert svo illa út.

Gangi þér vel :wink:

Author:  Kristjan [ Fri 14. Sep 2007 10:22 ]
Post subject: 

Ég er búinn að vera að nota Ikea þrívíddar reiknivélina til að reikna út eldhúsið. Helvítis sniðugt dót og líka ágætis afþreying fyrir konuna.

Þar setur maður saman innréttinguna nákvæmlega eins og maður vill og svo reiknar forritið alltsaman fyrir þig.

Það þarf að rífa ALLT útaf klóinu en ég ræð alveg við það seinna, ég átta mig á því.

Það er nýbúið að taka blokkina í gegn að utan. Bæði þak og sprungur, svo og mála.

Author:  Kristjan [ Fri 14. Sep 2007 10:24 ]
Post subject: 

Eggert: Afborgunin af láninu okkar miðað við hvað við eigum mikið til að borga inná hana, er 24 þúsund krónum minni en leigan sem við borgum af núverandi íbúð. Þetta lít ég á sem svigrúm.

Author:  noyan [ Fri 14. Sep 2007 10:34 ]
Post subject: 

Spiderman wrote:
bimmer wrote:
Ég myndi benda þér á að tala við pabba minn - hann er
matsmaður og tekur einmitt að sér að skoða íbúðir með þeim
sem eru að spá í að kaupa en hafa litla reynslu í þeim efnum.

http://www.mat.is


Þetta er brilliant og sanngjarnt verð hjá kallinum líka, ég mun klárlega nýta mér þetta :!:


Sammála Spider..þetta er þrælsniðugt, mun klárlega nýta mér þetta næst þegar ég kaupi mér íbúð.

Annars er ég að selja mína ef einhver hér hefur áhuga..

http://draumahus.is/Eign/?radnumer=3390

Author:  Eggert [ Fri 14. Sep 2007 10:36 ]
Post subject: 

Ertu búinn að athuga hvort það hafi verið til peningur í húsfélaginu fyrir þessum framkvæmdum? Eða þurftu þeir að taka lán fyrir því? Það getur verið að hússjóðsgreiðslan sé hærri fyrir vikið til að borga niður lán, ef eitthvað svoleiðis var í spilinu. Er kannski til framkvæmdapeningur í hússjóði?

Og svo með að afborgunin lækki um 24 þús kall... :?

Hvað þarftu að borga í tryggingar á ári? Það telur eitthvað.
Er þetta reiknað með hússjóði?
Og svo hækkar höfuðstóllinn um muuuuuun meira en 24 þús kall á mánuði.

Author:  Kristjan [ Fri 14. Sep 2007 10:44 ]
Post subject: 

Eggert: Já það er nokkuð til í þessu hjá þér, en ég athugaði með hússjóðinn, hann er í góðu standi, hann borgar líka fyrir þrif í blokkinni.

Við ætlum að búa þarna í 2 ár.

Author:  Kristjan [ Fri 14. Sep 2007 11:00 ]
Post subject: 

Noyan: þú ættir virkilega að athuga að kaupa þér eitthvað á veggina hjá þér. Hehe ekki illa meint. Íbúðin selst betur ef hún er smekklega innréttuð á söluauglýsingunum. Eða það hafa fasteignasalar sagt mér.

Author:  noyan [ Fri 14. Sep 2007 11:17 ]
Post subject: 

Kristjan wrote:
Noyan: þú ættir virkilega að athuga að kaupa þér eitthvað á veggina hjá þér. Hehe ekki illa meint. Íbúðin selst betur ef hún er smekklega innréttuð á söluauglýsingunum. Eða það hafa fasteignasalar sagt mér.


:lol: ég er nú með eina þarna uppi...Það er reyndar allt annað að sjá þetta þegar skjávarpinn er í gangi, hann fyllir alveg út einn vegg.

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/