bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Bretta og skíða folk.
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20135
Page 1 of 2

Author:  HPH [ Fri 09. Feb 2007 03:03 ]
Post subject:  Bretta og skíða folk.

Eru einhverjir hér á Kraftinum sem stunda þá iðju þegar hækt er að skíða eða Snjóbretta? og hver er svona ykkar uppáhalds-brekkan ykkar?

Author:  hjortur [ Fri 09. Feb 2007 08:56 ]
Post subject: 

Snjóbretti og þá bara fyrir utan skíðasvæði. Þoli ekki að renna mér á þjöppuðum skíðabrekkusnjó. Hef verið duglegur síðustu ár að labba á fjöll hérna fyrir vestan og láta vaða niður.

Author:  Aron Andrew [ Fri 09. Feb 2007 09:02 ]
Post subject: 

Ég æfði skíði heillengi, er svona að beila á því núna.
Uppáhalds brekkan mín hér á landi væri sennilega á Ísafirði, helvíti góðir bakkar þar.

Annars eru íslensk skíðasvæði voða mikið frat á miðað við skíðasvæði erlendis :?

Author:  Einarsss [ Fri 09. Feb 2007 09:05 ]
Post subject: 

hef verið á bretti frá því ég var 13 ára.... hef voðalega lítið farið undanfarin ár útaf snjóleysi og þegar það er opið þá vantar snjó allsstaðar nema á brautinni sjálfri ... sem sökkar :roll:

Author:  ValliFudd [ Fri 09. Feb 2007 09:13 ]
Post subject: 

Snjóbretti og af svæðum með lyftum er það Skálafell eða Hlíðarfjall.. Það er bara aldrei opið í Skálafelli og svo ég fer oftast í Hlíðarfjalið :)

Author:  íbbi_ [ Fri 09. Feb 2007 09:30 ]
Post subject: 

æfði alltaf skíði þegar ég var krakki.. svo einn daginn hugsaði ég djö.. ég fer aldrei aftur á skíði og það hefur alveg staðið

Author:  gunnar [ Fri 09. Feb 2007 10:04 ]
Post subject: 

Æfði skíði í næstum tíu ár, mjaðmargrindarbraut mig og þríbraut á mér ökkla og þurfti að hætta. Var kominn með aðgöngu í mjög góðann skóla í Noregi ("skíðamenntaskóla" en varð að hætta við..

Sé reyndar ekki eftir því í dag.

Author:  Helgi M [ Fri 09. Feb 2007 10:59 ]
Post subject: 

Ég er á snjóbretti og mér finnst skemmtilegast að renna mér utan svæðis,, skemmtilegustu staðirnir sem ég hef rennt mér á eru Esjan og Nesjavellir,, Esjan er meira svona long ride en Nesjavellirnir í flestum tilvikum með styttri og brattari brekkur sem að standa ýmis klettabörð uppúr sem skemmtilegt er að nýta :)

Author:  Eggert [ Fri 09. Feb 2007 11:28 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
æfði alltaf skíði þegar ég var á krakki.. svo einn daginn hugsaði ég djö.. ég fer aldrei aftur á skíði og það hefur alveg staðið


haha... ég las þetta aðeins of hratt...

Author:  siggik1 [ Fri 09. Feb 2007 11:39 ]
Post subject: 

haha, það hlítur að vera fríkað :)

annars man ég þegar ég fór a´skíði oft á ísafirði sem var mjög gaman hef reyndar ekki farið þangað í mörg ár

man eftir að einu sinni fór ég svo hratt að ég gat ekki stoppað mig og ég var orðinn frosinn í andlitinu deyjandi úr hlátri og náði loks að stoppa mig en endaði í spíkat, sem var verulega sárt :oops:

Author:  pallorri [ Fri 09. Feb 2007 11:40 ]
Post subject: 

Eggert wrote:
íbbi_ wrote:
æfði alltaf skíði þegar ég var á krakki.. svo einn daginn hugsaði ég djö.. ég fer aldrei aftur á skíði og það hefur alveg staðið


haha... ég las þetta aðeins of hratt...



Hahaha sama hér :lol:

Author:  íbbi_ [ Fri 09. Feb 2007 13:26 ]
Post subject: 

ég er náttúrulega frá ísafirði.. að fara á skíði var bara hluti af menninguni

Author:  Eggert [ Fri 09. Feb 2007 14:03 ]
Post subject: 

íbbi_ wrote:
ég er náttúrulega frá ísafirði.. að fara á skíði var bara hluti af menninguni


Lestu betur... "þegar ég var á krakki" :lol:

Author:  íbbi_ [ Fri 09. Feb 2007 14:55 ]
Post subject: 

ég sá það..


það var líka í menninguni 8)

Author:  Misdo [ Fri 09. Feb 2007 16:14 ]
Post subject: 

ég keypti mér einhvað svaka Rosignal bretti sem kostaði ekkert lítið
og ég hef kanski notað það 3-4 sinnum alltaf svo mikið snjóleysi o verið latur við að mæta uppá síðkastið

enn þegar ég fór var það oftast uppí skálafell

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/