bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Hjálp ! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22664 |
Page 1 of 1 |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 14. Jun 2007 01:06 ] |
Post subject: | Hjálp ! |
á einhver 17 tommu felgur á lausu sem ég get fengið lánaðar til að komast norður.. ég er á ónýtum dekkjum á 15 tommunum og á 17 tommu dekk.. felgurnar mínar eiga að koma á í seinasta lagi á morgun.. en ef það bregst þá væri fínt ef einhver gæti lánað mér þær bara yfir helgi ![]() ég er með 225/45ZR17 dekk og þetta fer undir þrist.. fyrirfram þökk Aron Friðrik |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 14. Jun 2007 14:55 ] |
Post subject: | |
jæja.. getur einhver bara lanað mér felgur á dekkjum.. mega vera ljótar og allt það.. þurfa bara að halda lofti og vera á góðum dekkjum ![]() |
Author: | gstuning [ Thu 14. Jun 2007 14:57 ] |
Post subject: | |
farðu og kauptu bara dekk |
Author: | Jón Ragnar [ Thu 14. Jun 2007 15:07 ] |
Post subject: | |
Nákvæmlega! 17" dekk eru ekkert dýr |
Author: | Angelic0- [ Thu 14. Jun 2007 15:19 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: Nákvæmlega!
17" dekk eru ekkert dýr I þokkabót vantar honum 15"... Þau kosta klink... farðu og talaðu við stjána í sólningu.. ég skal hringja í hann og biðja hann um að taka vel á móti þér... hann ætti að eiga eitthvað notað handa þér ![]() |
Author: | JonFreyr [ Thu 14. Jun 2007 15:23 ] |
Post subject: | hehe |
Ég veit um M5 á glænýjum dekkjum sem fæst fyrir slikk ![]() |
Author: | Hannsi [ Thu 14. Jun 2007 15:48 ] |
Post subject: | |
Jón Ragnar wrote: Nákvæmlega!
17" dekk eru ekkert dýr ekki allir sem hafa efni á að fara norður og kaupa sér dekk ![]() en ég fatta ekki hvað þið eruð að röfla með dekk því hann er að tala um að hann eigi dekk en er að bíða eftir felgunum ![]() |
Author: | Svezel [ Thu 14. Jun 2007 15:56 ] |
Post subject: | |
dekk á 15" felgurnar væntanlega ![]() |
Author: | Hannsi [ Thu 14. Jun 2007 16:11 ] |
Post subject: | |
Svezel wrote: dekk á 15" felgurnar væntanlega ![]() Jón Ragnar wrote: Nákvæmlega!
17" dekk eru ekkert dýr ![]() |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 14. Jun 2007 16:13 ] |
Post subject: | |
ég á ekki pening í 15 tommu dekk eins og er.. ég á 17 tommu dekk og vantar bara að fá andskotans felgurnar heim.. helvítis grautarhausinn lofaði að þær væri komnar í seinasta lagi í dag ![]() |
Author: | IceDev [ Thu 14. Jun 2007 16:16 ] |
Post subject: | |
Aldrei treysta á neitt sem þér hlakkar til að fá... Það mun alltaf skeika um 1-2 dag, það hefur verið reynsla mín ![]() |
Author: | Angelic0- [ Thu 14. Jun 2007 16:27 ] |
Post subject: | |
aronisonfire wrote: ég á ekki pening í 15 tommu dekk eins og er.. ég á 17 tommu dekk og vantar bara að fá andskotans felgurnar heim.. helvítis grautarhausinn lofaði að þær væri komnar í seinasta lagi í dag
![]() Róaðu þig aðeins Aron, ég er að bjóða þér að komast í 15" dekk sem að þú gætir farið norður á. |
Author: | Aron Fridrik [ Thu 14. Jun 2007 16:41 ] |
Post subject: | |
jey var að hringja út og komast að því að hann sendi þær með skipi þrátt fyrir að hafa sent mér email um að hann hafi sent þær með flugi.. þannig að þær eru ekkert að koma í bráð.. kana djöfull.. |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |