zazou wrote:
bebecar wrote:
Miðju frjálshyggju maður - er það til
Hissa hvað ég er nálægt miðjunni, en ánægður með hvað ég er mikill frjálshyggjukall
PS, Íslendingar hér í DK eru flestir hverjir með miklar áhyggjur af kosningunum heima þar sem tendensinn hér er að verða frekar hægri sinnaður eftir að kynnast dönsku samfélagi.
Það gæti orðið erfitt fyrir fólk að fara heim með vinstri stjórn

Hentu inn niðurstöðunum kútur

Your political compass
Economic Left/Right: -1.38 (algjör bömmer maður)
Social Libertarian/Authoritarian: -6.77 (kátur með þetta)
Líklega er maður að mýkjast með aldrinum...
Hinsvegar held ég viti nú afhverju þessi vinstri slagsíða er, sumar spurningarnar eru þannig orðaðar að það er ekki hægt að svara þeim út frá okkar kúltur nema hljóma eins og einhver sossi.
Svo er náttúrulega munur á milli hægri í Evrópu annarsvegar og hægri í USA hinsvegar (sem betur fer).
Tók þetta aftur:
Your political compass
Economic Left/Right: -0.38
Social Libertarian/Authoritarian: -6.05
Það vantar greinilega öll kristileg gildi í mig því þetta virðist leggja að jöfnu kristileg gildi og hægri sjónarmið
