bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Mon 23. Jun 2025 09:04

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 3 posts ] 
Author Message
PostPosted: Fri 02. Mar 2007 16:47 
Offline
Rallýbílstjóri
User avatar

Joined: Mon 18. Apr 2005 23:22
Posts: 1445
Location: Reykjavík
Las þetta á mbl.is :)

Quote:
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill enn vara við gylliboðum á netinu, sem enn sé ekkert lát á. Að þessum boðum standi óprúttnir aðilar sem einskis svífist, og jafnvel dæmi um að hryðjuverkamenn noti þessa aðferð til að fjármagna starfsemi sína. Er netnotendum ráðlagt að leita til lögreglunnar ef þeim berist grunsamleg gylliboð.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni í dag. Lætur hún ennfremur fylgja þrjú dæmi um boð sem einstaklingar hérlendis hafi látið glepjast af:

„Ungur karlmaður leitaði að bíl til kaupa á netinu. Hann fann bíl á mjög góðu verði og setti sig í samband við seljandann sem bauð honum að flytja bíllinn til Íslands endurgjaldslaust. Þar mátti kaupandinn reynsluaka bílnum í þrjá daga áður en hann gerði upp hug sinn. Fyrst átti kaupandinn þó að greiða helming af söluverði bílsins til þriðja aðila sem og hann gerði. Enn bólar ekkert á bílnum til landsins en kaupandinn hefur verið hvattur til að greiða bílinn að fullu svo hægt sé að ganga frá málinu. Aldrei stóð til að efna þennan samning. Bíllinn sem um ræðir er nánast nýr og auglýst söluverð hans er langt undir markaðsvirði.“

„Karlmanni á miðjum aldri var boðið að gerast skráður eini lögerfingi efnaðs læknis í Senegal. Tilboðið barst bréfleiðis en ritari þess sagðist vera fulltrúi senegölsku ríkisstjórnarinnar. Manninum var lofað 35 milljónum íslenskra króna. Fyrst þurfti að ganga frá formsatriðum sem reyndust vera tryggingargreiðslur. Hinni meinti fulltrúi senegölsku ríkisstjórnarinnar hefur nú fengið sendar umtalsverðar fjárhæðir frá Íslandi en arfurinn hefur hins vegar ekki skilað sér enn.“

„Karlmaður bauð í hlut á uppboðsvefnum eBay. Hann fékk ekki hlutinn en um leið og uppboðinu var lokið fékk hann tölvupóst frá aðila sem sagðist geta selt honum samskonar vöru. Eftir nokkrar tölvupóstssendingar óskaði söluaðilinn eftir því að gengið yrði frá greiðslu utan svokallaðs “Pay-Pal” kerfis sem eBay ábyrgist. Greiða átti með millifærslu í gegnum Western Union en með þessum skilmálum fengi kaupandinn ríflegan afslátt. Maðurinn féllst á þetta en varan hefur enn ekki borist og seljandinn svarar ekki tölvupósti.“



sýnist davið vera líka þarna :lol:


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 02. Mar 2007 16:53 
Offline
Meðlimur Meðlimur

Joined: Fri 30. Aug 2002 21:03
Posts: 12187
Location: Uppí rúmi í spandex
Hahaha að fólk sé svona blint.....

_________________
Tony Montana - BBS LM CREW
E36 M3 Coupe Daytona Violet 18" BBS LM

http://www.e30.is


Top
 Profile  
Reply with quote  
 Post subject:
PostPosted: Fri 02. Mar 2007 20:13 
Offline
Kassabílstjóri
User avatar

Joined: Fri 31. Mar 2006 12:49
Posts: 217
Location: Eflaust eitthvað að skrúfa, skítugur...
Elska að Senegal búar séu að raka inn millunum frá íslandi.

_________________
--Óþokki--

---T5R T-GUL---

---Heja Sverige---


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 3 posts ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 9 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group