bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Fartölvur https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20443 |
Page 1 of 4 |
Author: | gunnar [ Wed 21. Feb 2007 19:05 ] |
Post subject: | Fartölvur |
Núna fer að líða að því að ég og kærastan mín þurfum að fara versla okkur sitthvora ferðavélina fyrir háskólanám. Hvar er hægt að fá ágætis tölvur á fínu verði? Ég var með HP vél sem mér líkaði ágætlega við en bilaði mikið og ég vill ekki skipta meira við Opin Kerfi. Mig langar í IBM en þær eru nátturulega fokk dýrar. Það sem ég er að leita eftir að eingöngu tölva til að nota í skólann, hef ágætis borðtölvu fyrir klámið og leikina ![]() Hvernig eru til dæmis ACER vélarnar? eða Toshiba, Endilega kommentið á þetta, ég er að leita að tölvu á svona 130 kall sem hægt er að taka á sæmilegum raðgreiðslum. |
Author: | gunnar [ Wed 21. Feb 2007 19:06 ] |
Post subject: | |
Sá til dæmis þessa og þetta er nátturulega ekkert verð.. http://tolvulistinn.is/vara/2752 |
Author: | arnibjorn [ Wed 21. Feb 2007 19:10 ] |
Post subject: | |
Danni hlýtur að geta kommentað eitthvað á þetta ![]() Ég er með quanta fartölvu sem var keypt hjá computer.is... hún er ágæt ![]() |
Author: | Eggert [ Wed 21. Feb 2007 19:15 ] |
Post subject: | |
Það kom mér mesta á óvart hvað fartölvur eru ódýrar hérna í Hollandi. Félagi minn var að kaupa sér nýja ferðavél frá HP á innan við 70 þús kall. 1.6ghz Centrino, 120gb diskur, gíg í minni, Intel950 og eitthvað fleira. Góð kaup ef þú spyrð mig. ![]() Annars, ef þú vilt fá sem mest fyrir peningana þá er held ég sniðugast að kaupa notaða vél, örugglega eitthvað af nýlegum en fínum vélum á partalistanum. VAIO er auðvitað stálið. |
Author: | Ingsie [ Wed 21. Feb 2007 19:25 ] |
Post subject: | |
ég veit btw ekki neitt um tölvur, en sá þetta http://69.is/openlink.php?id=44637 ábyggilega samt eitthvað djönk, svo ódyrt.. En eg heyrði í útvarpinu í morgun að Task væri með "rýmingarútsölu" vegna flutninga.. Um að gera að kíkja upp í brautarholt til þeirra ![]() ![]() |
Author: | siggir [ Wed 21. Feb 2007 19:26 ] |
Post subject: | |
Ég er búinn að vera með Toshiba í tvö ár og hún hefur aldrei klikkað. Fékk hana í staðin fyrir Medion vél sem ég var með en var aldrei til friðs. Semsagt: Þótt þýskir bílar séu bestir þá eru Japanir einfaldlega skrefi framar þegar kemur að tölvum ![]() |
Author: | Henbjon [ Wed 21. Feb 2007 19:33 ] |
Post subject: | |
Pff.. átti toshiba vél úr bt og hún lét ekki vel. Myndi ekki versla þær allavega við BT. Þú hefur ekki áhuga á apple? 120 þús kall svona lítil og þægileg. Svo bara torrent og downloada bootcamp eða hinu(parell?) dæminu |
Author: | Steini B [ Wed 21. Feb 2007 19:35 ] |
Post subject: | |
Við erum með bæði Toshiba og Fujitshu simens vélar í BT Man ekki eftir að hafa fengið eina vél til baka með einhver vandræði, nema jú bara til að fá aðstoð vegna stakrar tölvukunnáttu... (þá er ég bara að meina hérna á selfossi, hef ekki hugmynd hvernig þetta er í bænum...) BmwNerd wrote: Pff.. átti toshiba vél úr bt og hún lét ekki vel. Myndi ekki versla þær allavega við BT.
Þú hefur ekki áhuga á apple? 120 þús kall svona lítil og þægileg. Svo bara torrent og downloada bootcamp eða hinu(parell?) dæminu Afhverju ekki? Þetta eru nákvæmlega sömu Toshiba vélar og allir aðrir eru að selja... |
Author: | moog [ Wed 21. Feb 2007 19:39 ] |
Post subject: | |
Mæli með Asus ferðatölvum. Búinn að eiga eina þannig ódýra (fékk hana á 75 þús. nýja) i 1 1/2 ár og ekkert vesen búið að vera á henni, vorum nokkrir vinnufélagar sem splæstum í eins vélar og þær hafa staðið sig vel hjá öllum okkar. Fást niðrí Tökkum í Síðumúlanum, Boðeind og Sjónvarpsmiðstöðinni, jafnvel á fleiri stöðum. |
Author: | Aron Andrew [ Wed 21. Feb 2007 20:27 ] |
Post subject: | |
Ég er með Acer sem hefur staðið sig eins og hetja, búinn að detta í gólfið og fá bjór yfir sig en virkar alltaf ![]() Ég kalla hana Racer núna ![]() |
Author: | Benzer [ Wed 21. Feb 2007 21:12 ] |
Post subject: | |
Ég keypti mér Dell fartölvu fyrir 3 árum og hún hefur aldrei klikkað... Var reyndar í dýrari kantinum þá ![]() |
Author: | jens [ Wed 21. Feb 2007 21:22 ] |
Post subject: | |
Keypti mér ACER fartölvu, góða og aflmikla vél með stórum disk og stóru vinnsluminni og alles. Get alls ekki mælt með þessum vélum og enn síður með " þjónustunni " í tölvulistanum. Búinn að vera í miklu sambandi við þá og þeir hafa ekki gert neitt fyrir mig, mjög léleg þjónusta. Myndi skoða HP, á líka svoleiðis vél. Þær bila að vísu en þjónustan er frábær. |
Author: | Geirinn [ Wed 21. Feb 2007 21:46 ] |
Post subject: | |
Ég á Acer tölvu.... Tablet PC vél. Lyklaborðið í minni er með framleiðslugalla, þ.e. takkar festast inni í tíma og ótíma. Félagi minn á Acer vél sem harðidiskurinn bilaði í, endalaust vesen með þá tölvu, hann keypti meira að segja nýjan harðadisk og það var ennþá vesen en lagaðist ekki fyrr en hún var send í viðgerð.... og guess what... harðidisknum skipt út. Veit ekki með áreiðanleikann eftir það. Ég get persónulega ekki mælt með Acer miðað við þessi tvö dæmi, þekki reyndar einn annan sem á Acer og sú tölva virkar fínt. Félagi minn er búinn að eiga Dell vél í 6 ár og hefur látið vel. Mamma mín á HP vél og hún hefur látið vel, keypt í Office 1 ....... og ég hringdi þangað um daginn þegar ég hélt að batteríið væri bilað... og eftir að þeir höfðu skellt á mig tvisvar í símanum þá voru þeir ótrúlega tregir í samskiptum...... a.m.k. í Skeifunni... Smáralind var betri. Er þetta ekki allt saman bara spurning um heppni ? Maður spyr sig. |
Author: | ömmudriver [ Wed 21. Feb 2007 21:48 ] |
Post subject: | |
Ég á IBM T42 mað pentium M, hún hefur ekki slegið feilpúst í þessi tvö ár sem ég hef átt hana ![]() ![]() |
Author: | JOGA [ Wed 21. Feb 2007 22:08 ] |
Post subject: | |
Ég hef lítið vit á tölvum en er með Toshiba núna sem hefur reynst vel. Svo mæli ég með strákunum í Tölvutek niðri í Borgartúni. Hef verslað af þeim í vinnunni og verðin hjá þeim eru virkilega góð. Eru með Acer og fleira. |
Page 1 of 4 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |