bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bjór, hvað er gott og hvað er vont...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23834
Page 1 of 6

Author:  ValliFudd [ Wed 22. Aug 2007 14:20 ]
Post subject:  Bjór, hvað er gott og hvað er vont...

Nú eru menn alls ekki sammála í þessum efnum býst ég við.. Langaði bara að búa til umræðu um þetta :) Enda er bjórdrykkja tilgangur lífsins 8) :lol:

Góður:
* Thule, bara ískaldur samt
* Mahou, á spáni
* Birra Morretti (BARA góður bjór)
* Tuborg Classic (Ekki græni, veit ekki hvort hann fæst hér á landi)
* Premium frá Egils, smááá dökkur og sjúklega góður

Ódrekkandi viðbjóður
* San Miguel (Frekar drekk ég sjó)
* Heineken
* Budweiser
* Carlsberg ("drekkandi" ef maður drekkur ekkert annað allt kvöldið, en einn Thule á milli og þá er ekki hægt að drekka meiri Carlsberg það kvöldið, BARA vondur bjór, einn kostur þó, hann er alveg "jafn" vondur kaldur og volgur, svo hann er skásti kosturinn ef um volgan bjór er að ræða)
* Miller
* Corona

Hvað drekka og ekkidrekka hinir hérna?

Author:  bimmer [ Wed 22. Aug 2007 14:21 ]
Post subject: 

Svona sem fyrsta eða annan bjór vel ég Stellu eða eitthvað sambærilegt.

Eftir það fer þetta að skipta minna máli :lol:

Author:  Einarsss [ Wed 22. Aug 2007 14:24 ]
Post subject: 

Pepsí max FTW

Author:  arnibjorn [ Wed 22. Aug 2007 14:26 ]
Post subject: 

Lite... enda sést það á mér! 8) :lol:

Author:  Ketill Gauti [ Wed 22. Aug 2007 14:28 ]
Post subject: 

drekkandi:
Egils sterkur.... 8)

ódrekkandi:
carlsberg

Author:  Aron Andrew [ Wed 22. Aug 2007 14:28 ]
Post subject: 

Dökkur Kaldi 8)

Ódrekkandi:

Faxe

Author:  fart [ Wed 22. Aug 2007 14:30 ]
Post subject: 

Bjór er svo mismunandi, misgóður og fer algerlega eftir tilefninu.

T.d. er fátt betra en ískaldur Corona á heitum sumardegi, opna flöskuna og taka hann í 2 sopum.

Ef ég fæ mér einn bjór til að njóta þá er það gjarnan Leffe Blonde, vel feitur og smöraður auk þess að vera sterkur og gefa góðan fílíng án þess að finna fyrir áfenginu.
Image

Þegar ég er í Bretlandi finnst mér ómissandi að fá mér einn Guinness af krana á góðri krá.

s.s. mjög mismunandi eftir tilefni.

Author:  Þórir [ Wed 22. Aug 2007 14:50 ]
Post subject:  Öl

Flestir eru þeir góðir, eða eins og við félagarnir sögðum í menntó: " Allur bjór er góður, nema Jever, hann er vondur."

Uppáhalds:
Hoegarden
Erdinger


Annars er ég sammála Fart, það er ótrúlega ljúft að taka svona létta bjóra, Corona, Miller, sem svona grill bjóra, einn kaldann í hitanum.

Annars komst ég upp á lag með að drekka Bitter, á pöbbunum í Englandi, þeir eru algert æði, þegar maður kemst upp á lagið með þá. Þeir eru samt ekki allra.

Author:  gunnar [ Wed 22. Aug 2007 14:55 ]
Post subject: 

Drekkandi.

Stella Artois, Leffe, Duvel, Birra Moretti, Bavaria (hann er svona carlsberg bjórinn hjá mér, fínt á djammið) Carlsberg Export er líka góður.

Smakkaði líka mjög góðann bjór úti sem hét DAS ECHTE. Geðveikur, mildur en samt með góðu eftirbragði.

Ódrekkandi - Budweiser og miller þar í fyrsta sæti. "lite" línan er bara vond og líka þessir helvítis kvennkynsdrykkir með of sætu bragði.

Author:  Bjössi [ Wed 22. Aug 2007 14:58 ]
Post subject: 

Svona léttir bjórar sem eru þægilegt að drekka er corona, bavaria, stella
cruzcampo fellur líka í þennan flokk en er ekki fáanlegur nema á Spáni

en uppáhaldið er Tagus, fæst í Portúgal, þykir einn besti portúgalski bjórinn

Author:  Steini B [ Wed 22. Aug 2007 15:00 ]
Post subject: 

Ég drekk bara Thule og pæli ekkert í hinu... 8)

Author:  gunnar [ Wed 22. Aug 2007 15:00 ]
Post subject: 

Þá ertu að missa af ansi góðu stöffi því Thule er BARA sull :lol:

Author:  IceDev [ Wed 22. Aug 2007 15:01 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Þá ertu að missa af ansi góðu stöffi því Thule er BARA sull :lol:


Image

Author:  gunnar [ Wed 22. Aug 2007 15:03 ]
Post subject: 

Nú fylgi ég þér ekki alveg eftir minn kæri ?

Author:  IceDev [ Wed 22. Aug 2007 15:03 ]
Post subject: 

s.s Word

Page 1 of 6 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/