bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvað er versti bíll sem sem þið hafið átt?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24185
Page 1 of 4

Author:  bímer330ix [ Sat 08. Sep 2007 23:20 ]
Post subject:  Hvað er versti bíll sem sem þið hafið átt?

er forvitinn um hvað eru verstu bílar sem kraftsmeðlimir hafa átt..

Þegar ég var rétt orðinn 17 gjörsamlega grænn, þá sá ég þennan svaðallega Mustang 79 302 kvikindið svínlookaði þannig ég var keypti án þess einu sinni að reyna að harka um verðið.. Kallinn rúllaði alsæll út búinn að keyra í 10 mín þá fór að bullsjóða..kom í ljós að vatnskassinn var of lítill..það var fixað .dagur 2 bíllinn ekki í gang..kveikjan farinn..því var reddað(á minn kostnað) viku seinna fór skiptingin.. smá maus að redda nýrri skiptingu bílinn stóð í 3vikur..loks kom skiptingin,henni hent í ég bakka út úr skúrnum.bang braut drifið...þetta ævintýri endaði svo með þvi að vélin fór..2 mán eftir kaupin..ég lét draga hann upp í vöku þar sem ég fékk 5 þ kall fyrir molann...

Author:  Steini B [ Sat 08. Sep 2007 23:23 ]
Post subject: 

Toyota...



Það þarf ekki að segja meir... :lol:

Author:  . [ Sat 08. Sep 2007 23:27 ]
Post subject: 

Toyota Yaris '99 árgerð, skil ekki hvað fær fólk til að kaupa þetta :? ég tók hann í skiptum btw :roll:

Author:  Einarsss [ Sat 08. Sep 2007 23:29 ]
Post subject: 

Versti er sennilega chevrolet malibu V6 1980, átti hann í 2 vikur og hann bilaði eftir eina en náði samt að klára 2 fulla tanka :lol: og það er ekki rúntað mikið á honum

Author:  Bjarkih [ Sat 08. Sep 2007 23:37 ]
Post subject: 

SAAB 9000 2.3 '93 módel. Hræðilega lin fjöðrun. Átti Hyundai accent '97 áður en ég flutti til Svíþjóðar og keypti Saabinn og verð að segja að ég var sáttari við accentinn þó hann væri þrengri og óþægilegri.

Author:  X-ray [ Sat 08. Sep 2007 23:46 ]
Post subject: 

Bara átt þýskt sem hefur ALDREI vakið neina ólukku

Author:  siggir [ Sat 08. Sep 2007 23:47 ]
Post subject: 

Ætla ekki að segja hver var minn versti bíll :oops:

Author:  Hannsi [ Sat 08. Sep 2007 23:53 ]
Post subject: 

Steini B wrote:
Toyota...



Það þarf ekki að segja meir... :lol:

Ditto

Author:  Tommi Camaro [ Sun 09. Sep 2007 00:25 ]
Post subject: 

Wv golf ekinn 327 þús fekk hann í 290 þús km ,eftir það tók ég hann af lífi kom honum samt í 327þús km með því að skifta um 3 vélar og einn gírkassa, á meðan þessari eign stoð þá var strætó buin að smyrja á honum hlið,húddið fokið upp,

Author:  basten [ Sun 09. Sep 2007 00:36 ]
Post subject: 

Ætli það hafi ekki verið BMW 750iL ´92.

Virkilega gaman að keyra hann, en það fór ansi mikill peningur í viðhald á honum og um leið og ég var búinn að láta laga e-ð í honum þá bilaði e-ð annað mjög fljótlega.

Held ég hafi aldrei tapað jafn miklu á einum bíl :cry:

Author:  ValliFudd [ Sun 09. Sep 2007 00:37 ]
Post subject: 

Klárlega Golf árg. 2000.. Keypti hann nýjan og ég hef aldrei átt bíl sem hefur bilað meira...

Hef haldið mig frá VW síðan.. Það er nú ljóta sorpið...

Author:  Doror [ Sun 09. Sep 2007 00:53 ]
Post subject: 

Opel Corsa, fyrrverandi Dominos bíll sem ég tók uppí dýra Hondu. Átti hann sem betru fer bara í 3 daga.

Author:  HAMAR [ Sun 09. Sep 2007 00:54 ]
Post subject: 

Toyota Avensis '98 keypt glæný á 1.9 mill. seld 2 árum seinna á 900.000 kr.
Fór 12 sinnum á verkstæði á 1.ári, bremsur gallaðar, demparar gallaðir, hliðarlistar brotnuðu af í frosti, sitthvor innréttingin frammí og afturí,
alltaf komið fram við mann eins og fífl í umboðinu.
Reyndi í 6 mánuði að selja drusluna en ekkert gekk.
Vinnufélagi minn keypti bílinn að lokum og hefur ekki talað við mig síðan.

Author:  gunnar [ Sun 09. Sep 2007 01:04 ]
Post subject: 

HAMAR wrote:
Toyota Avensis '98 keypt glæný á 1.9 mill. seld 2 árum seinna á 900.000 kr.
Fór 12 sinnum á verkstæði á 1.ári, bremsur gallaðar, demparar gallaðir, hliðarlistar brotnuðu af í frosti, sitthvor innréttingin frammí og afturí,
alltaf komið fram við mann eins og fífl í umboðinu.
Reyndi í 6 mánuði að selja drusluna en ekkert gekk.
Vinnufélagi minn keypti bílinn að lokum og hefur ekki talað við mig síðan.


Hahaha :lol:

Author:  bímer330ix [ Sun 09. Sep 2007 01:23 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
Klárlega Golf árg. 2000.. Keypti hann nýjan og ég hef aldrei átt bíl sem hefur bilað meira...

Hef haldið mig frá VW síðan.. Það er nú ljóta sorpið...



Svaðalegt að VW er orðinn mikið sorp.. Átti New beatle turbo..þvílika draslið sem sá bíll.var. fékk hæsta viðgerðarreikning í íslandsögunni fyrir bremsuviðgerð frá heklu..fyrir utan það að það var eins og að vera á dískóteki með öll viðvörunarlajósin blikkandi sífellt í mælaborðinu

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/