bmwkraftur.is https://bmwkraftur.is/spjall/ |
|
Réttarstaða mín í leiguhúsnæði.. HJÁLP! https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20253 |
Page 1 of 2 |
Author: | ValliFudd [ Tue 13. Feb 2007 20:29 ] |
Post subject: | Réttarstaða mín í leiguhúsnæði.. HJÁLP! |
Ég var að leigja íbúð... skrifað undir samning á föstudag.. flutt inn strax.. Þegar við vorum að skrifa undir samninginn sáum við smá vatnspoka undir málningunni í loftinu og gaurinn sagði "ekkert mál, ég læt bara frænda minn kíkja á þetta strax" Svo kom í ljós í gær að þetta er sprungin lögn í vegg.. ég er semsagt að fá niður eldhúsvegginn hjá mér það sem þeir á næstu 3 hæðum fyrir ofan eru að setja í vaskinn sinn.. namm ![]() Ég hringdi strax í gaurinn og sagðist vilja út, mjög kurteist, því það er ekki von á viðgerð í bráð og þá fer vika í það.. 2 dagar í að brjóta sig inn í veggi 2 dagar í að skipta um lagnir 2 dagar í frágang... Gaurinn sem kom og skoðaði þetta og dæmdi sagði að hans fyrirtæki væri það upptekið að þeir kæmust ekki fyrr en eftir 2 ár ![]() Sem þýðir líklegast að það gerist ekkert alveg á næstunni.. og ég vil ekki búa hérna, enda ekkert sérstaklega geðslegt að hafa slef annara íbúa hússins lekandi niður veggi eldhússins.. Ég semsagt vildi komast út og lét strax vita af því.. En þau segja: "Nei, það er búið að þinglýsa samningnum og þú ert með 3ja mánaða uppsagnarfrest... svona er þetta bara!" What can i do??? ![]() |
Author: | Einarsss [ Tue 13. Feb 2007 20:32 ] |
Post subject: | |
voða lítið ... enda bindandi samningur ![]() En ef hann græjar þetta ekki strax þá er möguleiki að það sé hægt að rifta samningnum hefði ég haldið |
Author: | ValliFudd [ Tue 13. Feb 2007 20:32 ] |
Post subject: | |
Það eina sem mér dettur í hug er að flytja út, kominn með aðra íbúð... og breyta þessu bara í partýkofa kraftsins næstu 3 mánuði? ![]() |
Author: | Aron Andrew [ Tue 13. Feb 2007 20:33 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Það eina sem mér dettur í hug er að flytja út, kominn með aðra íbúð... og breyta þessu bara í partýkofa kraftsins næstu 3 mánuði?
![]() Þú hugsar alltaf svo rétt ![]() |
Author: | Lindemann [ Tue 13. Feb 2007 20:39 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Það eina sem mér dettur í hug er að flytja út, kominn með aðra íbúð... og breyta þessu bara í partýkofa kraftsins næstu 3 mánuði?
![]() haltu bara nokkur góð partí og þá ætti fólkið fljótlega að vera til í að stytta uppsagarfrestinn þegar nágrannarnir fara að láta heyra í sér! ![]() |
Author: | ValliFudd [ Tue 13. Feb 2007 20:55 ] |
Post subject: | |
En svona án alls rugls... Er möguleiki að ef ég flyt út að fá niðurfellda húsaleigu þar til þetta verður komið í lag? Þar sem þetta er nú niðurfallið úr íbúðunum fyrir ofan? |
Author: | Bjarkih [ Tue 13. Feb 2007 20:59 ] |
Post subject: | |
Þú ert náttúrulega ekki að fá það sem þú borgar fyrir, það er galli á íbúðinni. Einnig sagðist leigusali ætla að láta kíkja á þetta STRAX sem þýðir væntanlega viðgerð STRAX, ég myndi leggja þann skilning í það að ef viðgerðin fer ekki fram strax eins og lofað var við undirritun þá er hann ekki að standa við sinn hluta. Annars get ég bara ráðlagt þér að hringja í neytendasamtökin, held ekki að það séu nein leigjendasamtök á Íslandi. Það eru svoleiðis samtök hér í Svíþjóð og það er mjög hughreystandi að hafa svoleiðis á bakvið sig. |
Author: | ValliFudd [ Tue 13. Feb 2007 21:50 ] |
Post subject: | |
Quote: III. kafli. Ástand hins leigða húsnæðis.
15. gr. Spillist leiguhúsnæði fyrir upphaf leigutíma þannig að það verði óhæft til fyrirhugaðra nota fellur leigusamningurinn úr gildi. Ætli ég geti nýtt mér þetta? ![]() |
Author: | pallorri [ Tue 13. Feb 2007 21:53 ] |
Post subject: | |
ValliFudd wrote: Quote: III. kafli. Ástand hins leigða húsnæðis. 15. gr. Spillist leiguhúsnæði fyrir upphaf leigutíma þannig að það verði óhæft til fyrirhugaðra nota fellur leigusamningurinn úr gildi. Ætli ég geti nýtt mér þetta? ![]() Mér finnst nú mjög sennilegt að þú getir notað þetta.. En djöfull væri ég EKKI sáttur í þínum sporum maður ![]() Gangi þér vel með þetta... |
Author: | Spiderman [ Tue 13. Feb 2007 21:58 ] |
Post subject: | |
Ég er reyndar menntaður lögfræðingur en rosalega upptekinn þessa stundina vegna ritgerðarskila eftir 14 klst ![]() En í stuttu máli þá þarft þú að gera leigusala grein fyrir þessu innan 1 mánaðar frá afhendingu. Ef hann gerir ekkert til þess að ráð bót á þessu innan mánaðar þá getur þú aflað leyfis byggingafulltrúa, gert við þetta sjálfur og dregið það frá leigunni. Ef þú gerir ekki við þetta og leigusalinn verður ekki við kröfu þinni innan 2 mánaða, þá er þér heimilt að rifta leigusamningnum. Á meðan leigusalinn gerir ekkert í málinu, þá átt þú rétt á lækkun húsaleigu en byggingafulltrúi metur lækkunina. Bæði þér og leigusala er þó heimilt að bera ákvörðun byggingafulltrúa um lækkun undir kærunefnd húsaleigumála. Vona að þetta hafi hjálpað eitthvað ![]() |
Author: | bimmer [ Tue 13. Feb 2007 22:24 ] |
Post subject: | |
Er þessi nefnd ekki 1-2 mánuði að afgreiða erindi? |
Author: | ValliFudd [ Tue 13. Feb 2007 22:35 ] |
Post subject: | |
bimmer wrote: Er þessi nefnd ekki 1-2 mánuði að afgreiða erindi?
ég er frekar hræddur um það.. og þá er það hætt að skipta nokkru máli.. það er einn lögfræðingur að kíkja á þetta einmitt fyrir mig.. sem hefur svolítið verið að fikta í húsaleigumálum ![]() Það er verið að semja fyrir mig bréf sem á að hræða ![]() |
Author: | Alpina [ Tue 13. Feb 2007 22:46 ] |
Post subject: | |
Mér líður þannig að þetta sé ,,vont |
Author: | Astijons [ Wed 14. Feb 2007 01:24 ] |
Post subject: | |
hahahhaha 2ár ... ég elska pípara... við erum svo fyndnir... |
Author: | freysi [ Wed 14. Feb 2007 18:43 ] |
Post subject: | |
ef þú sást þetta áður en þú skrifaðir undir hefðir þú einfaldlega átt að bæta þessu inn í samningin að það yrði gert við þetta strax. Það er bara ekki hægt að treysta fólki lengur, sama í hvaða bransa. |
Page 1 of 2 | All times are UTC |
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group https://www.phpbb.com/ |