bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Audinn með smá vesen- Vantar smá hjálp...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=24169
Page 1 of 1

Author:  JOGA [ Fri 07. Sep 2007 21:16 ]
Post subject:  Audinn með smá vesen- Vantar smá hjálp...

Sælt veri fólkið,

Keypti nýlega Audi A4 V6 sem hefur reynst nokkuð vel síðan ég keypti hann.
Seinustu helgi fór ég á BTCC (varð að koma því að :lol: ) og lenti í að bíllinn kvartaði um að það vantaði kælivökva.

Ég stoppaði strax og fór og horfði á kappakstur (var nærri kominn). Bíllinn náði aldrei að hittna að ráði. Fór svo með vatn niður að bíl eftir keppni og bætti á. Sá strax að það var einhver leki þarna. Ég komst svo að því þegar ég var kominn heim að það var rifa á einni slöngu. Skrapp niður í Audi og keypti nýja, keypti mér verkfæri og skipti um. Bætti svo kælivökva aftur á og fór að keyra. Síðan var bíllinn fínn í sólarhring ca. Ekki mikið keyrt en samt tvisvar nokkurn spotta.

Fór svo smá rúnt núna áðan og þegar ég var að koma heim eftir ca. 25 mín. akstur og var að leggja í stæði ældi bíllinn mest öllu vatninu af sér. Hann var ekki að hitna og gengur fínt, ekkert óvenjulegt að sjá. Ekki hvítur reykur eða gubb í olíuloki (heddpakkning) og slangan sem ég setti í er í fínu. Vatnið virtist koma frá tankinum sjálfum (overflow dæmið). En ég prófaði að fylla á hann aftur áðan og þá er hvergi leka að sjá eða neitt svoleiðis.

Hvað getur verið að?

Mér dettur í hug að það sé loft í systeminu. Gæti það orsakað þetta?
Hvað leggið þið til að maður geri?

Þætti vænt um smá hjálp. Hef enga þolinmæði fyrir þessu núna :x
(afsakið ritgerðina)

Author:  siggir [ Fri 07. Sep 2007 23:20 ]
Post subject: 

Getur ekki verið að þú hafir einfaldlega sett of mikið á hann? Það er yfirfall á yfirfallstanknum geri ég ráð fyrir :)

Author:  JOGA [ Sat 08. Sep 2007 09:16 ]
Post subject: 

Það er yfirfall jú en hann gubbaði næstum öllu vatninu af sér. Ekki bara smá.
Svo ég geri ekki ráð fyrir að það sé það að ég hafi sett of mikið.

Takk samt.

Einhverjir fleiri sem geta hjálpað? Væri vel þegið!

Author:  gunnar [ Sat 08. Sep 2007 11:58 ]
Post subject: 

Hvernig er með vatnslás? Getur verið að ef hann er lokaður að hann æli þá megninu sem kemst ekki inn á mótor? Bara hugmynd.

Author:  JOGA [ Sat 08. Sep 2007 13:00 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Hvernig er með vatnslás? Getur verið að ef hann er lokaður að hann æli þá megninu sem kemst ekki inn á mótor? Bara hugmynd.


Það er líka ólíklegt. Bíllinn heldur fínum hita sem ég geri ráð fyrir að væri ekki raunin ef vatnslásinn væri fastur. Sérstaklega í meira en 20° hita og fastur í umferð.

En ég fékk einhverja hugmynd í gær að þetta gæti verið yfirfallstankurinn sjálfur sem væri að leka. Fann á netinu að þeir væru stundum til vandræða og það leit út fyrir að lekinn kæmi þaðan.

Sem sagt að þegar bíllinn verður heitur að þá missti kerfið þrýsting og vatnið gubbist út um rifur og út um yfirfallið.

Ég fór og keypti nýjan tank áðan. Það er hinum megin í bænum og eina leiðin var að fara á bílnum.

Þetta var um 1 klst ferð og bíllinn var 100% eðlilegur á leiðinni. Smá smit á tanknum en ekkert eins og í gær.

Skipti væntanlega um tankinn en þetta er orðið frekar undarlegt :?

Vonandi er þetta bara tankurinn eða lokið (sem ég keypti líka)

Author:  Knud [ Sat 08. Sep 2007 13:03 ]
Post subject: 

Vatnið getur líka freytt ef þú blandar saman 2 gerðum af frostlegi, ef það væri mismunandi litur

Author:  JOGA [ Sat 08. Sep 2007 13:11 ]
Post subject: 

Knud wrote:
Vatnið getur líka freytt ef þú blandar saman 2 gerðum af frostlegi, ef það væri mismunandi litur


OK. Kannski var eitthvað eftir af gamla vökvanum þegar ég bætti á. Það gæti verið málið. Kannski herti ég lokið ekki nógu vel á heldur. Er að spá í að skipta um tankinn til vonar og vara. Hinn er líka orðinn skítugur svo það er gamana ð sjæna aðeins í leiðinni. Fer svo með hann í Service fljótlega og þá læt ég flusha kerfið og bæta nýjum "Audi" vökva á kerfið.

Þarf svo að fá mér BMW. Miklu skemmtilegra að dunda í þeim en þessu

:? :oops:

Author:  Knud [ Sat 08. Sep 2007 13:17 ]
Post subject: 

JOGA wrote:
Knud wrote:
Vatnið getur líka freytt ef þú blandar saman 2 gerðum af frostlegi, ef það væri mismunandi litur


OK. Kannski var eitthvað eftir af gamla vökvanum þegar ég bætti á. Það gæti verið málið. Kannski herti ég lokið ekki nógu vel á heldur. Er að spá í að skipta um tankinn til vonar og vara. Hinn er líka orðinn skítugur svo það er gamana ð sjæna aðeins í leiðinni. Fer svo með hann í Service fljótlega og þá læt ég flusha kerfið og bæta nýjum "Audi" vökva á kerfið.

Þarf svo að fá mér BMW. Miklu skemmtilegra að dunda í þeim en þessu

:? :oops:


Já gangi þér bara vel með þetta ;)
þetta er ábyggilega ekkert stórvægilegt, og fáðu þér bmw aftur

Author:  maxel [ Sat 08. Sep 2007 13:56 ]
Post subject: 

þú getur prófað vatnslássin með því að sjóða hann

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/