bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Kvartmílukeppni 23. Júní - skráning!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22733
Page 1 of 1

Author:  ValliFudd [ Tue 19. Jun 2007 17:35 ]
Post subject:  Kvartmílukeppni 23. Júní - skráning!

Nú er komið að því!
Kvartmílukeppni verður haldin laugardaginn 23. Júní en varadagur er sunnudagurinn 24. Júní..


Hægt er að skrá sig í hana á netfang vallifudd@msn.com , einkapósti hér á kvartmila.is spjallinu eða síma 8997110 á milli 20 og 22 miðvikudagskvöldið 20. Júní og fimmtudagskvöldið 21. Júní.
Það sem þarf að koma skýrt fram er nafn, kennitala, heimilisfang, tæki, símanúmer og flokkur sem keppa skal í.
Mail og einkapóstur er mikið þægilegra en sími.
Keppnisgjald er 2500 kr.

Skráningu líkur á föstudagskvöld kl. 22:00, semsagt hægt að skrá sig á æfingunni 8)

Keppnistæki sem ekki eru á skrá verða að framvísa öryggisskoðunarvottorði frá Aðalskoðun þar sem Kvartmíluklúbburinn er með samning um að prófað verði bremsur og stýrisgangur. Þeir sem búa í sveitinni geta samið við viðkomandi skoðunarstöðvar um bremsu og stýristest.

Þeir keppendur sem eru með bíla sína á númerum og tryggða skulu koma með tryggingaviðauka sem gildir á kvartmílubrautinni.

Þeir keppendur sem eru yngri en 18 ára þurfa að framvísa leyfi frá foreldrum eða forráðamönnum.


Image

Author:  ValliFudd [ Sat 23. Jun 2007 18:42 ]
Post subject: 

Jæja, konan mín mætti hún Árný.. á 330... og fékk bikar :lol:

Hún náði betri tímum en ég hef náð á þessum bíl á brautinni :shock: Hún á pottþétt eftir að keppa í öllum keppnum í sumar 8)

Author:  zazou [ Sat 23. Jun 2007 18:46 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
Jæja, konan mín mætti hún Árný.. á 330... og fékk bikar :lol:

Hún náði betri tímum en ég hef náð á þessum bíl á brautinni :shock: Hún á pottþétt eftir að keppa í öllum keppnum í sumar 8)

Til hamingju... en hvernig heldurðu að erfinginn verði? :lol:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/