http://mbl.is/mm/sport/frett.html?nid=1275278
Það verður að teljast undraverður árangur hjá BMW F1 að ná þessari ráspólsstöðu í USA.
Lið eins og OJ(ota) sem hafa verið helmingi lengur í F1 en BMW eru bara skilin eftir í CO útblæstri og ryki. Þeir hafa eytt mikð meiri penginum en BMW í uppbyggingu síns liðs þannig að það er ekki af ástæðulausu sem BMW eru og þykja góðir akstursbílar (og ekki skemmir útlitið fyrir).
Þeir eru búnir að draga rassrauðu Fiat bílana uppi eins og stendur. Þetta kemur auðvitað til með að auka söluna á BMW án nokkurs vafa annars væru bílaframleiðendur ekki í þessu. Renault sáu td. töluverða söluaukningu þegar þeir fóru að skila árangri í F1.
Við skulum bara vona að BMW AG falli ekki í sama pitt og félagar þeirra frá Stuttgart það er, að einblína um of á sölutölur og gleyma fyrir hvað þeir standa fyrir. Með þessum orðum vitna ég í orð eins af strjórnarmönnum Dimler Chrisler þar sem hann sagði að það sem mess hrjáði Benzinn í dag væri að þeir hefðu hætt að hugsa um merkið, áræðanleikann og afrleiðina heldur einblínt um of á hagkvæmni og fjölda seldra bíla.
Húrra fyrir BMW
Ps. hverjum langar í bíl sem ber sama merki og vörubílar og strætó
bara smá hroki
