bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Jaguar XJ40 (XJ6) 4.0 - 1994 - WARNING NOT A BMW !!!
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19848
Page 1 of 4

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 01:47 ]
Post subject:  Jaguar XJ40 (XJ6) 4.0 - 1994 - WARNING NOT A BMW !!!

Jæja, ég var að eignast þetta tól en hann þarfnast svakalegrar vinnu!

Saga bílsins er sú að hann er fluttur inn til landsins sem flóðabíll frá USA en þar hafði hann sinnt starfi sem ráðuneytisbíll hjá Breska sendirráðinu. Þegar hann kom hingað til lands var gert við hann (og það eru misgóðar sögurnar sem að fara af því) og var bíllinn mjög spakur um langt skeið en á þeim tíma var hann í eigu manns sem að rak SHELL bensínstöðina v/ fitjar í Njarðvík. Að þeim tíma loknum gekk bíllinn á milli manna og endaði í höndum þekkts manns í Vogum sem að hefur gengið berseksgang á sjúkrahúsum svo fleira sé nefnt og endaði bíllinn einsog hann er í dag í höndum þess manns eftir eltingaleik við lögreglu sem að svo endaði með handtöku og upptöku mikils magns af fíkniefnum og vantar alla innréttingu í skottið og var bíllinn í milljón bútum þegar við vinirnir fengum hann í okkar hendur!

Núna er búið að raða í hann því sem að hægt var að fá aftur af innréttingunni og er mikil vinna fyrir höndum því að ásamt því að vera klesstur er vatnskassinn ónýtur og hefur bíllinn verið keyrður þannig með þeim afleiðingum að heddpakkningin er ónýt.

Ef að einhver veit um svona bíl í niðurrifi er hann vinsamlegast beðinn um að hafa samband við mig og láta mig vita því að mér vantar eitt og annað!

En hér fylgir ein mynd af dýrinu;
Image

Author:  gunnar [ Mon 29. Jan 2007 01:53 ]
Post subject: 

Verðugt verkefni. En ætti þetta ekki að vera í "off topic" ?

Author:  arnibjorn [ Mon 29. Jan 2007 01:53 ]
Post subject: 

gunnar wrote:
Verðugt verkefni. En ætti þetta ekki að vera í "off topic" ?


+1

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 01:55 ]
Post subject: 

Þetta er jú... bíll meðlims... ekki rétt ????

Annars er ykkur velkomið að færa í Off Topic ;)

Author:  arnibjorn [ Mon 29. Jan 2007 01:56 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
Þetta er jú... bíll meðlims... ekki rétt ????

Annars er ykkur velkomið að færa í Off Topic ;)


Bílar meðlima
Hér geturðu póstað myndum af BMW-inum þínum!

:)

Author:  ///MR HUNG [ Mon 29. Jan 2007 02:07 ]
Post subject: 

Guð hjálpi þér :o

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 02:17 ]
Post subject: 

///MR HUNG wrote:
Guð hjálpi þér :o


Ó segðu !!!

Author:  Hannsi [ Mon 29. Jan 2007 02:46 ]
Post subject: 

///MR HUNG wrote:
Guð hjálpi þér :o

þetta segir þú og þú hefur ekki fengið að sjá það sem ég hef séð :lol:

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 03:01 ]
Post subject: 

Hannsi wrote:
///MR HUNG wrote:
Guð hjálpi þér :o

þetta segir þú og þú hefur ekki fengið að sjá það sem ég hef séð :lol:


No storytelling, ég segi frá hér..

En já, hann þarfnast SVAKALEGRAR VINNU...

En ég hef fengið bíla verri en þennan og gert þá góða sbr. Malibu '78 með flame sem að ég átti ;)

Author:  zazou [ Mon 29. Jan 2007 07:27 ]
Post subject: 

Respek, þú lætur bara vita ef þig vantar nöfn á varahlutaseljendum :wink:

Author:  bimmer [ Mon 29. Jan 2007 07:49 ]
Post subject: 

Hvað fær þig til að fara út í þessa geðveiki? :lol:

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 07:50 ]
Post subject: 

zazou wrote:
Respek, þú lætur bara vita ef þig vantar nöfn á varahlutaseljendum :wink:


Þær upplýsingar væru vel þegnar, en í þennan eðalvagn vantar ýmislegt..

Báðar hurðarnar vantar, svuntuna (helst með kösturum), vatnskassa og festinguna/rammann utanum hann... áfyllingarboxið fyrir vatnskassann og svo vantar mér heddpakkningu og jafnvel hedd en vonandi ekki!

bíllinn fer vonandi í réttingabekk eftir mánaðarmót, sé til hvað buddan leyfir ekki þarf maður allavega að vera að pæla í bensínkostnaði svona næstu 6mán eða svo !

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 07:50 ]
Post subject: 

vúps, fékk svona;

Could not insert new word

DEBUG MODE

SQL Error : 145 Table './bmwkraftur/phpbb_search_wordlist' is marked as crashed and should be repaired

INSERT IGNORE INTO phpbb_search_wordlist (word_text, word_common) VALUES ('6mán', 0), ('allavega', 0), ('bara', 0), ('bensínkostnaði', 0), ('buddan', 0), ('báðar', 0), ('bíllinn', 0), ('eftir', 0), ('ekki', 0), ('eða', 0), ('eðalvagn', 0), ('fer', 0), ('festinguna', 0), ('fyrir', 0), ('hann', 0), ('hedd', 0), ('heddpakkningu', 0), ('helst', 0), ('hurðarnar', 0), ('hvað', 0), ('jafnvel', 0), ('kösturum', 0), ('leyfir', 0), ('lætur', 0), ('maður', 0), ('með', 0), ('mánaðarmót', 0), ('mér', 0), ('næstu', 0), ('nöfn', 0), ('pæla', 0), ('rammann', 0), ('respek', 0), ('réttingabekk', 0), ('svo', 0), ('svona', 0), ('svuntuna', 0), ('til', 0), ('upplýsingar', 0), ('utanum', 0), ('vantar', 0), ('varahlutaseljendum', 0), ('vatnskassa', 0), ('vatnskassann', 0), ('vel', 0), ('vera', 0), ('vita', 0), ('vonandi', 0), ('væru', 0), ('wink', 0), ('Þær', 0), ('áfyllingarboxið', 0), ('í', 0), ('ýmislegt', 0), ('þarf', 0), ('þegnar', 0), ('þennan', 0), ('þig', 0)

Line : 234
File : functions_search.php

Author:  Angelic0- [ Mon 29. Jan 2007 08:04 ]
Post subject: 

bimmer wrote:
Hvað fær þig til að fara út í þessa geðveiki? :lol:

_________________
Þórður
'99 M5 SC
'89 M3 ??


Ég held ég geti spurt þig hið sama :twisted:

Author:  bimmer [ Mon 29. Jan 2007 08:13 ]
Post subject: 

Angelic0- wrote:
bimmer wrote:
Hvað fær þig til að fara út í þessa geðveiki? :lol:

_________________
Þórður
'99 M5 SC
'89 M3 ??


Ég held ég geti spurt þig hið sama :twisted:


Nei - að velja sér E30 M3 sem brautarbíl er niðurstaða sem mjög mjög mjög margir komast að.

En að kaupa sér Jagúar í döðlum og gera upp er eitthvað sem er langsóttara. Er bara að spá í hvað fær þig til að komast að þeirri
niðurstöðu að þetta sé sniðugt - er þetta gamall draumur að eiga Jagúar?

Page 1 of 4 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/