bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Skemmdarverkin í Hafnarfirði..
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20297
Page 1 of 3

Author:  ValliFudd [ Thu 15. Feb 2007 10:51 ]
Post subject:  Skemmdarverkin í Hafnarfirði..

Það er ekkert smá.. Ég var búinn að heyra af þessu en þessar myndir segja það sem segja þarf :shock:

Eitt skil ég samt ekki á íslandi.. Ef þú gerir eitthvað af þér í USA.. allavega í bíómyndunum.. ert þú ekkert að fara neitt.. En á íslandi er nóg að segja "já ég gerði það" og þá máttu bara fara :roll:

Image

Image

Quote:
Vísir, 15. feb. 2007 07:31

Skemmdarverkapiltar látnir lausir
Piltarnir þrír sem handteknir voru í gær grunaðir um stórfelld skemmdarverk í Hafnarfirði í fyrrinótt játuðu á sig verknaðinn við yfirheyrslur hjá lögreglu og var sleppt í gærkvöldi. Þeir eru á aldrinum 15 til 17 ára og hafa áður komist í kast við lögin. Barnaverndaryfirvöld hafa nú mál þeirra til meðferðar. Tjón af völdum þeirra hefur ekki verið metið að fulllu en ljóst að það hleypur á mörgum milljónum króna.

Author:  ValliFudd [ Thu 15. Feb 2007 10:58 ]
Post subject: 

Myndir lagaðar... En já, hér er fréttin ef einhver hefur áhuga


Quote:
Unglingspiltar hafa játað skemmdarverkin að hluta
Skemmdarverk voru framin víðs vegar í Hafnarfirði í fyrrinótt. Á fjórða tug bifreiða voru skemmdar og rúður brotnar víða annars staðar. Þrír piltar á unglingsaldri hafa játað spellvirkin að hluta.
Lögreglumál Þrír piltar á unglingsaldri voru handteknir um hádegisbilið í gær vegna gruns um að þeir hafi framið fjöldamörg skemmdarverk víðs vegar í Hafnarfirði nóttina áður.

Lögreglumál Þrír piltar á unglingsaldri voru handteknir um hádegisbilið í gær vegna gruns um að þeir hafi framið fjöldamörg skemmdarverk víðs vegar í Hafnarfirði nóttina áður. Talið er að tjónið geti numið tugum milljóna króna.

Rúður voru brotnar í að minnsta kosti þrjátíu bifreiðum og margar þeirra dældaðar og rispaðar töluvert. Í nokkrum tilfellum voru járnteinar reknir í gegnum hurðir og vélarhlífar bifreiðanna. Þá voru einnig brotnar rúður í heimahúsi og vinnuskúr í bænum auk þess sem grunur leikur á um að piltarnir, sem eru á aldrinum fimmtán til sautján ára, hafi verið á stolnum bíl. Að sögn lögreglu er ekki loku fyrir það skotið að slóð piltanna liggi víðar, en þeir hafa játað skemmdarverkin að hluta.

Tilkynningar um spellvirkin tóku að streyma inn til lögreglu snemma í gærmorgun og fór ört fjölgandi eftir því sem leið á daginn. Þær fyrstu bárust frá hesthúsahverfinu í Almannadal þar sem fjölmargar bifreiðar höfðu verið skemmdar, en margar þeirra voru nýlegar. Þær tilheyrðu flestar verktökum sem eru þar að störfum um þessar mundir. Auk þess brutu skemmdarvargarnir rúður í þeim hesthúsum sem búið var að setja gler í.

Síðar um daginn bárust tilkynningar frá iðnaðarsvæðinu í Helluhverfi, austan við álverið í Straumsvík, þar sem rúður höfðu verið brotnar í bifreiðum, járnteinar reknir í gegnum hurðir og vélarhlífar og þær dældaðar á ýmsa aðra vegu. Þar urðu stærri vinnuvélar einnig fyrir töluverðum skemmdum af hendi spellvirkjanna.

Lögreglan telur að sömu aðilar hafi verið að verki í öllum tilvikum. Ekki er ljóst hvað þeim gekk til né hvers kyns tól þeir notuðu við verknaðinn.

Piltarnir sem eru í haldi hafa allir komið áður við sögu lögreglu. Sökum ungs aldurs þeirra er málið unnið í samvinnu við barnaverndaryfirvöld en þeir hafa þó allir náð sakhæfisaldri. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur nú fengið málið til meðferðar og yfirheyrslur yfir piltunum fóru fram í gærkvöldi.

thordur

@frettabladid.is

Author:  Bjarkih [ Thu 15. Feb 2007 11:02 ]
Post subject: 

Það er náttúrulega tilgangslaust að hafa menn í varðhaldi eftir játningu nema almannahagsmunir krefjist þess, s.s. ef það stafar hætta af viðkomandi. Refsinginn ákvarðast á dómstigi ekki rannsóknarstigi þannig að lögreglan hefur ekkert vald til að loka þá inni í refsiskyni.

Author:  Einsii [ Thu 15. Feb 2007 11:03 ]
Post subject: 

Hvað gerist svo hjá þeim sem ekki eru með kaskó?..
Þurfa tryggingar foreldra strákana að borga allt tjónið ?
Eða kanski foreldrarnir sjálfir ?

Author:  ///MR HUNG [ Thu 15. Feb 2007 11:07 ]
Post subject: 

Hvernig náðust þeir?

Author:  siggir [ Thu 15. Feb 2007 11:10 ]
Post subject: 

Einsii wrote:
Hvað gerist svo hjá þeim sem ekki eru með kaskó?..
Þurfa tryggingar foreldra strákana að borga allt tjónið ?
Eða kanski foreldrarnir sjálfir ?


Held að tryggingar nái ekki yfir skemmdarverk...

Author:  íbbi_ [ Thu 15. Feb 2007 11:17 ]
Post subject: 

tryggingin boregar rúðurnar í bílunum, þetta er 560sec benz , rúðurnar í þetta eru alveg tugir þúsunda

Author:  ValliFudd [ Thu 15. Feb 2007 11:21 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
tryggingin boregar rúðurnar í bílunum, þetta er 560sec benz , rúðurnar í þetta eru alveg tugir þúsunda

Og járnið á milli rúðanna er beyglað, spegillinn brotinn :? og náttúrulega ALLAR rúðurnar í bílnum.. áts...

Author:  Aron Fridrik [ Thu 15. Feb 2007 11:23 ]
Post subject: 

borga tryggingar svona ? er það ekki bara ef hann er kaskó tryggður ?

Author:  Djofullinn [ Thu 15. Feb 2007 11:24 ]
Post subject: 

15-17 ára??? Hverskonar helvítis mongólítar eru þetta! Misþroska pakk

Author:  Ingsie [ Thu 15. Feb 2007 11:35 ]
Post subject: 

Djofullinn wrote:
15-17 ára??? Hverskonar helvítis mongólítar eru þetta! Misþroska pakk


Já og þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir komast í kast við lögin :roll:

Ég þoli ekki þetta réttarkerfi á íslandi.. Nóg að játa og þá máttu fara !! :roll:

Author:  Bjarkih [ Thu 15. Feb 2007 12:15 ]
Post subject: 

Ég er greinilega að verða gamall því að ég hugsa líka: Hverju klúðruðu foreldrarnir í uppeldinu? Þetta er ekki bara krökkunum að kenna, þó að það þurfi að vanta mikið í hausinn á manni til að gera svona, það er einhver ástæða fyrir því að bjánarnir eru bjánar...

Author:  zazou [ Thu 15. Feb 2007 12:18 ]
Post subject: 

Ingsie wrote:
Djofullinn wrote:
15-17 ára??? Hverskonar helvítis mongólítar eru þetta! Misþroska pakk


Já og þetta er ekki í fyrsta skipti sem þeir komast í kast við lögin :roll:

Ég þoli ekki þetta réttarkerfi á íslandi.. Nóg að játa og þá máttu fara !! :roll:

Senda þetta pakk á Breiðuvík.

Author:  Misdo [ Thu 15. Feb 2007 12:53 ]
Post subject: 

Þetta endar mest allt á foreldrum þeirra voðalega skemtilegt fyrir þau orðinn stórskuldug útaf þau eiga fávita sem börn :roll:

Author:  Aron Andrew [ Thu 15. Feb 2007 12:57 ]
Post subject: 

Taka þetta lið og rasskella þá fyrir framan alla vini þeirra!

Þvílíkir hálfvitar sem gera svona hluti!

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/