bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Maður myrtur áðan í Reykjavík! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23425 |
Page 1 of 2 |
Author: | bjornvil [ Sun 29. Jul 2007 13:36 ] |
Post subject: | Maður myrtur áðan í Reykjavík! |
Jæja, þá er allt farið til fjandans hérna. Maður var skotinn áðan á mótum Sæbrautar og Kringlumýrarbrautar. Hann lést fyrir stuttu síðan af sárum sínum. Er að fylgjast með málinu á www.mbl.is og www.visir.is |
Author: | lulex [ Sun 29. Jul 2007 13:37 ] |
Post subject: | |
Það verður fróðlegt að horfa á fréttatímann i kvöld, vonandi komnir með eithva meira um málið... |
Author: | bimmer [ Sun 29. Jul 2007 13:41 ] |
Post subject: | |
Bölvun á þessum gatnamótum ![]() |
Author: | fart [ Sun 29. Jul 2007 13:43 ] |
Post subject: | |
WTF!!!!! Það hlaut að koma að þessu helvíti! Er þetta ekki fyrsta skipti? |
Author: | Aron Fridrik [ Sun 29. Jul 2007 13:50 ] |
Post subject: | |
alls ekki fyrsta skiptið sem maður er skotinn af asettu raði a islandi.. eins og malid med leigubilstjorann sem var skotinn með haglabyssu ur aftursætinu a attunda aratugnum.. |
Author: | JonHrafn [ Sun 29. Jul 2007 13:51 ] |
Post subject: | |
Með þessu atviki þá styttist í að lögreglan á Íslandinu vopnist, því miður. |
Author: | fart [ Sun 29. Jul 2007 13:53 ] |
Post subject: | |
aronisonfire wrote: alls ekki fyrsta skiptið sem maður er skotinn af asettu raði a islandi.. eins og malid med leigubilstjorann sem var skotinn með haglabyssu ur aftursætinu a attunda aratugnum..
Rétt.. En þetta er dálítði annars eðlis, þetta lítur út fyrir að vera planað |
Author: | Aron Fridrik [ Sun 29. Jul 2007 13:57 ] |
Post subject: | |
tjahh.. þetta er kannski su fyrsta sem heppnast.. madurinn sem atti vatnsberann (man ekki hvad hann het) vard fyrir haglabyssu skoti þegar hann var 12 ara.. þa hafdi fyrrverandi moður hans komid til ad drepa hana.. |
Author: | Gunni [ Sun 29. Jul 2007 14:00 ] |
Post subject: | |
aronisonfire wrote: tjahh.. þetta er kannski su fyrsta sem heppnast.. madurinn sem atti vatnsberann (man ekki hvad hann het) vard fyrir haglabyssu skoti þegar hann var 12 ara.. þa hafdi fyrrverandi moður hans komid til ad drepa hana..
Það sem fart er að meina er að þetta er gert útá miðri götu um hábjartan dag, ég held að þetta sé í fyrsta skipti sem svona lagað gerist hérna. |
Author: | Aron Fridrik [ Sun 29. Jul 2007 14:05 ] |
Post subject: | |
ja meinar það.. juju fyrsta skiptið sem það gerist ![]() |
Author: | trolli [ Sun 29. Jul 2007 14:23 ] |
Post subject: | |
jamm virðist hafa verið planað með fyrirvara hafa væntanlega elt hann og beðið eftir réttri tímasetningu meina voru ekki það mörg vitni. |
Author: | benzboy [ Sun 29. Jul 2007 14:34 ] |
Post subject: | |
Ekki spennandi throun ![]() |
Author: | crashed [ Sun 29. Jul 2007 14:35 ] |
Post subject: | |
verður aukafréttatími klukkan 4 á ríkissjónvarpinu |
Author: | lulex [ Sun 29. Jul 2007 14:55 ] |
Post subject: | |
var að koma inn.. munar ekkert um það Maðurinn sem lést af völdum skotsára eftir árás á Sæbrautinni í morgun var skotinn með 22. kalibera riffli í brjóstið. Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við Vísi. Lögreglan útilokar ekki að um árás án tilefnis hafi verið að ræða. Heimildir segja að maðurinn hafi verið að skipta um dekk þegar á hann var ráðist. Sérsveit lögreglunnar er í viðbragðsstöðu. Samkvæmt heimildum Vísis er ekki útilokað að maðurinn hafi verið skotinn án tilefnis. Þykir margt benda til þess að hann hafi verið að skipta um dekk á bíl sínum við Sæbrautina þegar á hann var skotið. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki viljað staðfesta þetta en segist hins vegar ekkert útilokað í rannsókn málsins. Maðurinn lést á slysadeild Landspítalans laust eftir hádegi í dag. Enn sem komið er hefur enginn verið handtekinn vegna málsins að sögn lögreglu. |
Author: | Benzari [ Sun 29. Jul 2007 14:56 ] |
Post subject: | |
crashed wrote: verður aukafréttatími klukkan 4 á ríkissjónvarpinu
Breyttur tími: 15:30 |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |