bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Nýi bíllinn er seldur - Audi A4 AVANT 2.8 Quattro - https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23418 |
Page 1 of 2 |
Author: | JOGA [ Sat 28. Jul 2007 23:45 ] |
Post subject: | Nýi bíllinn er seldur - Audi A4 AVANT 2.8 Quattro - |
Sælt veri fólkið. Mig langaði að sýna ykkur nýja vagninn. Ég flutti hingað til Edinborgar nýlega og hef verið að leita að flottum BMW síðan snemma í sumar. Ég byrjaði á að leita að E30 Touring en eftir að vera kominn út langaði mig mikið að prófa eitthvað nýtt. Ég var hellst að leita að E36 328i en því miður er ekki mikið til af þeim hérna í 4dyra eða Touring útgáfum. Ég reyndar missti af einum í seinustu viku. Var virkilega svekktur yfir því ![]() En eftir að vera búinn að vafra frá mér allt vit fór ég eitthvað að skoða Audi bílana og rakst á þennan líka fína bíl. Ákvað að renna mér niður til Manchester og skoða. Tók lest í morgun og tók með mér aur og var búinn að ganga frá bráðabirgðatryggingu til vonar og vara. Bíllinn uppfyllti allar væntingar og ég skellti mér á hann. Er virkilega ánægður með kaggann hingað til. Mjög skemmtilegur fjölskyldu/akstursbíll. Ekki sakar að verð á þessu er MUUN hagstæðara en heima ![]() Svo hef ég líka alltaf verið veikur fyrir hvítum bílum og mér finnst þessi bera litinn huggulega vel. En jæja bíllinn er sem sagt: Audi A4 AVANT 2.8 V6 Quattro (RHD) Nýskráður 01.09.1997 ek. 92.000 mílur Þjónustusaga frá upphafi með reikningabunka og skoðunarblöðum seinustu ár. Sport tau innrétting Topplúga 16" Audi felgur S-Line stýri Eftir aksturinn heim bæði á hraðbraut og á sveitavegum hér nálægt Edinborg verð ég að segja að bíllinn kom mér á óvart. Hann vinnur virkilega vel, togar skemmtilega og það var virkilega gaman að keyra hann á mjóu sveitavegunum seinasta spölinn. Vandist furðu fljótt að keyra öfugu megin í bílnum. Þessum verður líklegast ekki mikið breytt á meðan maður er í námi en mig kítlar virkilega í BBS felgur, smá lækkun og Kerscher grill (eða hvernig sem það er skrifað). Sjáum til hvernig það fer. Hér eru svo myndir af kagganum: ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Einarsss [ Sat 28. Jul 2007 23:48 ] |
Post subject: | |
Smekklegur bíl og örruglega fínasta family ræd þá hann sé ekki af réttri tegund ![]() Til hamingju btw góður að hafa valið hvítan.. mun pottþétt reyna kaupa mér hvítan bimma næst |
Author: | UnnarÓ [ Sun 29. Jul 2007 05:26 ] |
Post subject: | |
Mjög flott kerra ![]() Elska þessa B5 Avant bíla, geta orðið sóðalega flottir með einmitt bara lækkun og flottum felgum ![]() |
Author: | Benzari [ Sun 29. Jul 2007 09:02 ] |
Post subject: | |
WhtrlZ |
Author: | benzboy [ Sun 29. Jul 2007 10:07 ] |
Post subject: | |
Bara mjog smekklegt og thyskt er thetta allavega. Til hamingju |
Author: | gunnar [ Sun 29. Jul 2007 15:18 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með nýja bílinn. ![]() |
Author: | sindrib [ Sun 29. Jul 2007 16:42 ] |
Post subject: | |
jess þá getur verið með í bmwkraftur/audicrewinu þá verð ég ekki einn þar lengur ![]() fór og leitaði á þessari kercher síðu og fann ekki neitt grill sem passaði, allavega ekki á minn bíl, væri alveg til í margt á þessari síðu samt. |
Author: | JOGA [ Sun 29. Jul 2007 23:26 ] |
Post subject: | |
Þakka hlý orð. Fannst erfitt að slíta mig frá BMW en verð að segja að ég er sáttur við ákvörðunina. Reyndar alltaf að hugsa til eins E36 328i Touring með hvítu leðri sem var auglýstur á sama tíma en hann var keyrður aðeins of mikið fyrir minn smekk og dýrari/eldri. Aldrei verið í jafnmiklum vandræðum með að velja mér bíl. Þvílíka úrvalið af fínustu bílum hérna fyrir lítinn pening ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Sun 29. Jul 2007 23:28 ] |
Post subject: | |
Til hamingju með þennann ![]() Fallegur svona í hvítu ![]() |
Author: | Helgi M [ Mon 30. Jul 2007 00:14 ] |
Post subject: | |
Fallegur og smekklegur bíll hjá þér ![]() |
Author: | JOGA [ Sat 09. Feb 2008 23:46 ] |
Post subject: | |
Jæja, lítið skeð með þennan. Hann hefur að mestu staðið sig vel og er bara nokkuð fínn bíll í það heila en... ... það bara er ekkert gaman að keyra svona AWD ![]() Setti á hann grá stefnuljós um daginn og bónaði hann (í bílastæðahúsi í miðbænum ![]() Hér er afraksturinn: ![]() Annars er ég núna að reyna að finna eitthvað spennandi merkt BMW (Helst bíll). Er að leita að E30 með Mtech II eða jafnvel 325i eða 328i E36. Svo hef ég skoðað aðeins M3 E36 (Sem eru mjög ódýrir hér) en þeir eru frekar tuskulegir bílarnir sem eru í mínum verðramma ![]() Jæja, vonandi fer ég að finna eitthvað... |
Author: | ///MR HUNG [ Sun 10. Feb 2008 00:36 ] |
Post subject: | |
Þetta á eftir að koma hreyfingu á blóðið hjá F3 ![]() |
Author: | F2 [ Mon 11. Feb 2008 00:16 ] |
Post subject: | |
///MR HUNG wrote: Þetta á eftir að koma hreyfingu á blóðið hjá F3
![]() Gamli,,, Vertu ekki að rífa þig,,, ![]() Annars vantar allan snjó á þessar myndir ![]() ![]() |
Author: | Gunnar Hnefill [ Mon 11. Feb 2008 06:53 ] |
Post subject: | |
til hamingju með þennan mjög smekklegur ![]() |
Author: | Angelic0- [ Mon 11. Feb 2008 16:31 ] |
Post subject: | |
Feginn er ég að þú keyptir svona Audi frekar en E36 Touring... ![]() Finnst E36 Touring einmitt hræðilegasti Touring bíllinn frá BMW ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |