bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hækkanir verri en ég hélt! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22766 |
Page 1 of 2 |
Author: | ValliFudd [ Thu 21. Jun 2007 19:25 ] |
Post subject: | Hækkanir verri en ég hélt! |
Sekt fyrir 56 km hraða í 50 götu er 20 þúsund krónur! ![]() Sem betur fer ekki ekki mín sekt en maður sem ég þekki til... ![]() |
Author: | IceDev [ Thu 21. Jun 2007 19:39 ] |
Post subject: | |
Guð minn góður Hann hefur nú greinilega verið á ofsaakstri hann þessi, heilum 6-9 km yfir hraðatakmarki! Stöðvum svona hyski sem ætti ekki að vera með bílpróf ![]() |
Author: | basten [ Thu 21. Jun 2007 19:43 ] |
Post subject: | |
Þetta er orðið alltof ýkt!!! Menn ná ekki tilætluðum árangri með svona harðlínustefnu. Bitnar bara á meðal-Jóninum sem gleymir sér eitt augnablik á bílnum sínum. Held það ætti frekar að reyna eltast við þá sem eru að aka langt umfram hámarkshraða og einnig að einbeita sér að vegarköflum þar sem algengt er að umferðarslys eigi sér stað. |
Author: | Arnarf [ Thu 21. Jun 2007 19:53 ] |
Post subject: | |
En þessi hækkun sekta, þá er verið að tala um hámarkssektir. Eins og það stendur þarna: Quote: "Refsing við broti gegn þessi ákvæði er sekt allt að 20.000"
Eru þeir að beita hámarkssektum þá? Mun hann fá 20þús kr sekt? |
Author: | ValliFudd [ Thu 21. Jun 2007 19:53 ] |
Post subject: | |
Arnarf wrote: En þessi hækkun sekta, þá er verið að tala um hámarkssektir.
Eins og það stendur þarna: Quote: "Refsing við broti gegn þessi ákvæði er sekt allt að 20.000" Eru þeir að beita hámarkssektum þá? Mun hann fá 20þús kr sekt? Erum við þá ekki að tala um 20 þús en svo þennan 25% afslátt ef hann borgar strax? |
Author: | Arnarf [ Thu 21. Jun 2007 19:56 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Arnarf wrote: En þessi hækkun sekta, þá er verið að tala um hámarkssektir. Eins og það stendur þarna: Quote: "Refsing við broti gegn þessi ákvæði er sekt allt að 20.000" Eru þeir að beita hámarkssektum þá? Mun hann fá 20þús kr sekt? Erum við þá ekki að tala um 20 þús en svo þennan 25% afslátt ef hann borgar strax? Jú ef þeir beita þessari hámarkssekt, er bara spá hvort þeir séu að því |
Author: | X-ray [ Thu 21. Jun 2007 19:59 ] |
Post subject: | |
15000þúsund fyrir að vera tekinn á 56(59) í 50 er nú samt einginn brandari sko ![]() Þetta er komið út í vitleysu ![]() Do I smell a grid-lock comming up... ![]() |
Author: | IvanAnders [ Thu 21. Jun 2007 20:33 ] |
Post subject: | |
basten wrote: Þetta er orðið alltof ýkt!!!
Menn ná ekki tilætluðum árangri með svona harðlínustefnu. Bitnar bara á meðal-Jóninum sem gleymir sér eitt augnablik á bílnum sínum. Held það ætti frekar að reyna eltast við þá sem eru að aka langt umfram hámarkshraða og einnig að einbeita sér að vegarköflum þar sem algengt er að umferðarslys eigi sér stað. Svo hjartanlega sammála þér! Sektir mega vera þaklausar við rosalegum ofsaakstri mín vegna, en þetta er bara BULL! ![]() Á að vera mikið meira bil á milli of hraðs aksturs og svo ofsaaksturs að mínu mati! |
Author: | iar [ Thu 21. Jun 2007 22:56 ] |
Post subject: | |
Þeir vísa í 37. gr. og samkvæmt henni ætti þetta að vera 5þ: http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... enDocument (hækkunin núna fyrr á árinu) Nema þeir séu kannski líka að klína 36. gr. á þetta sem segir: 1. – 3. mgr.: Ökuhraði eigi miðaður við aðstæður 15.000 http://www.reglugerd.is/interpro/dkm/We ... enDocument (reglugerð um sektir, fyrir breytingarnar á gr. 37 hér fyrir ofan) Þá myndi upphæðin stemma en það er ekkert tekið fram í þessu sem þú póstaðir um gr. 36. Skrítið.. |
Author: | Þórir [ Thu 21. Jun 2007 23:00 ] |
Post subject: | |
Sæll. Þarna er verið að vísa í grein sem segir til um að eiganda beri að segja frá því hver ók bílnum, en brot á þeirri grein varði allt að 20.000 kr. Þarna er í raun verið að leita að þeim sem ók og sá sem á bílinn skyldugur til að segja frá því. Kv |
Author: | iar [ Thu 21. Jun 2007 23:08 ] |
Post subject: | |
Þórir wrote: Sæll.
Þarna er verið að vísa í grein sem segir til um að eiganda beri að segja frá því hver ók bílnum, en brot á þeirri grein varði allt að 20.000 kr. Hraðabrotið er annað og sú tala er annars staðar í sektaboðinu. Ah ![]() Nú er þetta farið að meika sens. 58. gr. Eiganda (umráðamanni) ökutækis er skylt, þegar lögreglan krefst þess, að gera grein fyrir, hver hafi stjórnað ökutækinu á tilteknum tíma. og sektaruppl.: 58. gr. Upplýsingaskylda o.fl. 1. mgr.: Eigandi/umráðamaður neitar að gera grein fyrir því hver hafi stjórnað ökutæki 20.000 Takk fyrir þetta Þórir. ![]() |
Author: | Lindemann [ Thu 21. Jun 2007 23:18 ] |
Post subject: | |
En er eiganda skylt að vita hver ók bílnum? Ef margir hafa afnot af bílnum, þá gæti verið erfitt að muna/vita hver var á honum akkúrat á þessum tíma á þessum stað. |
Author: | bjahja [ Fri 22. Jun 2007 00:24 ] |
Post subject: | |
Kjánalegt samt, er það ekki í lögum að maður þurfi ekki að segja neitt sem gerir sjálfan sig sakhæfan? |
Author: | Danni [ Fri 22. Jun 2007 09:39 ] |
Post subject: | |
Lindemann wrote: En er eiganda skylt að vita hver ók bílnum?
Ef margir hafa afnot af bílnum, þá gæti verið erfitt að muna/vita hver var á honum akkúrat á þessum tíma á þessum stað. Ef það ert til mynd af bílnum og ökumanninum þá hlýtur eigandinn að geta séð hana og þekkt ökumanninn. En ef eigandi getur ekki greint frá ökumanni verður hann þá ekki bara að taka sektina að sér? Auðvelt að misnota þetta t.d. ef bíll er á sölu og opinn fyrir reynsluakstri. |
Author: | A.H. [ Fri 22. Jun 2007 11:25 ] |
Post subject: | |
Ég tel líkur á því að ef eiganda bifreiðarinnar verði ekki refsað, á grundvelli reglugerðarákvæðisins sem Þórir vísar í, þrátt fyrir að eigandinn muni ekki greina frá ökumanni á þessum tíma, ef aðstaðan er sú að eigandi sendir lögreglu yfirlýsingu um að honum sé ekki kunnugt um ökumann (hvort sem það er satt eður ei). Rökin eru eftirfarandi: Reglugerðarákvæðið sem Þórir vísar í er svohljóðandi: "1. mgr.: Eigandi/umráðamaður neitar að gera grein fyrir því hver hafi stjórnað ökutæki - 20.000" Ég feitletra orðið "neitar". Þarna má hugsanlega færa rök fyrir því að ef eigandi neitar ekki að greina frá ökumanni, heldur segist ekki vita það þá eigi ákvæðið ekki við. Í refsirétti gildir auðvitað sú meginregla að allan vafa beri að telja sakborningi í hag. Óljóst orðalag er því líklega túlkað sakborningi í hag. Þetta gæti reyndar reynst rangt hjá mér. Ég er almennt á þeirri skoðun að menn sem eru ökuníðingar eigi að taka út sína refsingu. Hins vegar tel ég það vægast sagt undarlegt að senda einstaklingi sekt vegna þess að ekið var á 56 km/klst í 50-götu ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |