Angelic0- wrote:
saemi wrote:
BOLGÓ wrote:
Angelic0- wrote:
Ef að þetta er bíllinn sem að stóð hjá BÓSA í Keflavík eftir asnalegasta árekstur í heimi þá er heddið eða blokkin brotin... sá ekki hvort það var...
má gera við en finnst það hæpið!
Ef að þú segir að þetta hafi verið asnalegur árekstur þá bara hlýtur það að vera..... Ert þú ekki sérfræðingurinn?

Bara slæmt skot

Slæmt skot ???
Hef nú bra einusinni klesst þannig að ég hafi verið í órétti... og það var ekki á 130kmh og blaðrandi í gemsann !
Heyrðu nú mig elsku karlinn minn. fékkst þú mikið högg á höfuðið í þínum árekstri. Afhverju ertu að bulla þetta, hef ég gert þér eitthvað. Það sem þú ert að segja er bara ekki rétt og ég skil ekki hvaða ástæðu þú hefur til að vera með þessi leiðindi.
.
Það sem gerðist var að sól var lágt á lofti og um það bil 100 metrum eftir að ég keyrði fram hjá skiltinu á Reykjanesvegi sem tekur hraðan upp í 90 km. hraða er merkilegt nokk hægt að taka beygju inn í Keflavík. Engar merkingar eru þarna um að þetta megi. Eins og kom fram áður var sólin hrikalega lágt á lofti, bifreið hafði snarstoppað til að taka þessa beygju á veginum fyrir framan mig (gulllitaður) og það var bara því miður ekki nokkur leið fyrir mig að sjá hann. Áreksturinn varð án þess að ég svo mikið sem snerti bremsuna. Ef að ég hefði verið á 130 km. hraða og blaðrandi í gsm síma, þá væruð þið sem gætuð lesið þetta allir alveg hrikalega skyggnir.
.
BMW-inn er til sölu í því ástandi sem hann er og öllum velkomið að skoða hann hvenær sem er.