bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Að múta og kúga? (visir.is) https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=23043 |
Page 1 of 1 |
Author: | ValliFudd [ Fri 06. Jul 2007 16:41 ] |
Post subject: | Að múta og kúga? (visir.is) |
Quote: Vísir, 06. júlí. 2007 15:54
Maður handtekinn í Hollandi fyrir að múta foreldrum Madeleine McCann Hollenska lögreglan hefur handtekið 39 ára gamlan karlmann fyrir að reyna að kúga fé út úr foreldrum Madeleine McCann sem hvarf af hótelherbergi á sumardvalarstaðnum Praia da Luz í Portúgal í byrjun maí. Hann krafðist hárra fjárhæða í skiptum fyrir upplýsingar sem hann sagðist hafa um dvalarstað stúlkunnar og mannræningja hennar. Maðurinn játaði eftir yfirheyrslur að hafa skáldað söguna upp. Maðurinn sem er atvinnulaus sendi foreldrum Madeleine sex tölvuskeyti frá internetkaffihúsi og atvinnuleysisskrifstofu í Hollandi. Hann var handtekinn í Eindoven á miðvikudag. Maðurinn verður líklega ákærður fyrir mútur og á yfir höfði sér allt að fjögurra ára fangelsi. Á Spáni eru málaferli hafin gegn pari sem einnig reyndi að kúga fé út úr foreldrum Madeleine í lok júní. Uhm... haa? þetta var á visir.is.. http://www.visir.is/article/20070706/FRETTIR02/70706055 Enn ein villan? skil ekki alveg... Það er talað um í titli fréttar að hann hafi verið handtekinn fyrir að múta þeim, svo neðar talað um að hann hafi verið að kúga fé úr þeim.. en svo verður hann ákærður fyrir mútur ![]() |
Author: | Gunni [ Fri 06. Jul 2007 16:43 ] |
Post subject: | |
Það eru auðvitað bara börn sem skrifa inn á þennan fréttavef þeirra. Virkilega slök vinnubrögð oft á tíðum, kemur frekar illa út! |
Author: | Vargur [ Fri 06. Jul 2007 20:42 ] |
Post subject: | |
Þetta Fréttablaðs/Vísis lið er hvorki læst né skrifandi. Ég lenti í smá símaviðtali við einn þarna, Freir Gígja heitir kappinn, textinn sem birtist svo í blaðinu var ekkert nema stafsetningarvillur og sem dæmi náði hann að hafa 2 villur í sama orðinu á tveimum stöðum í greininni. |
Author: | Danni [ Fri 06. Jul 2007 20:52 ] |
Post subject: | |
Dúfan wrote: Þetta Fréttablaðs/Vísis lið er hvorki læst né skrifandi.
Ég lenti í smá símaviðtali við einn þarna, Freir Gígja heitir kappinn, textinn sem birtist svo í blaðinu var ekkert nema stafsetningarvillur og sem dæmi náði hann að hafa 2 villur í sama orðinu á tveimum stöðum í greininni. Freyr ekki Freir. |
Author: | Vargur [ Fri 06. Jul 2007 20:57 ] |
Post subject: | |
Quote: Freyr ekki Freir.
Ha ha, rétt hjá þér, maður er litlu skárri sjálfur. ![]() |
Author: | bjahja [ Sat 07. Jul 2007 02:07 ] |
Post subject: | |
Grínlaust, visir.is og mbl.is til skammar. Hvernig væri að lesa yfir það sem er sett þarna inná að minnsta kosti einusinni ![]() |
Author: | gunnar [ Sat 07. Jul 2007 06:21 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Grínlaust, visir.is og mbl.is til skammar.
Hvernig væri að lesa yfir það sem er sett inn þarna inná að minnsta kosti einusinni ![]() Mbl.is hefur einmitt farið alveg hríðversnandi. Var ótrúlega fínn miðill fyrir nokkrum árum en núna er farið að bera ógurlega mikið á aulavillum sem eiga ekki að sjást þar. |
Author: | Vargur [ Sat 07. Jul 2007 14:15 ] |
Post subject: | |
Talandi um Mbl.is þá er bloggið sem birtist með fréttunum farið að fara hrikalega í taugarnar á mér, þar bulla misvitrir sófadómarar um allt sem þeir hafa ekkert vit á og er hreinlega orðið pirrandi að lesa bullið frá þessu liði. |
Author: | zazou [ Sat 07. Jul 2007 18:03 ] |
Post subject: | |
Dúfan wrote: Talandi um Mbl.is þá er bloggið sem birtist með fréttunum farið að fara hrikalega í taugarnar á mér, þar bulla misvitrir sófadómarar um allt sem þeir hafa ekkert vit á og er hreinlega orðið pirrandi að lesa bullið frá þessu liði.
Nákvæmlega! 90% af moggabloggurunum eru bara að henda inn 1-3 setninga kommentum sem eru 'voða' fyndnar, stundum bara 1-2 orð. Smáborgaralegt blog - zero innihald. ![]() |
Author: | IceDev [ Sat 07. Jul 2007 18:05 ] |
Post subject: | |
Af hverju ekki MBL bloggari með ZERO skoðanir? |
Author: | Vargur [ Sun 08. Jul 2007 18:54 ] |
Post subject: | |
IceDev wrote: Af hverju ekki MBL bloggari með ZERO skoðanir?
ha ha, snilld ! |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |