bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

F1 - Nurburgring
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23297
Page 1 of 1

Author:  bimmer [ Sun 22. Jul 2007 21:37 ]
Post subject:  F1 - Nurburgring

Sáu menn keppnina í dag?

Hvað var eiginlega málið með Hamilton???
Af hverju fékk hann að halda áfram eftir að hafa verið
hífður inn á brautina?

Ég hélt að reglan væri sú að amk. eitt dekk þyrfti að vera
inn á brautinni til að brautarstarfsmenn megi hjálpa mönnum
af stað.

Author:  Benzari [ Sun 22. Jul 2007 22:25 ]
Post subject: 

Svakaleg keppni :!:

Munaði ca. sekúndu að öryggisbíllinn hefði fengið F1 í skottið á sér.

Held að þú megir halda áfram (t.d. í varabíl) ef keppnin er stöðvuð og endurræst, reyndar var ekki búið að stöðva keppnina þarna svo þetta er góð spurning

Author:  crashed [ Sun 22. Jul 2007 22:41 ]
Post subject: 

það var einhver umræða um þetta útti skilst mér að hann hafi ekki mát halda áfram en átti að keyra í pitt bara á sínu eigin vélarafli en það fór allt í rugl vegna rigningarinnar en sama þetta var bara snild að sjá þá fara alla þarna útaf í eini beit nánast en það merkilegasta er að eingin varð fyrir alvarlegu tjóni þarna

Author:  Einarsss [ Mon 23. Jul 2007 11:01 ]
Post subject: 

snilldar keppni

en var ekki málið að hamilton mátti halda áfram keppni þar sem keppnina var stöðvuð innan við 2 hringi frá ræsingu?

hugsa að hinir sem voru þarna föttuðu það ekki eða drápu á bílunum og fóru út/klesstu þá.

Author:  Kristján Einar [ Mon 23. Jul 2007 12:21 ]
Post subject: 

einarsss wrote:
snilldar keppni

en var ekki málið að hamilton mátti halda áfram keppni þar sem keppnina var stöðvuð innan við 2 hringi frá ræsingu?

hugsa að hinir sem voru þarna föttuðu það ekki eða drápu á bílunum og fóru út/klesstu þá.


já þetta er málið, úndaf því að keppnin var flögguð af þá má hann komast aftur inná brautina ef hann getur síðan farið á ráslínuna með eigin vélarafli

rosalega steikt keppni, og rosalega sannar það sig einu sinni enn hvað þessir bílar eru öruggir, sbr crashinu hanns hamilton í fyrradag og kubica fyrir nokkrum vikum

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/