bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Krúser Bílasýning um helgina!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22606
Page 1 of 1

Author:  Moli [ Sun 10. Jun 2007 03:01 ]
Post subject:  Krúser Bílasýning um helgina!!

Í tilefni af eins árs afmæli Bílaklúbbsins Krúser, ætlar klúbburinn að halda veglega sýningu nk. helgi, eða dagana 9-10 Júní.

Sýningin verður haldin við Smábátahöfnina í Hafnarfirði í stóru 2000 m2 húsi að Fornubúðum 3 (við hliðina á húsnæði Mest)

Opnunartími sýningarinnar er sem segir:

Laugardagur frá 10:00-20:00
Sunnudagur frá 10:00-18:00.


Á sýningunni verða einnig nokkrir fornbílar til sölu.

Taka skal fram að aðgangur á sýninguna er ÓKEYPIS!

Takið nú góða skapið út úr skápnum, skiljið fýluna eftir heima og fjölmennið á glæsilega Bílasýningu nk. helgi!

Image

Hefst kl. 10 í fyrramálið, það eru 82 bílar á svæðinu! 8) Image

Einnig verður þarna að leika listir fyrir utan, nýinnfluttur "lowrider" ´72 Oldsmobile Cutlass, hreint magnað tæki! :lol:

Video hérna -->

Að gefnu tilefni og fyrir hönd Krúser langar mig að biðja þá sem taka myndir af sýningunni að setja þær myndir inn á netið EFTIR að sýningunni er lokið! 8)

Image
Image


Kveðja
Krúser hópurinn
Bíldshöfða 18.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/