bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Góðu skilmálarnir hjá Miði.is
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20643
Page 1 of 1

Author:  IceDev [ Fri 02. Mar 2007 20:40 ]
Post subject:  Góðu skilmálarnir hjá Miði.is

Quote:
Skilmálar miðakaupa

Með því að kaupa miða hjá Miði.is, þá samþykkir þú einnig skilmála okkar.

1. Vinsamlega athugaðu miðana þína, hvort réttar upplýsingar komi þar fram. Ekki er alltaf hægt að laga mistök við miðakaup eftirá.
2. Miðum á einn viðburð er ekki hægt að skipta fyrir miðum á annan. Miðar eru aldrei endurgreiddir, nema þegar viðburður fellur niður. Ef dagsetning á viðburð fellur niður er eigendum miðanna boðin sömu sæti á aðra dagsetningu (ef aðrar dagsetningar eru í boði). Ef eigendur miðanna komast ekki á breytta dagsetningu er þeim boðin endurgreiðsla miða. Beiðnir um endurgreiðslu skulu berast miði.is eigi síðar en 28 dögum eftir dagsetningu viðburðar sem féll niður.
3. Ef keyptur miði er áframseldur með fjárhagslegum hagnaði fyrir einhvern annan en aðila sem tengist viðburði beint, áskilur Miði.is sér rétt til þess að ógilda miðann og neita handhafa inngöngu á viðburð.
4. Á sérstaka viðburði geta kaupendur keypt takmarkaðan miðafjölda. Miði.is áskilur sér þann rétt að ógilda miða keypta umfram þann fjölda.
5. Eigandi miða tekur á sig alla ábyrgð á meiðslum sem gætu hlotist á undan, á meðan eða á eftir viðburð.
6. Viðburðir eru á ábyrgð aðstandenda viðburða, ekki Miði.is
7. Aðstandendur viðburðar og Miði.is taka enga ábyrgð á einkamunum eiganda miða á meðan viðburði stendur.
8. Meðferð áfengis, tóbaks og ólöglegra vímuefna er bönnuð á öllum viðburðum sem Miði.is selur á nema annað komi fram.
9. Aldurstakmark á viðburði ræðst eftir útivistartíma barnaverndarlaga og lögum um vínveitingahús. Börnum yngri en 18 ára er óheimilt að dvelja inni á veitingastað, sem leyfi hefur til áfengisveitinga. eftir kl. 20:00 á kvöldin og fram til lokunar staðarins, nema í fylgd með forsjáraðila.


Gott að hægt sé að víkja sér frá almennri ábyrgð vegna hátíðarhalds með einni svona klausu!

Lélegt barasta

Author:  basten [ Fri 02. Mar 2007 20:43 ]
Post subject: 

Enda er ég nokkuð viss um að þessi klausa standist engan veginn ef tónleikahaldari er ekki að standa sig í stykkinu t.d. með því að vanrækja öryggisgæslu annað slíkt.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/