bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Demparar: Monroe, KYB eða Sachs?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22565
Page 1 of 1

Author:  srr [ Fri 08. Jun 2007 09:48 ]
Post subject:  Demparar: Monroe, KYB eða Sachs?

Sælir,

Ég þarf að versla mér dempara að framan í Mözduna mína.
Hvaða tegundum mæli þið með.

Ég hef um að velja
Monroe frá Bílanaust (9.900kr /stk)
KYB frá Stillingu (12.990kr /stk)
Sachs frá Fálkanum (9.749kr /stk)
Svo þori ég ekki að spyrja Íbba um verð á original í Ræsir :lol:, minnir að það sé um 16.000 kr /stk

Hvað myndu þið velja af þessum möguleikum ?

kv, Skúli

Author:  gstuning [ Fri 08. Jun 2007 10:18 ]
Post subject: 

Sachs af þessum möguleikum

Author:  jens [ Fri 08. Jun 2007 11:04 ]
Post subject: 

Ekki spurning.

Author:  srr [ Fri 08. Jun 2007 11:24 ]
Post subject: 

Ég er ekki endilega að horfa á verðin, þið eru þá að meina Sachs út af gæðum væntanlega?

Author:  gstuning [ Fri 08. Jun 2007 11:36 ]
Post subject: 

srr wrote:
Ég er ekki endilega að horfa á verðin, þið eru þá að meina Sachs út af gæðum væntanlega?


Jebb.
Sachs býr til oem dót KYB og Monroe ekki af því sem ég veit,
þannig að þeir eru ódýrarri vegna þess að þeir framleiða mikið meira magn og eru með betri gæði vegna þess að OEM kröfur eru gífurlegar

Author:  Angelic0- [ Fri 08. Jun 2007 11:52 ]
Post subject: 

ég hef prófað Monroe, ég keypti þannig í Sunny GTi sem að ég átti (og Gunni man eftir) og þeir eru flottir..

Author:  gstuning [ Fri 08. Jun 2007 13:01 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
ég hef prófað Monroe, ég keypti þannig í Sunny GTi sem að ég átti (og Gunni man eftir) og þeir eru flottir..


ég hef prufað monroe og það er rusl að mínu mati, ekkert betri enn eld gamlir stock demparar

Author:  Angelic0- [ Fri 08. Jun 2007 14:04 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
Angelic0- wrote:
ég hef prófað Monroe, ég keypti þannig í Sunny GTi sem að ég átti (og Gunni man eftir) og þeir eru flottir..


ég hef prufað monroe og það er rusl að mínu mati, ekkert betri enn eld gamlir stock demparar


Jæja, þá er SACHS málið, það er OEM quality !

Author:  íbbi_ [ Fri 08. Jun 2007 19:40 ]
Post subject: 

ég get líka eflaust útvegað Boge dempara (boge og sachs eru sama) á einhevrju svipuðu verði,

sachs eru gífurlega góðir demparar

Author:  gunnar [ Fri 08. Jun 2007 21:56 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
An

gelic0- wrote:
ég hef prófað Monroe, ég keypti þannig í Sunny GTi sem að ég átti (og Gunni man eftir) og þeir eru flottir..


ég hef prufað monroe og það er rusl að mínu mati, ekkert betri enn eld gamlir stock demparar


Get vottað þetta, stútaði monroe dempurum í súkkanum hjá mér eftir eitt stökk, leiðindardemparar... En þeir kostuðu nú bara 2000 kall stykkið á brunaútsölu hjá bílanaust.. tvo pör :lol:

Author:  slapi [ Sun 10. Jun 2007 16:46 ]
Post subject: 

gstuning wrote:
srr wrote:
Ég er ekki endilega að horfa á verðin, þið eru þá að meina Sachs út af gæðum væntanlega?


Jebb.
Sachs býr til oem dót KYB og Monroe ekki af því sem ég veit,
þannig að þeir eru ódýrarri vegna þess að þeir framleiða mikið meira magn og eru með betri gæði vegna þess að OEM kröfur eru gífurlegar

Ég hef séð OEM dempara frá KYB ég bara man ekkí hvaða bíltegund það var en allaveganna af þessu þrennu myndi ég velja SACHS.
Enn það er skrítið með það að með eins og t.d. OEM BMW SACHS dempari sem þú kaupir frá umboði eru betri en SACHS dempari sem að þú kaupir niðrí Fálka.
Skrítið mál , hef rekið mig á þetta nokkrum sinnum.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/