bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Hvað kaustu???
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=22046
Page 1 of 4

Author:  basten [ Sat 12. May 2007 10:24 ]
Post subject:  Hvað kaustu???

Svona í tilefni kosninganna :wink:

Author:  Kristjan [ Sat 12. May 2007 11:31 ]
Post subject: 

Ég kaus D.

Ég fór í gær í laugardalshöll og fékk flokksmann til að koma og skutla mér því að ég var kominn í bjórinn. Helvíti fín þjónusta.

Var samt mikið að hugsa um að fá samfylkinguna til að skutla mér og láta þá svo sjá um að koma atkvæðinu til skila. En ég hafði það ekki í mér.

Author:  lulex [ Sat 12. May 2007 11:34 ]
Post subject: 

X-S :oops:

Author:  basten [ Sat 12. May 2007 12:50 ]
Post subject: 

lulex wrote:
X-S :oops:


Hvað er þetta? Menn þurfa ekkert að skammast sín fyrir það sem þeir kusu!
Einmitt um að gera að hafa skoðun á þessum hlutum.

Author:  StrongBad [ Sat 12. May 2007 13:34 ]
Post subject: 

Samfylkinguna klárt mál. Vil sjá sameiningu vinstri aflanna á alþingi og svo er Árni Páll Árnason verðugur frambjóðandi og í baráttusæti í kraganum.

X-S

Author:  KFC [ Sat 12. May 2007 13:53 ]
Post subject: 

X-S

Author:  basten [ Sat 12. May 2007 14:20 ]
Post subject: 

Ég kaus X-D.
Vil sjá D-lista og S-lista saman í stjórn, það yrði sterk stjórn sem gæti komið erfiðum málum í gegn.

Er ekki hrifinn af því að fá samsteypustjórn S-lista, V-lista og F-lista. Held þar að auki að sú stjórn yrði ansi brothætt þar sem hún yrði líka með mjög nauman meirihluta á þingi.

Get hreinlega ekki hugsað mér að fá menn úr V-lista eða F-lista í ríkisstjórn.

.......eeeeen það er bara mín skoðun :wink:

Author:  Kwóti [ Sat 12. May 2007 14:34 ]
Post subject: 

næ ekki að kjósa, en hefði án efa kosið xB

Author:  arnibjorn [ Sat 12. May 2007 14:36 ]
Post subject: 

Ég kaus Geir, engan annan :lol:

Author:  Bjössi [ Sat 12. May 2007 14:44 ]
Post subject: 

XD, aldrei vafi :)

Author:  Aron Fridrik [ Sat 12. May 2007 15:05 ]
Post subject: 

XD ekki spurning..

Author:  srr [ Sat 12. May 2007 15:46 ]
Post subject: 

X-S
Samfylkingin á mínu heimili.

Author:  Svíþjóð. [ Sat 12. May 2007 17:03 ]
Post subject: 

Félaga Steingrím Joð.

Hef haldið tryggð við V og mun koma til með að halda mig þar áfram, tel vera kominn tíma á að hallast þyngra í umhverfismál...
.........Segi ég og fer og tek 90l á tólf cylindra bílinn minn :oops:

Author:  Jónas [ Sat 12. May 2007 17:04 ]
Post subject: 

Gott að flestir á Kraftinum kjósa rétt 8)

X-D í minn kassa!

Ég einmitt fékk martröð um daginn... þá var vinstri stjórn

Author:  zazou [ Sat 12. May 2007 17:11 ]
Post subject: 

Svíþjóð. wrote:
Félaga Steingrím Joð.

Hef haldið tryggð við V og mun koma til með að halda mig þar áfram, tel vera kominn tíma á að hallast þyngra í umhverfismál...
.........Segi ég og fer og tek 90l á tólf cylindra bílinn minn :oops:

Farðu þá að undirbúa þig að kveðja hann :lol:

D+ einhver hækja 4tw.

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/