bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Ford GT tjónaður https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22674 |
Page 1 of 3 |
Author: | zazou [ Thu 14. Jun 2007 17:54 ] |
Post subject: | Ford GT tjónaður |
Missti stjórn á 500 hestafla ofursportbíl sem endaði á umferðarskilti Ökumaður sem sat undir stýri Ford GT sportbíl missti stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bifreiðin endaði á umferðarskilti utanvegar. Ökumaðurinn, sem er starfsmaður Brimborgar sem á bifreiðina, var að ferja bílinn í þrif fyrir sýningu á bíladeginum sem verður haldinn 17. júní. Fram kemur á vef Brimborgar að sem betur fer hafi ekki orðið nein slys á fólki. Á vef Brimborgar segir jafnframt að sportbíllinn hafi verið fluttur hingað til lands í þeim tilgangi að beina sjónum ökumanna að þeirri ábyrgð sem þeir beri sem stjórnendur ökutækis í umferðinni. Brimborg hafi frá upphafi lagt áherslu á markmið sitt í þessu sambandi undir slagorðinu „Beislum kraftinn af ábyrgð“. „Brimborg hefur frá upphafi viðhaft mjög skýrar reglur um notkun Ford GT enda er hér um að ræða ofuröflugan og léttan sportbíl með yfir 500 hestafla vél, sem aka þarf með sérstakri varúð. Í umræddri ökuferð var ekki um hraðakstur að ræða heldur vankunnáttu á því gríðarlega afli sem bíllinn býr yfir, og vanmat á þeim aðstæðum sem fyrir hendi voru. Að þessu sinni var krafturinn því miður ekki beislaður af ábyrgð – með öðrum orðum nægilegri varfærni sem nauðsynleg er þegar um bíl er að ræða sem maður þekkir ekki og er að aka í fyrsta sinn. Ökumanni bílsins, starfsmanni Brimborgar, hefur þegar verið boðin áfallahjálp,“ segir á vef Brimborgar. http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1274914 http://www.brimborg.is/Lestu-frettirnar/~/NewsID/772 |
Author: | Aron Andrew [ Thu 14. Jun 2007 18:06 ] |
Post subject: | |
Wúps ![]() |
Author: | Kristján Einar [ Thu 14. Jun 2007 18:09 ] |
Post subject: | |
SVEKK!!! |
Author: | JonHrafn [ Thu 14. Jun 2007 18:29 ] |
Post subject: | |
Honestly ... það er meira svekk að sjá e39 m5 tjónaðan. Þessi fimmhundruðhestaflaofursportbíll hefur aldrei kveikt í mér ![]() |
Author: | zazou [ Thu 14. Jun 2007 19:04 ] |
Post subject: | |
JonHrafn wrote: Honestly ... það er meira svekk að sjá e39 m5 tjónaðan. Þessi fimmhundruðhestaflaofursportbíll hefur aldrei kveikt í mér
![]() Hmm, þessi er ca 50-70 sinnum sjaldgæfari hérlendis... ![]() Þessi bíll kveikir reyndar ekki í mér heldur en takið þó eftir einu. Hér var frétt þar sem BMW átti ekki í hlut og tegundin var samt nefnd! Leiðindar atvik engu að síður. |
Author: | iar [ Thu 14. Jun 2007 19:16 ] |
Post subject: | |
zazou wrote: Þessi bíll kveikir reyndar ekki í mér heldur en takið þó eftir einu. Hér var frétt þar sem BMW átti ekki í hlut og tegundin var samt nefnd!
Ætlaði einmitt að vekja athygli á þessu! ![]() Greinilega bara BMW og aðrir ofursportbílar sem tekur að nefna... ![]() |
Author: | zazou [ Thu 14. Jun 2007 19:18 ] |
Post subject: | |
iar wrote: zazou wrote: Þessi bíll kveikir reyndar ekki í mér heldur en takið þó eftir einu. Hér var frétt þar sem BMW átti ekki í hlut og tegundin var samt nefnd! Ætlaði einmitt að vekja athygli á þessu! ![]() Greinilega bara BMW og aðrir ofursportbílar sem tekur að nefna... ![]() Þá höfum við viðmið ![]() |
Author: | Svenni Tiger [ Thu 14. Jun 2007 19:46 ] |
Post subject: | |
hann er 550höhö og 3.6 í 100... finnst það bara bístna sprækt... ég fór btw til mónakó í síðustu viku og þar voru allir ofursportbílar sem hægt var að hugsa sér eins og bugatti veyron, ferrari enzo, slr mclaren, lamborghini diablo,murchielago,gallardo, og allt sem þið getið ýmindað ykkur ásamt fult af m6 og porsche 911 túrbo og ég verð að segja eins og er að þá tók maður eða horfði varla á kraftmesstu og flottustu bimmana, bensana og porsche-ana útaf öllum þessum lamboum, ferrarium og öllu þessu ofurdóti... ![]() ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Einsii [ Thu 14. Jun 2007 20:08 ] |
Post subject: | |
Samt skrítið að seigja að hann hafi verið að ferja hann í þvott.. því ég sá bílinn inn á Brimborg fyrr í dag, eitthvað seinna keyrir hann útúr bænum og svo alls ekki löngu seinna sé ég hann koma til baka sömu leið á kerri ![]() En já í þessa átt útúr bænum er næsta þvottaaðstaða á Dalvík ![]() |
Author: | fart [ Thu 14. Jun 2007 20:09 ] |
Post subject: | |
Þú ert drekinn... ha? hann kallaði mig bara dreka???!!!?? Rosalega fúlt að heyra því að ég veit að Agli var annt um bílinn, en þetta er alveg dæmalaust dæmigert. Það halda allir að þeir verði ofurbílstjórar við að setjast undir stýri á ofursportbíl. Ég held að Ísland eigi HEIMSMET í tjónuðum ofurbílum miðað við höfðatölu og innflutta ofurbíla. Benni og Widowmakerinn (sá eini sem hefur komið hingað) Carrera GT (einn af 2) Ford GT (eini) Carrera 4S 997 maður gæti haldið lengi áfram... Segir það manni eitthvað.. kanski eru vegirnir ekki nógu góðir, kanski er ekki nógu heitt, kanski eitthvað annað. Hrikalega leiðinlegt að heyra þetta með Fordinn... Greyjið ökumaðurinn... stundum er betja að hemja sig í stað þess að reyna að búa til góða sögu og enda í blöðunum. |
Author: | bebecar [ Thu 14. Jun 2007 20:42 ] |
Post subject: | |
Þetta er leiðinda atvik en engin slasaðist þannig að nú er bara að laga hann og nýta sér svo þetta til að prómóta áfram "beisla kraftinn af ábyrgð"... Efast ekki um að Egill tekur á þessu skynsamlega og heldur áfram að berjast fyrir öryggismálum. |
Author: | fart [ Thu 14. Jun 2007 20:43 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Þetta er leiðinda atvik en engin slasaðist þannig að nú er bara að laga hann og nýta sér svo þetta til að prómóta áfram "beisla kraftinn af ábyrgð"...
Efast ekki um að Egill tekur á þessu skynsamlega og heldur áfram að berjast fyrir öryggismálum. Vel mælt Ingvar.. auðvitað er þetta rétt hjá þér. |
Author: | Svenni Tiger [ Thu 14. Jun 2007 20:46 ] |
Post subject: | |
fart wrote: Þú ert drekinn... ha? hann kallaði mig bara dreka???!!!??
Rosalega fúlt að heyra því að ég veit að Agli var annt um bílinn, en þetta er alveg dæmalaust dæmigert. Það halda allir að þeir verði ofurbílstjórar við að setjast undir stýri á ofursportbíl. Ég held að Ísland eigi HEIMSMET í tjónuðum ofurbílum miðað við höfðatölu og innflutta ofurbíla. Benni og Widowmakerinn (sá eini sem hefur komið hingað) Carrera GT (einn af 2) Ford GT (eini) Carrera 4S 997 maður gæti haldið lengi áfram... Segir það manni eitthvað.. kanski eru vegirnir ekki nógu góðir, kanski er ekki nógu heitt, kanski eitthvað annað. Hrikalega leiðinlegt að heyra þetta með Fordinn... Greyjið ökumaðurinn... stundum er betja að hemja sig í stað þess að reyna að búa til góða sögu og enda í blöðunum. já íslenskir vegir ekki fyrir ofursportbíla |
Author: | bebecar [ Thu 14. Jun 2007 21:02 ] |
Post subject: | |
Annars finnst mér Ford GT virkilega ljúfur bíll og meira einhvern veginn "real life" en margt eksótískara - og auðvitað er mun meiri eftirsjá í honum en nokkrum E39 M5 (þeir eiga þó alltaf framhaldslíf ![]() |
Author: | Svenni Tiger [ Thu 14. Jun 2007 21:08 ] |
Post subject: | |
og milljón sinnum dýrara a gera við hann |
Page 1 of 3 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |