bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Vökuuppboð á eftir....
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=20001
Page 1 of 3

Author:  Eggert [ Sat 03. Feb 2007 12:45 ]
Post subject:  Vökuuppboð á eftir....

Ég var að fá email um vökuuppoð... það er þónokkuð af BMWum þarna í dag.

SR126 - BMW 3 05
PZ339 - BMW 320 03
YG347 - BMW 320 98
PT788 - BMW 525 IXA 94
MX218 - BMW 3 98

VI707 - BMW M5 99
Image

Eflaust hægt að gera góð kaup :P

Author:  bimmer [ Sat 03. Feb 2007 12:58 ]
Post subject: 

Hvað með þessa bíla - eru þeir skemmdir/bilaðir eða eru þetta bílar sem menn borga ekki af....????

Author:  98.OKT [ Sat 03. Feb 2007 14:23 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Hvað með þessa bíla - eru þeir skemmdir/bilaðir eða eru þetta bílar sem menn borga ekki af....????

Þetta eru bílar sem hafa verið teknir fjárnámi vegna eitthvers

Author:  Angelic0- [ Sat 03. Feb 2007 14:29 ]
Post subject: 

Þessi M5... VI707... eitthvað kannast ég við þetta :-k

Einhver sem hefur aðgang að ökutækjaskrá ? :o

Author:  Svenni Tiger [ Sat 03. Feb 2007 14:30 ]
Post subject: 

þessi bíll er keyrður 92 þús.km og fór á 2 millur sléttar :? fáranlega ódýrt...
síðan var Audi S8 nýlegur sem fór á 1,250 millur

Author:  Einsii [ Sat 03. Feb 2007 14:34 ]
Post subject: 

Svenni Tiger wrote:
þessi bíll er keyrður 92 þús.km og fór á 2 millur sléttar :? fáranlega ódýrt...
síðan var Audi S8 nýlegur sem fór á 1,250 millur

Ha!!. og í góðu lagi bara ?
Hvernig kemst maður í svona díla og hvernig veit maður af þessum uppboðum ?

Author:  ///M [ Sat 03. Feb 2007 14:43 ]
Post subject: 

vökuuppboðin eru fyrsta lau. hvers mánaðar og það mega allir taka þátt

Author:  Kristján Einar [ Sat 03. Feb 2007 14:56 ]
Post subject: 

audi s8 á 1250 þúsund? SHIII :lol:

Author:  Einsii [ Sat 03. Feb 2007 15:00 ]
Post subject: 

Og eru þar bæði tjóna bílar og bílar sem hafa verið gerðir teknir af þeim sem ekki borga af lánum ?

Author:  98.OKT [ Sat 03. Feb 2007 15:13 ]
Post subject: 

Einsii wrote:
Og eru þar bæði tjóna bílar og bílar sem hafa verið gerðir teknir af þeim sem ekki borga af lánum ?

Þetta tengist ekkert bílalánum frekar en öðrum skuldum, bara ef það er gert fjárnám á þig vegna eitthverra skulda þá geta þeir tekið m.a bílinn þinn

Author:  Djofullinn [ Sat 03. Feb 2007 15:15 ]
Post subject: 

Og þú verður að sjálfsögðu að borga á staðnum :)

Author:  Sezar [ Sat 03. Feb 2007 15:35 ]
Post subject: 

Svenni Tiger wrote:
þessi bíll er keyrður 92 þús.km og fór á 2 millur sléttar :? fáranlega ódýrt...
síðan var Audi S8 nýlegur sem fór á 1,250 millur

Hann var keyrður um 200.00km.
Sá sem ekki borgar skuldirnar endar þarna :wink:

Author:  Thrullerinn [ Sat 03. Feb 2007 16:06 ]
Post subject: 

Það er líka hægt að fara með bílinn þarna og láta bjóða hann upp, greiðir
bara uppboðsgjald.

Aukin áhætta að kaupa bíla þarna en engu að síður hægt að gera góð kaup.

Frétti af einum sem keypti vélarlausan bíl, en vissi ekki af vélarleysinu.. :?

Author:  Leikmaður [ Sat 03. Feb 2007 16:28 ]
Post subject: 

Það er alveg rétt, það er hægt að gera fín kaup þarna - en rétt eins og Thrullerinn segir, því fylgir í flestum tilvikum töluverð áhætta.
Ef maður þekkir persónulega ekki til bílsins sem maður er að bjóða í, þá er það eina sem hægt er að gera að vera búinn að grennslast t.d. fyrir um í ekju.

Ég hef einu sinni verslað bíl þarna fyrir þónokkrum árum síðan (bíllinn hennar Ingsie), ég vissi ekki einu sinni hvaða vél var í honum, hvort hann færi í gang eða neitt. Þú færð hvorki að fara inn í bílana né opna húdd. Í ca. 50% tilvika færðu lykil þegar bíllinn hefur verið keyptur.

Margir hafa gert mjög góð kaup en örugglega álíka margir sem hafa keypt köttinn í sekknum og þar með borgað of mikið fyrir bílinn. Það gefur auga leið að margir þessara bíla hafa verið í afar slæmri umhirðu og bílar hirtir eftir að hafa staðið lengi vegna bilunar.

Engu að síður gaman að taka þátt í þessu og maður fær hálfgert kikk út úr því að taka vera í svona alvöru uppboði.
En þegar maður fylgist stundum með, þá liggur við að um typpastærðarkeppni er að ræða, menn eru hættir að spá í áhættunni sem þessu fylgir og hvað sé skynsamlegt - meira skiptir að ,,vinna" hinn aðilann sem er að bjóða í á móti þér :lol:

Author:  Einsii [ Sat 03. Feb 2007 16:43 ]
Post subject: 

Leikmaður wrote:

Kanski veit hann eitthvaðs em þú veist ekki ;)

Page 1 of 3 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/