bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Svenni Tiger að standa sig! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23230 |
Page 1 of 1 |
Author: | arnibjorn [ Thu 19. Jul 2007 18:45 ] |
Post subject: | Svenni Tiger að standa sig! |
http://www.mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1280989 Quote: Sveinn Elías Elíasson, úr Fjölni, er í þriðja sæti þegar fyrri keppnisdegi í tugþraut á Evrópumeistaramótin unglinga, 19 ára og yngri er lokið. Sveinn Elías hefur hlotið 4.007 stig og aðeins 70 stigum á eftir þeim sem efstur er. Sveinn var í 5. sæti eftir þrjár greinar en vann sig upp í tveimur síðustu greinunum, hástökki og 400 m hlaupi. Hann varð í 7. - 11. sæti í hástökki með 1,92 metra og náði síðan öðrum besta tímanum í 400 m hlaupi, 48,54 sekúndum. Árangur Sveins er afar góður, ekki síst vegna þess að hann er aðeins 17 ára og er einu til tveimur árum yngri en þeir sem eru í toppbaráttu í tugþrautinni. Sveinn Elías hefur keppni í fyrramálið í 110 m grindahlaup, því næst tekur við kringlukast, þá stangarstökki, því næst spjótkast og loks 1.500 m hlaup.
Efstir maður í þrautinni er með 4.077 stig og sá er annar hefur önglað saman 4.071 stigi. Sveinn Elías er með 4.007 stig og sá sem situr í fjórða sæti hefur 3.939 stig. Í fyrstu grein dagsins kom Sveinn Elías fyrstur í mark í 100 m hlaupi á 10,73 sekúndum og bætti drengjamet sitt um 16/100 úr sekúndu en það setti hann í fyrra. Þá var Sveinn Elías aðeins 1/100 úr sekúndur frá 18 ára gömlu meti Jóns Arnars Magnússonar í unglingaflokki (19-20 ára). Þá er tími Sveins Elíasar í sá besti sem Íslendingur hefur náð í 100 m hlaupi í fimm ár. Þá stökk hann 6,98 metra í langstökki og varð fjórði en átti erfiðara uppdráttar í kúluvarpinu, hafnaði í 19. sæti með 12,92 metra. Alls hófu 22 keppendur tugþrautina í morgun og hefur enginn þeirra helst úr lestinni. ![]() |
Author: | fart [ Thu 19. Jul 2007 19:16 ] |
Post subject: | |
Bara svalt og erfitt að vera frambærilegur í tugþraut. |
Author: | Alpina [ Thu 19. Jul 2007 21:32 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Bara svalt og erfitt að vera frambærilegur í tugþraut.
Gæinn .... hleypur hraðar en hvíta djásnið,, ![]() |
Author: | fart [ Fri 20. Jul 2007 06:57 ] |
Post subject: | |
Ég hljóp 400m hlaup í febrúar (partur af 35ára afmælis testinu mínu, tók þátt í Íslandsmeistaramóti Öldunga ![]() ![]() Nafni-Tígur var að keppa þarna í örðu móti og sá gat sprett úr spori. hann á framtíðina fyrir sér. |
Author: | Stanky [ Fri 20. Jul 2007 11:17 ] |
Post subject: | |
Tugþraut er ein erfiðasta íþrótt sem völ er á - svo margar greinar. Þetta er góður árangur. Til hamingju. |
Author: | Aron Fridrik [ Fri 20. Jul 2007 12:52 ] |
Post subject: | |
![]() |
Author: | Angelic0- [ Fri 20. Jul 2007 13:03 ] |
Post subject: | |
GratZ |
Author: | Schulii [ Fri 20. Jul 2007 16:07 ] |
Post subject: | |
Frábær árangur!! Congratz mate!! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |