bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bílasolur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23860
Page 1 of 2

Author:  HPH [ Thu 23. Aug 2007 18:37 ]
Post subject:  Bílasolur.is

þetta er svolítð skelmtileg vara sem bílasala er að selja. :lol:
http://www.bilasolur.is/Main.asp?show=C ... _ID=121745

Author:  Djofullinn [ Thu 23. Aug 2007 18:51 ]
Post subject: 

En ok burtséð frá því að þetta er á bilasolur.is.
Ekki datt mér í hug að Espigerði væri svona dýr gata :shock:

Spurning hvort maður bjóði honum allan flotann upp í þessa íbúð... :-k

Author:  Svezel [ Thu 23. Aug 2007 19:05 ]
Post subject: 

mig hefur alltaf langað í beinskipta íbúð :lol:

Author:  fart [ Thu 23. Aug 2007 19:07 ]
Post subject: 

ég er svo barnalegur í mér að ég hélt að menn þyrftu sér leyfi til að selja fasteignir og reka fasteignasölu.

Author:  Eggert [ Thu 23. Aug 2007 19:28 ]
Post subject: 

fart wrote:
ég er svo barnalegur í mér að ég hélt að menn þyrftu sér leyfi til að selja fasteignir og reka fasteignasölu.

Neinei, nú getur hvaða krimmi sem er selt íbúðir í nafni fasteignasölu sem þarf aðeins einn "löggiltan" fasteignasala fyrir alla starfsemina.

Væri til í að vita hversu mikið nám er á bakvið það að vera löggiltur fasteignasali.

Og nærri 40 millur fyrir íbúð í elliblokk er bara rugl... sama þó hún væri 14 herbergja!

Author:  fart [ Thu 23. Aug 2007 19:34 ]
Post subject: 

Eggert wrote:

Jújú, dæmdir glæpamenn selja íbúðir í skjóli löggilts fasteignasala..enda batnandi mönnum best að lifa (þekki nokkur þannig dæmi) en fasteignasalan þarf samt starfsleyfi og þartilgerðar tryggingar í formi peningaábyrgða líkt og bílasölur, en eftir því sem ég best veit þá eru þau leyfi ólík og ótengd.

Author:  Vargur [ Thu 23. Aug 2007 19:52 ]
Post subject: 

Það getur hver sem er auglýst fasteignir til sölu, bílsalar og aðrir.
Það þarf hins vegar lögmann eða löggiltan fasteignasala til að ganga frá fasteignaviðskiptum.

Author:  Saxi [ Thu 23. Aug 2007 21:03 ]
Post subject: 

Eggert wrote:
fart wrote:
ég er svo barnalegur í mér að ég hélt að menn þyrftu sér leyfi til að selja fasteignir og reka fasteignasölu.

Neinei, nú getur hvaða krimmi sem er selt íbúðir í nafni fasteignasölu sem þarf aðeins einn "löggiltan" fasteignasala fyrir alla starfsemina.

Væri til í að vita hversu mikið nám er á bakvið það að vera löggiltur fasteignasali.

Og nærri 40 millur fyrir íbúð í elliblokk er bara rugl... sama þó hún væri 14 herbergja!

Þetta er 40 eininga nám (ca. fjórar annir) og þetta eru námskeiðin sem þú þarft að sitja:

"I. hluti (samtals 9 einingar).
3 einingar: 1. Inngangur að lögfræði; 4. Ágrip af persónu-, sifja- og erfðarétti; 5. Ágrip af
félagarétti; 6. Ágrip af réttarfari.
3 einingar: 2. Eignaréttur.
3 einingar: 3. Samningaréttur.
II. hluti (samtals 9 einingar).
3 einingar: 1. Fasteignakauparéttur; 2. Viðskiptabréfareglur.
3 einingar: 3. Veðréttur; 4. Samningar um afnotarétt af fasteignum; 5. Fjöleignarhús.
3 einingar: 6. Aðrir flokkar fasteigna - jarðir; 7. Sérstakar reglur um fyrirtæki.
III. hluti (samtals 11 einingar).
3 einingar: 1. Lög um sölu fasteigna, fyrirtækja og skipa, nr. 99/2004. 2. Viðskiptasiðfæri og
hagsmunaárekstrar. 3. Kaup og sala fasteigna erlendis
8 einingar: Verðmat fasteigna, núvirðing
IV. hluti
3 einingar: 1. Reikningahald og bókfærsla og 2. skattskil
2 einingar: 3. Skoðun fasteigna v. fyrirhugaðrar sölu. 4. Söluyfirlit og gerð kaupsamninga
5. Skjalagerð og samningsgerð
2 einingar: 6. Skoðun fyrirtækja og öflun upplýsinga um rekstur og afkomu, þ.m.t.
áreiðanleikakannanir. 7 Skjalagerð og samningsgerð.
2 einingar: 8. Skoðun skipa, öflun upplýsinga og verðlagning 9. Skjalagerð og samningsgerð
2 einingar: 10 Raunhæf verkefni"

Ég get ekki ímyndað mér annað en það megi auglýsa fasteignir hvar sem er. Skjöl sem tengjast fasteignaviðskiptum eru hins vegar ekki þinglýst nema þau séu unnin af fasteignasölum (eða lögfræðingum) eða staðfest af þeim.

Saxi

Author:  elfar [ Thu 23. Aug 2007 21:30 ]
Post subject: 

Saxi wrote:

Þetta er 40 eininga nám (ca. fjórar annir) og þetta eru námskeiðin sem þú þarft að sitja:

hægferð ?

Author:  Saxi [ Thu 23. Aug 2007 21:52 ]
Post subject: 

elfar wrote:
Saxi wrote:

Þetta er 40 eininga nám (ca. fjórar annir) og þetta eru námskeiðin sem þú þarft að sitja:

hægferð ?

Fjarnám bæði í HR og HÍ að ég held :?:

Author:  crashed [ Thu 23. Aug 2007 22:42 ]
Post subject: 

hvað er þetta strákar þetta er bara allvöru blokkar bíll hehe

Author:  A.H. [ Fri 24. Aug 2007 00:48 ]
Post subject: 

Saxi wrote:

Skjöl sem tengjast fasteignaviðskiptum eru hins vegar ekki þinglýst nema þau séu unnin af fasteignasölum (eða lögfræðingum) eða staðfest af þeim.

Saxi

Reyndar er einstaklingum heimilt að sjá sjálfir um þessa pappírsvinnu í viðskiptum sín á milli. Þannig gæti ég keypt fasteign af þér og annar okkar þá séð um pappírsvinnuna.

Ef þú ætlar hins vegar að hafa "milligöngu" um viðskipti sem þessi, þarftu að vera löggiltur fasteignasali eða handhafi lögmannsréttinda. Þetta á þá við í þeim tilvikum þar sem um er að ræða kaupsamning sem þú ert sjálfur ekki aðili að.

Author:  Thrullerinn [ Fri 24. Aug 2007 01:29 ]
Post subject: 

Aukahlutir & búnaður
- Skoðar að taka bíl í skiptum.

.... aldrei kaupa og selja íbúðir nema í gegnum traustar fasteignasölur.

Author:  Spiderman [ Fri 24. Aug 2007 11:55 ]
Post subject: 

Thrullerinn wrote:

.... aldrei kaupa og selja íbúðir nema í gegnum traustar fasteignasölur.

Alveg sammála það er alltof mikið af bíla- og herbalifesölum með grunnskólapróf og bindi í þessum bransa :roll:

Author:  Stanky [ Fri 24. Aug 2007 17:51 ]
Post subject: 

Hehe... hvaða SVAÐALEGA bíl langar honum uppí þessa íbúð! :D

40 millur :D

ONNO ... skella þér í Espigerði? :D

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/