bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Fyrsti apríl https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=21256 |
Page 1 of 2 |
Author: | siggir [ Sun 01. Apr 2007 21:18 ] |
Post subject: | Fyrsti apríl |
Jæja... Er einhver með góða sögu af aprílgabbi sem heppnaðist vel? Hljóp einhver apríl? Féll einhver fyrir aprílgöbbum fjölmiðlana? |
Author: | Bjarkih [ Sun 01. Apr 2007 21:24 ] |
Post subject: | |
Ferrari gabbið hjá Fart var það eina sem ég féll fyrir. |
Author: | bjahja [ Sun 01. Apr 2007 21:36 ] |
Post subject: | |
Ég var í bústað með vinum og einn fékk sent sms um að George W Bush hefði verið skotinn eldsnemma um morguninn. Við stukkum náttúrlega á fætur og fórum á textavarpið og mbl.is á símunum. Síðan föttuðum við að það var 1. apríl. Hlupum reyndar ekki mikið en kolféllum alveg fyrir þessu ![]() |
Author: | siggir [ Sun 01. Apr 2007 21:43 ] |
Post subject: | |
bjahja wrote: Ég var í bústað með vinum og einn fékk sent sms um að George W Bush hefði verið skotinn eldsnemma um morguninn. Við stukkum náttúrlega á fætur og fórum á textavarpið og mbl.is á símunum. Síðan föttuðum við að það var 1. apríl.
Hlupum reyndar ekki mikið en kolféllum alveg fyrir þessu ![]() Snilld... Ég ætlaði að vera ógurlega sniðugur. Fékk bílinn lánaðann hjá systur minni og hringdi svo heim og bað ömmu að segja henni að ég hefði keyrt út í á. En gamla var sko ekki til í það. Fannst það of svæsið ![]() |
Author: | arnibjorn [ Mon 02. Apr 2007 00:15 ] |
Post subject: | |
Voru einhver aprílgöbb hjá fjölmiðlunum? Þau fóru allavega alveg framhjá mér ![]() |
Author: | siggir [ Mon 02. Apr 2007 00:25 ] |
Post subject: | |
arnibjorn wrote: Voru einhver aprílgöbb hjá fjölmiðlunum? Þau fóru allavega alveg framhjá mér
![]() Rúv auglýsti alla leikmuni úr útvarpshúsinu ásamt fleiru til sölu http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item149447/ Stöð 2 bauð fólki að skrá sig í varalið ríkislögreglustjóra ![]() http://www.visir.is/article/20070401/FRETTIR01/70401044 Best fannst mér samt gabbið í Sunnlenska fréttablaðinu. Það auglýsti uppboð á öllum eignum Byrgisins og viðkvæmum var ráðið frá því að mæta ![]() |
Author: | Angelic0- [ Mon 02. Apr 2007 02:26 ] |
Post subject: | |
Bjarkih wrote: Ferrari gabbið hjá Fart var það eina sem ég féll fyrir.
|
Author: | arnibjorn [ Mon 02. Apr 2007 02:31 ] |
Post subject: | |
Kærastan mín sendi mér samt sms í dag og bað mig um að sækja sig lengst uppí grafarvog þar sem hún var í fermingu. Ég sagði bara jájá og bað hana um að segja mér hvar þetta væri því ég hafði ekki hugmynd um hvar þetta var. Ekkert meira um það ég legg af stað og er að hlusta á útvarpið og þá segir gellan sem er að tala "jæja ef þið eruð ekki búin að reyna gabba neinn í dag þá er um að gera að drífa sig í því" og það fékk mig til að hugsa hvort kærastan væri nokkuð að fokka í mér... Svo var ég kominn fyrir utan húsið sem hún sagði mér að koma og þar voru engir bílar og allt slökkt.. ég bara WTF á ekki að vera ferming hérna?!?! Hringdi svo alveg brjálaður í kærustuna og ætlaði að hella mér yfir hana fyrir að senda mig einhvert útí rassgat.....en svo kom í ljós að ég var fyrir utan hús nr. 9 og hún var í húsi nr. 10... frekar kjánalegt ![]() ![]() ![]() ![]() |
Author: | Kristjan [ Mon 02. Apr 2007 10:46 ] |
Post subject: | |
Eg hringdi i tengdamommu og sagdi henni ad vid hefdum sofnad i lestinni og vaerum kominn til oslo c.a 300 km fra afangastad og hun var komin ut i bil thegar kaerastan let mig hringja aftur og leidretta djokid. |
Author: | bjornvil [ Mon 02. Apr 2007 11:15 ] |
Post subject: | |
Ekki merkilegt gabb sem ég hljóp apríl fyrir. Fósturdóttir mín fór út með ruslið í gærmorgun. Kemur til baka og segir að það sé risastór rispa á hliðinni á bimmanum ![]() Ég fékk nett fyrir hjartað og skokkaði út til að líta á þetta. Kom til baka hálfskömmustulegur, mæðgurnar gerðu grín að mér og ég andaði léttar ![]() |
Author: | elli [ Mon 02. Apr 2007 12:17 ] |
Post subject: | |
Var staddur á Kentucky á Selfossi (hnakkistan) alveg að mygla úr þýnku, get varla beðið eftir að sporðrenna óhollustunni, þá kemur konan og vinkona hennar (voru í sjoppunni við hliðina á Kentucky) og sögðu mér að Guðni Ágústsson væri piss fullur og röflandi í sjoppunni og þar sem mér finnst Guðni ekki vera skærasta peran í seríunni þá beit ég á agnið og hljóp yfir til að sjá Framsóknar idiótið gera sig af fífli.... en það var nú ekki Guðni sem gerði sig að fífli því þegar ég kom aftur lágu þær vinkonur í hlátúrskrampa á gólfinu og gerðu grín að mér. ![]() |
Author: | siggik1 [ Mon 02. Apr 2007 14:04 ] |
Post subject: | |
hahaha, gaman að lesa þessar sögur og ýmynda sér þetta ![]() |
Author: | Frikki [ Mon 02. Apr 2007 18:25 ] |
Post subject: | |
siggik1 wrote: hahaha, gaman að lesa þessar sögur og ýmynda sér þetta
![]() |
Author: | Ingsie [ Mon 02. Apr 2007 21:34 ] |
Post subject: | |
Við vorum 4 stelpur í stelpuferð norður á akureyri um helgina. Kærasti einnar hringdi í hana í gærmorgun um 11 og sagðist vera á Akureyri, hafa verið á fyllerí um nóttina og þau hafið ákveðið að fara þrjú til akureyrar, hún var ekki að trúa honum, en hann bað hana að sækja sig á Essó (á leiðinni út á flugvöll) svo hringdi hún aftur í hann "það er fyrsti apríl, þú ert ekkert á ak" hann soldið pirraður "jú ég er í þórunnarstræti með blabla og blabla þau ætla að skutla mér á essó, nenniru að sækja mig þangað" ég sagði við hana, hringdu eftir 5-10 min i hann og segðu að þú sért á essó, vinkona min vildi ekki gera það, því kærastinn hennar var svona pirraður í símann. Hún prófaði að hringja í tengdamömmu sína, sem sagði að hann hefði ekkert verið heima alla nóttina, þannig vinkona mín trúði þessu enn meira. Hún dró okkur allar út grútmyglaðar, þunnar á náttfötunum og á essó.. Sáum auðvitað engan, en hún hringdi til baka og heyrðu þá í pabba hans og fuglinum, þannig hún fattaði að hann væri í reykjavík.. ![]() Smá langloka, en góður djókur =D |
Author: | Aron Andrew [ Tue 03. Apr 2007 02:50 ] |
Post subject: | |
Ég var nú bara að koma frá Berlín, en þar féll ég einmitt fyrir einu aprílgabbi. Félagi minn hringdi í mig af casinoinu og sagðist hafa unnið 1500 evrur með því að leggja 50 evrur á 31 og ætlaði að bjóða öllum á barinn, vorum btw 75 þarna úti. Ég auðvitað hljóp til og dró alla með mér, ætlaði að sjálfsögðu að þyggja nokkra drykki og fór yfir í allt annann hluta berlínar, og þar stóðu fíflin skellihlæjandi... Ég varð semi pirraður ![]() |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |