bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Mjög góð fréttamennska...
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20692
Page 1 of 1

Author:  gunnar [ Mon 05. Mar 2007 18:20 ]
Post subject:  Mjög góð fréttamennska...

Eru eintómir pappakassar að starfa þarna á visir.is ?

http://www.visir.is/article/20070304/FRETTIR01/70304058

Lesið aðeins í gegnum þessa grein, ekki nóg með að hann copy / paste einhverja hluta þarna saman vitlaust þá tekst honum að skrifa nafn mannsins á tvo mismunandi vegu. Svo koma sömu upplýsingarnar aftur og aftur þarna,

Fréttamennska versnandi fer...

Author:  Geirinn [ Mon 05. Mar 2007 18:25 ]
Post subject: 

Já þetta er ekki upp á marga fiska.

Author:  Jökull [ Mon 05. Mar 2007 18:39 ]
Post subject: 

." Wojciech var fluttur á slysadeild þar sem hann dvaldi í nótt. Hann er illa farinn eftir yfirmann sinn en sauma þurfti nokkur spor í augabrún hans og enni. Hann sér ekkert með öðru auganum en vonast til að það lagist með tímanum.

Wojciech var fluttur á slysadeild þar sem hann dvaldi í nótt. Hann er illa farinn eftir yfirmann sinn en sauma þurfti nokkur spor í augabrún hans og enni. Hann sér ekkert með öðru auganum en vonast til að það lagist með tímanum. Vojtjek vann hjá verktakafyrirtækinu Laufelli. Í nýjasta hefti tímaritsins Ísafoldar er grein eftir blaðamanninn Fian Paul en hann réði sig í vinnu hjá fyrirtækinu og kemur fram í greininni að eigandi fyrirtækisins sé kallaður ,,the criminal" eða glæpamaðurinn. Fyrirtækið hefur meðal annars verið með menn í vinnu við Hellisheiðavirkjun.

Eigandinn hefur áður gerst sekur um refsivert athæfi á Íslandi.Hann var nýlega dæmdur í 12 mánaða fangelsi og til greiðslu sektar fyrir kynferðislega misnotkun. Hann er nú í haldi lögreglu og líklega verður krafist gæsluvarðhalds yfir honum. Vojtjek gaf skýrslu til lögreglu í dag og hefur lagt fram kæru og er málið til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar.

Author:  gunnar [ Mon 05. Mar 2007 18:44 ]
Post subject: 

Einmitt... Og af hverju þarf að nafngreina manninn? Það heitir reyndar annar hver Pólverji þessi nafni en jæja.

Bla þetta fer í mig..

Author:  arnibjorn [ Mon 05. Mar 2007 18:47 ]
Post subject: 

:whogivesafuck: :lol: :lol:

Author:  gunnar [ Mon 05. Mar 2007 18:49 ]
Post subject: 

arnibjorn wrote:
:whogivesafuck: :lol: :lol:


Þegar maður er búinn að læra fjölmiðlafræði í menntaskóla og hefur starfað svolítið í þessum geira þá fer þetta ansi mikið í taugarnar á manni. Hvað þá ef þú ert með stafsetningafóbíu eins og ég. (alls ekki að segja að ég sé villulaus)

Mér finnst bara þar sem Vísir er orðinn aðal netmiðill 365 miðla að þá geti þeir anskotast til þess að ráða til sín hæft fólk sem kann að prófarkalesa efnið sitt áður en það birtir það.

OG HANA NÚ!

:lol:

Author:  bebecar [ Tue 06. Mar 2007 09:02 ]
Post subject: 

Það er yfirleitt ekki prófarkalesið fyrir netmiðla :wink: - enda snúast svona miðlar mikið um hver er fljótastur. En, það þýðir auðvitað mun fleiri villur.

þessi tiltekna frétt ber þess merki að hafa alls ekki verið lesin yfir eftir að hún var skrifuð.

Blaðamenn sem skrifa þokkalega frá fyrstu hendi og hafa öguð vinnubrögð eru því mikils virði fyrir netmiðla.

Author:  ///M [ Tue 06. Mar 2007 09:05 ]
Post subject: 

gunnar wrote:

Mér finnst bara þar sem Vísir er orðinn aðal netmiðill 365 miðla að þá geti þeir anskotast til þess að ráða til sín hæft fólk sem kann að prófarkalesa efnið sitt áður en það birtir það.


http://www.b2.is/?sida=tengill&id=225193

Author:  Einsii [ Tue 06. Mar 2007 09:15 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
arnibjorn wrote:
:whogivesafuck: :lol: :lol:


Þegar maður er búinn að læra fjölmiðlafræði í menntaskóla og hefur starfað svolítið í þessum geira þá fer þetta ansi mikið í taugarnar á manni. Hvað þá ef þú ert með stafsetningafóbíu eins og ég. (alls ekki að segja að ég sé villulaus)

Mér finnst bara þar sem Vísir er orðinn aðal netmiðill 365 miðla að þá geti þeir anskotast til þess að ráða til sín hæft fólk sem kann að prófarkalesa efnið sitt áður en það birtir það.

OG HANA NÚ!

:lol:

Þeir eru nú að tapa einhverjum svkalegum upphæðu nú þegar.. þeir hafa trúlega bara ekki efni á að borga góðum mönnum góð laun.

Author:  Misdo [ Tue 06. Mar 2007 09:35 ]
Post subject: 

Ég var eimmit að vinna með manni í sumar sem heitr wojcekh ætli þetta sé hann :roll:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/