Ég var að leigja íbúð... skrifað undir samning á föstudag.. flutt inn strax..
Þegar við vorum að skrifa undir samninginn sáum við smá vatnspoka undir málningunni í loftinu og gaurinn sagði "ekkert mál, ég læt bara frænda minn kíkja á þetta strax"
Svo kom í ljós í gær að þetta er sprungin lögn í vegg.. ég er semsagt að fá niður eldhúsvegginn hjá mér það sem þeir á næstu 3 hæðum fyrir ofan eru að setja í vaskinn sinn.. namm
Ég hringdi strax í gaurinn og sagðist vilja út, mjög kurteist, því það er ekki von á viðgerð í bráð og þá fer vika í það..
2 dagar í að brjóta sig inn í veggi
2 dagar í að skipta um lagnir
2 dagar í frágang...
Gaurinn sem kom og skoðaði þetta og dæmdi sagði að hans fyrirtæki væri það upptekið að þeir kæmust ekki fyrr en eftir 2 ár

greit... svo það var boðaður húsfundur sem verður eftir viku og þá á að skoða hvað gera skal..
Sem þýðir líklegast að það gerist ekkert alveg á næstunni.. og ég vil ekki búa hérna, enda ekkert sérstaklega geðslegt að hafa slef annara íbúa hússins lekandi niður veggi eldhússins..
Ég semsagt vildi komast út og lét strax vita af því.. En þau segja:
"Nei, það er búið að þinglýsa samningnum og þú ert með 3ja mánaða uppsagnarfrest... svona er þetta bara!"
What can i do???
