bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
FX/FOREX viðskipti á netinu https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=21800 |
Page 1 of 1 |
Author: | JOGA [ Mon 30. Apr 2007 15:00 ] |
Post subject: | FX/FOREX viðskipti á netinu |
Einhver hér sem stundar þetta sem hobbý eða að atvinnu? Finnst þetta virkilega spennandi og er eitthvað að kynna mér þetta. Var að vona að einhver gæti mælt með góðum hagstæðum "banka" sem er ekki með mjög hátt "minumum". Ef aðrir eru forvitnir og vilja lesa þá má finna uppl. hér |
Author: | Zyklus [ Mon 30. Apr 2007 17:59 ] |
Post subject: | |
Hef bara verið að leika mér með demo account. Þetta er ansi skemmtilegt, það sem gerir þetta svona spennandi er hvað það þetta er fljótandi markaður, áður en þú veist af er gróði kominn í tap eða öfugt. Fljótt að gerast. Er með minn demo account hjá http://www.oanda.com. Hef einnig prófað að vera með demo account hjá http://www.fxcm.com. Gallinn við hann er að hann endist bara í 30 daga. Hef lengi verið að spá í að prófa þetta með alvöru pening en ekki enn látið verða úr því. Maður fer kannski að drífa í því. En það er allavega ekkert vit í að fara í þetta með alvöru pening án þess að hafa prófað demo account í einhvern tíma. |
Author: | JOGA [ Mon 30. Apr 2007 22:57 ] |
Post subject: | |
Zyklus wrote: Hef bara verið að leika mér með demo account. Þetta er ansi skemmtilegt, það sem gerir þetta svona spennandi er hvað það þetta er fljótandi markaður, áður en þú veist af er gróði kominn í tap eða öfugt. Fljótt að gerast.
Er með minn demo account hjá http://www.oanda.com. Hef einnig prófað að vera með demo account hjá http://www.fxcm.com. Gallinn við hann er að hann endist bara í 30 daga. Hef lengi verið að spá í að prófa þetta með alvöru pening en ekki enn látið verða úr því. Maður fer kannski að drífa í því. En það er allavega ekkert vit í að fara í þetta með alvöru pening án þess að hafa prófað demo account í einhvern tíma. Ég hef einmitt verið með demo account hjá FXCM.com það var mjög fróðlegt. Ég er einnig að fara í framhaldsnám sem kemur inn á þetta að einhverju leiti. Er svo að velja mér bækur á netinu núna til að lesa mig til. Hef ekki enn prófað með pening en það fer að líða að því. Vill reyna að lágmarka áhættu samt svo það borgar sig að lesa sig vel til fyrst. Endilega láttu mig vita hvernig gengur hjá þegar þú ákveður að prófa ![]() Skólafélagi minn gerði þetta á meðan hann var í námi með mjög góðum árangri en það má taka fram að hann las sig til og gerði þetta virkilega fagmannlega. |
Author: | Zyklus [ Tue 01. May 2007 00:43 ] |
Post subject: | |
Hérna er fín síða fyrir byrjendur. Fer í gegnum öll grunn atriðin. Annars er þetta mjög mikið bara sálfræði. T.d. eru algeng mistök hjá mörgum að þegar þeir eru komnir í tap að þá losa þeir sig við stöðurnar alltof seint í stað þess að sætta sig við tapið og lágmarka það. Hvað ertu annars að læra? Annars varðandi það að setja alvöru pening í þetta, er ekki orðið eitthvað vesen fyrir erlenda ríkisborgara að stofna reikninga í BNA (út af öllu þessu terrorista dæmi)? T.d. á Oanda þá þarf maður held ég að stofna reikning í BNA og svo þarf að senda ljósrit af skilríkjum. Var ekkert vesen fyrir skólafélaga þinn að setja pening í þetta? |
Author: | JOGA [ Tue 01. May 2007 14:18 ] |
Post subject: | |
Zyklus wrote: Hvað ertu annars að læra? Annars varðandi það að setja alvöru pening í þetta, er ekki orðið eitthvað vesen fyrir erlenda ríkisborgara að stofna reikninga í BNA (út af öllu þessu terrorista dæmi)? T.d. á Oanda þá þarf maður held ég að stofna reikning í BNA og svo þarf að senda ljósrit af skilríkjum. Var ekkert vesen fyrir skólafélaga þinn að setja pening í þetta? Ég er menntaður viðskiptafræðingur og er að fara í framhaldsnám í haust í hagfræði eða alþjóðaviðskiptum. Er enn með báða möguleika opna. Annars virtist ekki vera mikið mál fyrir þennan skóla félaga minn að setja pening í þetta. Ég reyndar þekkti hann ekkert sérlega vel og veit ekki hvaða síðu hann notaði. Svo sýnist mér t.d. FXCM bjóða upp á Paypal þannig að þetta ætti ekkert að vera neitt svaka mál. Flyt svo til Skotlands í sumar og þar gæti ég hugsanlega kíkt á þetta með skoskum reikning. Þekki þetta með sálfræðina. Ég er með mjög lítið "spilafíknargen" í mér og á held ég ágætlega auðvelt með að hætta áður en stefnir í óefni. Takk fyrir linkinn. Ég kíki á þetta ![]() |
Page 1 of 1 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |