bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Bílar á erlendum númerum https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=21438 |
Page 1 of 2 |
Author: | Djofullinn [ Thu 12. Apr 2007 10:39 ] |
Post subject: | Bílar á erlendum númerum |
Spurning hvort einhver hafi kynnt sér þetta. Hvað má hafa bíl lengi á íslandi í einu á erlendum númerum? Miðað við það sem kom fram í öðrum þræði er það 1 ár í DK. Væntanlega eitthvað svipað hérna? En svo er það önnur pæling. Hvað gerist ef einhver annar en skráður eigandi bílsins er að keyra hann? Skiptir það einhverju máli? Málið er að ég væri til í að kaupa bíl til þess að eiga í DE og geyma hann mestan partinn hjá frænda mínum sem býr þar en myndi vilja geta tekið hann heim í einhverja mánuði af og til. Ennnnn frændi minn yrði að sjálfsögðu skráður fyrir honum í DE. Spurning hvort maður myndi lenda í einhverjum vandræðum ef maður yrði stoppaður hér heima. En síðan gæti að sjálfsögðu verið að bíllinn fengi ekki að koma inn í landið nema skráður eigandi væri með í för? |
Author: | gstuning [ Thu 12. Apr 2007 10:58 ] |
Post subject: | |
Tollurin wrote: Kristín: Góðan dag, get ég aðstoðað þig ?
gunnar: Já, takk, gunnar: I sambandi við að keyra um á bíl sem er með erlend númer gunnar: hver er hámarkstími sem það er leyfilegt áður enn hann þarf að fara aftur úr landi? Kristín: það er eitt ár þar til þarf að tollafgreiða, fyrst einn mánuður og svo endurnýja þjrjá mánuði í senn Kristín: þ.e. fyrst fær fólk leyfi í einn mánuð og svo endurnýjar það leyfið um þrjá mánuði í senn þar til árið er liðið gunnar: Ok, þarf maður að vera skráður eigandi að bílnum? Eða skiptir það kannski ekki máli, er að spyrja vegna þess að ef ég þekki einhvern í þýskalandi t.d sem er tilbúinn að lána mér bílinn sinn í þýskalandi og um evrópu hvort það væri stoppað mann þegar gunnar: maður kæmi til íslands gunnar: bílinn auðvitað skoðaður og með tryggingar frá sínu landi sem gilda um alla evrópu Kristín: augnablik Kristín: það er gert ráð fyrir að eigandi eða meðeigandi sé skráður fyrir bílnum er svarið sem ég fæ. gunnar: enn þarf hann að koma með til íslands? t.d ef ég myndi taka bílaleigubíl í danmörku og koma til íslands keyra um og fara svo til baka með norrænu, er það eitthvað öðruvísi enn bróðir minn í þýskalandi myndi lána mér bílinn sinn til þess sama? Kristín: augnablik, ert þú með e-mail sem ég get sent þér svarið á ? Kristín: það verður bara á eftir, smástund gunnar: gunnar@gstuning.net gunnar: mig vantar bara að vita hvort að eigandi þarf að vera með í för þegar maður er að koma á erlent skráðum bíl til íslands gunnar: ef bílinn er fullkomlega löglegur allstaðar í evrópu og maður ekki stoppaður þar ég er kominn hingað að reyna komast að þessu ![]() |
Author: | gstuning [ Thu 12. Apr 2007 11:53 ] |
Post subject: | |
tollur wrote: Sæll.
Varðandi ferðamannabíl. Við fundum ekki réttu gögnin akkúrat þegar spurningin kom upp. Biðjumst við velvirðingar á því. Samkvæmt nýjustu reglum um þessi mál er ekki lengur krafist þess að viðkomandi eigi bílinn en hafi hins vegar umráðarétt yfir honum, sem sýna getur þurft og eins að bíllinn sé tryggður hér fyrir viðkomandi ökumann, sem notar bílinn í eigin þágu. Venjan er sú að byrjunarleyfi er til mánaðar frá komu og endurnýjanlegt 3 mánuði í senn og allt að einu ári. Þetta er það helsta. Kv. Bjarni dugar þetta? |
Author: | Djofullinn [ Thu 12. Apr 2007 12:22 ] |
Post subject: | |
Össsss takk fyrir þetta ![]() Þetta er allavega það helsta. En hvernig á maður eiginlega að sýna fram á umráðarétt? Síðan ætti ekki að vera erfitt að tryggja bílinn hér fyrir ökumanninn. Þannig að þetta virðist alveg vera doable með smá pappírsvinnu. Þetta allavega víkkar töluvert hvaða bíla maður getur keypt þar sem maður þarf ekki að borga aðflutningsgjöldin ![]() |
Author: | gstuning [ Thu 12. Apr 2007 12:25 ] |
Post subject: | |
Gætir auðvitað verið skráður meðeigandi í þýskalandi, þá þarf ekkert svoleiðis, annars er það bara undirritað plag frá eigandanum, eins og við umsýslu á bílum eða öðrum samningum, Tryggingar ættu að vera einfalt mál, bara skoða hvað er til þarna í DE. spurning hvort að það þurfi eitthvað að tryggja einhvern sérstaklega eða ekki, veit að ég keypti 1mánaðar tryggingu þarna úti, hefði getað keyrt því hérna heima í mánuð frá dagsetningu tryggingarinnar, hún gildi fyrir alla evrópu. |
Author: | Djofullinn [ Thu 12. Apr 2007 12:37 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Gætir auðvitað verið skráður meðeigandi í þýskalandi, þá þarf ekkert svoleiðis, annars er það bara undirritað plag frá eigandanum, Ok kúl.
eins og við umsýslu á bílum eða öðrum samningum, Tryggingar ættu að vera einfalt mál, bara skoða hvað er til þarna í DE. spurning hvort að það þurfi eitthvað að tryggja einhvern sérstaklega eða ekki, veit að ég keypti 1mánaðar tryggingu þarna úti, hefði getað keyrt því hérna heima í mánuð frá dagsetningu tryggingarinnar, hún gildi fyrir alla evrópu. En hvernig er það, get ég sem er ekki með lögheimili í þýskalandi verið skráður meðeigandi á bíl á þýskum númerum? |
Author: | gstuning [ Thu 12. Apr 2007 13:08 ] |
Post subject: | |
Djofullinn wrote: gstuning wrote: Gætir auðvitað verið skráður meðeigandi í þýskalandi, þá þarf ekkert svoleiðis, annars er það bara undirritað plag frá eigandanum, Ok kúl. eins og við umsýslu á bílum eða öðrum samningum, Tryggingar ættu að vera einfalt mál, bara skoða hvað er til þarna í DE. spurning hvort að það þurfi eitthvað að tryggja einhvern sérstaklega eða ekki, veit að ég keypti 1mánaðar tryggingu þarna úti, hefði getað keyrt því hérna heima í mánuð frá dagsetningu tryggingarinnar, hún gildi fyrir alla evrópu. En hvernig er það, get ég sem er ekki með lögheimili í þýskalandi verið skráður meðeigandi á bíl á þýskum númerum? Spurning um að hringja í þýska utanríkisráðuneytið bara og spyrja þá útí það, held að maður þurfi þess ekki samt, |
Author: | Djofullinn [ Thu 12. Apr 2007 13:10 ] |
Post subject: | |
gstuning wrote: Djofullinn wrote: gstuning wrote: Gætir auðvitað verið skráður meðeigandi í þýskalandi, þá þarf ekkert svoleiðis, annars er það bara undirritað plag frá eigandanum, Ok kúl. eins og við umsýslu á bílum eða öðrum samningum, Tryggingar ættu að vera einfalt mál, bara skoða hvað er til þarna í DE. spurning hvort að það þurfi eitthvað að tryggja einhvern sérstaklega eða ekki, veit að ég keypti 1mánaðar tryggingu þarna úti, hefði getað keyrt því hérna heima í mánuð frá dagsetningu tryggingarinnar, hún gildi fyrir alla evrópu. En hvernig er það, get ég sem er ekki með lögheimili í þýskalandi verið skráður meðeigandi á bíl á þýskum númerum? Spurning um að hringja í þýska utanríkisráðuneytið bara og spyrja þá útí það, held að maður þurfi þess ekki samt, ![]() |
Author: | jonthor [ Thu 12. Apr 2007 15:24 ] |
Post subject: | |
Eins og ég minntist á annarsstaðar þá mátti ég vera með bílinn minn í Frakklandi eins lengi og ég var í námi. Ég var með minn bíl úti í 2 ár, ekkert mál. |
Author: | Bjarkih [ Thu 12. Apr 2007 19:09 ] |
Post subject: | |
Ég er enn með minn á sænskum númerum, EN ég má það ekki ef ég er með lögheimili hér á Íslandi. Ef maður er hér sem ferðamaður, með lögheimili erlendis þá má ekki lána öðrum bílinn hér, ökumaður verður s.s. að vera skráður fyrir honum. Varðandi tryggingar þá er það náttúrulega bara eitthvað sem tryggingafélagið í skráningarlandinu svarar. |
Author: | bebecar [ Thu 12. Apr 2007 20:20 ] |
Post subject: | |
Þetta er spennandi umræða... en ég held það þyrfti að spyrja nákvæmar því það er ekki alveg 100% víst að þessi sem varð fyrir svörum hjá tollinum hafi gert ráð fyrir að viðkomandi væri með lögheimili á Íslandi. Mér finnst t.d. hæpið að maður geti, með lögheimili á Íslandi ekið um á bílum með erlendum númeraplötum í svona langan tíma... ef það er hægt, þá er það auðvitað hið besta mál og bíður upp á mjög góð tækifæri! Semsagt, er ekki líklegast að tollurinn hafi hreinlega haldið að þú værir íslendingur búsettur erlendis? |
Author: | Bjarkih [ Thu 12. Apr 2007 20:27 ] |
Post subject: | |
Ef maður er með lögheimili á Íslandi þá getur maður ekki haft bílinn á erlendum númerum hér. Ég ætlaði að fá framlengingu á aksturheimildinni um daginn en fyrst ég er fluttur heim þá gekk það ekki upp. |
Author: | Gunni [ Thu 12. Apr 2007 21:17 ] |
Post subject: | |
bebecar wrote: Þetta er spennandi umræða... en ég held það þyrfti að spyrja nákvæmar því það er ekki alveg 100% víst að þessi sem varð fyrir svörum hjá tollinum hafi gert ráð fyrir að viðkomandi væri með lögheimili á Íslandi.
Mér finnst t.d. hæpið að maður geti, með lögheimili á Íslandi ekið um á bílum með erlendum númeraplötum í svona langan tíma... ef það er hægt, þá er það auðvitað hið besta mál og bíður upp á mjög góð tækifæri! Semsagt, er ekki líklegast að tollurinn hafi hreinlega haldið að þú værir íslendingur búsettur erlendis? Ég var einhvern tímann að grennslast fyrir um þetta hjá tollinum (ca. 1 - 1,5 ár síðan). Á þeim tíma var mér sagt að aðeins eigandi bifreiðarinnar eða nákominn ættingi (og maki að sjálfsögðu) mættu aka bifreiðinni hér á landi (bifreið á erlendum númerum). Einnig var mér sagt að ef lögreglan mundi stoppa bifreiðina og þessi skilyrði væru ekki uppfyllt þá væri einhver sekt sem ég man ekki hvað var há. Að því gefnu að þú þurfir að vera ríkisborgari eða með lögheimili erlendis til að skrá bílinn þar: þá var (eða er) ekki leyfilegt að kaupa bíl að utan (eins og ég held að flestir myndu nýta sér þetta), skrá hann á einhvern félaga þinn úti og keyra um á honum hérna í eitt ár án þess að borga aðflutningsgjöld. |
Author: | Djofullinn [ Thu 12. Apr 2007 21:53 ] |
Post subject: | |
En hvernig ætli það sé. Nú er ég með ítalskt og íslenskt ríkisfang, en lögheimili á íslandi. Varla er hægt að skrá bíl á sig á ítalíu nema vera með lögheimili þar? Eða hvað? Er búinn að senda sendiráðinu meil, verður forvitnilegt að sjá hverju þeir svara. |
Author: | Siggi H [ Fri 13. Apr 2007 00:12 ] |
Post subject: | |
skráiru hann þá ekki bara á frænda þinn og þú verður meðeigandi? held að þeim komi ekkert við hver meðeigandinn er. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |