bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Theo Jansen hannar furðuverur https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23170 |
Page 1 of 1 |
Author: | pallorri [ Mon 16. Jul 2007 00:33 ] |
Post subject: | Theo Jansen hannar furðuverur |
http://visir.is/article/20070714/FRETTIR05/70713053 Quote: Fréttablaðið, 14. júlí. 2007 10:00
Verkfræði, hreyfilist og tækni Theo Jansen hannar furðuverur sem feykjast um hollenskar strendur. Hollendingurinn Theo Jansen er hreyfiaflsskúlptúristi. Hann er listamaður sem nýtir sér tækni og verkfræði til að búa til stórkostlegar furðuverur með ótal fætur sem knúnar eru áfram af veðri og vindum. Jansen lærði vísindi við háskólann í Delft í Hollandi og bjó árið 1980 til fljúgandi undirskál sem raunverulega gat flogið. Hún sveif yfir Delft og kom almenningi og lögreglunni í talsvert uppnám. Síðastliðin tíu ár hefur hugur hans dvalið við að búa til nýjar lífverur úr gulum plaströrum. Hann býr til flóknar beinagrindur sem geta gengið í vindi. Á vefsíðunni www.strandbeest.com er hægt að skoða myndbönd af nokkrum verum úr smiðju Jansens og er ótrúlegt að sjá risastórar skepnurnar líða um sandinn líkt og krabbadýr. Lokamarkmið Jansens er að skepnurnar hans verði í stórum hjörðum á ströndunum og lifi þar eigin lífi. Hahaha þetta finnst mér drullufyndið. Illa vanheill á geði? spyr maður sem ekki veit Annars sá ég einhvern sjónvarpsþátt fyrir stuttu síðan um kappann og hann er alveg að gera góða hluti... Fáránlega mögnuð smíðin á þessu og bilað gott verkvit. ![]() ![]() ![]() Hérna er pilturinn við störf og nýtir sér fyrsta flokks tækni Nokkur myndbönd á YouTube sem ég fann ----- Svo rakst á eina BMW-auglýsingu með honum í fararbroddi Magnaður tappi. Enough said. Kv Palli |
Author: | Aron Fridrik [ Mon 16. Jul 2007 00:36 ] |
Post subject: | |
það var umræða um hann í myndbanda flokknum.. mjög flott gert hjá honum.. ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |