bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

iPhone frá Apple
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19549
Page 1 of 7

Author:  ValliFudd [ Mon 15. Jan 2007 10:22 ]
Post subject:  iPhone frá Apple

Þessi sími býður nú upp á mun fleiri möguleika en ég hélt :D

http://www.youtube.com/watch?v=1xXNoB3t8vM&NR
:lol:

Author:  ValliFudd [ Mon 09. Jul 2007 17:19 ]
Post subject: 

Jæja, önnur diss-auglýsing.. :lol:

Image


EN... sögur sem ég er að heyra...
EKKERT sim kort.. þarf að forrita sérstaklega símanúmer í símann hjá einhverju vissu fyrirtæki og það virkar bara í því landi sem símanúmerið er frá því hann kann ekki á landakóða.. Getur ekki farið með íslenskt númer til dk.. Virkar ekki... :roll: Vona að þetta sé eitthvað bull..

Author:  bjahja [ Mon 09. Jul 2007 17:28 ]
Post subject: 

Það er sim kort í iPhone.
Og það sem er svo svalt við iPhone er stjórnkerfið og hvernig snertiskjárinn virkar

Author:  Gunni [ Mon 09. Jul 2007 17:34 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Það er sim kort í iPhone.
Og það sem er svo svalt við iPhone er stjórnkerfið og hvernig snertiskjárinn virkar


Mér fannst þetta geðveikt kúl fyrst, en núna er ég ekki svo viss.

Okei það er bara eitthvað x mikið minni sem þú velur í byrjun 2 eða 4 gb minnir mig,
en það er s.s. ekkert öðrvísi en í ipodunum.
En það er t.d. ekki hægt að fara til USA og kaupa þetta útaf því að þetta er
BARA fyrir AT&T kerfið og verður það alltaf. Mér var sagt að þetta verði
BARA fyrir vodafone á Íslandi og læst fyrir öðrum kerfum. Það þýðir að ég
fæ mér ekki iPhone.
Það er ekki hægt að nota þetta gps tæki sem leiðsögutæki, nema þú vitir
sjálfur nákvæmlega hvert þú ert að fara,, og þá er það frekar pointless!

Ég á s.s. eftir að skoða þetta tæki þegar það kemur, en ef þessar sögur eru
allar réttar þá langar mig ekki í þetta lengur :argh:

Author:  IceDev [ Mon 09. Jul 2007 17:56 ]
Post subject: 

Þetta er ósköp svipað og t.d Nintendo Wii markaðssetninguna

Ekkert frábær tækni en mjög imbaproof auk þess að vera með eitthvað fresh í notendaviðmóti

Annars segi ég nú bara "Meh" yfir iphone

Ég kýs yfirleitt fítusa fram yfir look

Author:  Aron Fridrik [ Mon 09. Jul 2007 22:42 ]
Post subject: 

WII > iPhone (miðað við það sem ég hef heyrt..)

Author:  Arnar [ Mon 09. Jul 2007 22:55 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
Jæja, önnur diss-auglýsing.. :lol:

Image


EN... sögur sem ég er að heyra...
EKKERT sim kort.. þarf að forrita sérstaklega símanúmer í símann hjá einhverju vissu fyrirtæki og það virkar bara í því landi sem símanúmerið er frá því hann kann ekki á landakóða.. Getur ekki farið með íslenskt númer til dk.. Virkar ekki... :roll: Vona að þetta sé eitthvað bull..


En hvað segja menn við þessum nokia n95 síma.. er þetta bara ekki málið ? :D

Author:  Alpina [ Mon 09. Jul 2007 23:38 ]
Post subject: 

Vvvááá,,
ég er bara RISAEÐLA..........

mundi .ALDREI. kunna á þetta

Author:  Stanky [ Mon 09. Jul 2007 23:48 ]
Post subject: 

Er ekki bara fínt að eiga síma sem maður getur hringt úr? Tekið einhverjar quick myndir af svona "Ohh shit" moments? Recordað einhvern fullan vin sinn eða eitthvað flipp?

Þarf þetta að vera í svona gríðarlegum gæðum?

Sé ekki þörfina á svona skítsæmilegri myndavél í síma, steríó græjum í síma, vidjó vél í síma........

mitt álit samt.

Author:  Hlynzi [ Mon 09. Jul 2007 23:56 ]
Post subject: 

Ég notast nú bara við SonyEricsson T68i, tri-band, virkar undir SMS, símtöl, remender og vekjaraklukku.

Myndavél væri í lagi, en ég nota ekki fleiri fídusa en þetta þegar ég pæli í því.

Author:  Steini B [ Tue 10. Jul 2007 04:07 ]
Post subject:  Re: iPhone frá Apple

ValliFudd wrote:
Þessi sími býður nú upp á mun fleiri möguleika en ég hélt :D

http://www.youtube.com/watch?v=1xXNoB3t8vM&NR
:lol:

Hahaha, ætli Addi sé með iPhone barta? :lol:

Author:  Gunni [ Tue 10. Jul 2007 06:14 ]
Post subject: 

Stanky wrote:
Er ekki bara fínt að eiga síma sem maður getur hringt úr? Tekið einhverjar quick myndir af svona "Ohh shit" moments? Recordað einhvern fullan vin sinn eða eitthvað flipp?

Þarf þetta að vera í svona gríðarlegum gæðum?

Sé ekki þörfina á svona skítsæmilegri myndavél í síma, steríó græjum í síma, vidjó vél í síma........

mitt álit samt.


Er ekki líka alveg nóg að eiga bara pentium1 233 mhz til að skoða netið
og svona. Skrifar kannski stundum eitthvað í word. :roll:

Til hvers að eiga bíl sem kemst hratt, þegar raunverulega þarftu
bara að komast í vinnuna og heim?

Það er hægt að heimfæra þessa heimspeki uppá allt.

Author:  hlynurst [ Tue 10. Jul 2007 09:25 ]
Post subject: 

Mér finnst nú samt stór kostur að geta skoðað E-mail í gegnum símann. Gæti ekki farið aftur í síma þar sem sá möguleiki er ekki til staðar. Annars myndi ég fá mér Nokia N95 frekar en iPhone ef ég væri að endurnýja í dag.

Author:  bjahja [ Tue 10. Jul 2007 10:47 ]
Post subject: 

Er N95 með wifi þannig að þú getur tengst netinu í gegnum þráðlausan router?

Author:  mattiorn [ Tue 10. Jul 2007 10:59 ]
Post subject: 

bjahja wrote:
Er N95 með wifi þannig að þú getur tengst netinu í gegnum þráðlausan router?


Quote:
Connectivity

Integrated wireless LAN (802.11 b/g) and UPnP (Universal Plug and Play)
Bluetooth wireless technology with A2DP stereo audio
USB 2.0 via Mini USB interface and mass storage class support to support drag and drop functionality
3.5 mm stereo headphone plug and TV out support (PAL/NTSC)
Nokia PC Suite connectivity with USB, Infrared and Bluetooth wireless technology
Local synchronization of contacts and calendar to a compatible PC using compatible connection
Remote over-the-air synchronization
Send and receive images, video clips, graphics, and business cards via Bluetooth wireless technolog

Page 1 of 7 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/