Ég var úti að viðra bíllinn ásamt því að taka nokkrar snjódrift æfingar í laugardalnum áðan og tók svo rúnt niðrí bæ og svo út sæbrautinni í átt að lyfju lágmúla sem var síðasti viðkomu staðurinn á leiðinni heim...
anyway þá er ég bara að krúsa á sæbrautinni á sirka 70-75 og tek eftir lögreglubíl sem er að stoppa á ljósum fyrir aftan annan bíl og autt á vinstri akrein þannig að ég bara krúsa yfir þegar það er kemur grænt ljós ....
svo á ljósunum hjá höfða er rautt ljós og ég hægi á mér til að ná grænu þar án þess að stoppa og ss tveir bílar stopp hægrameginn á þeim ljósum og lögreglubíllinn ennþá á hægri akrein ( ef þið skiljið hvað ég er að meina) og hægir á sér útaf stopp bílum ...
ég held áfram krúsinu á sæbraut og fer yfir á ljósinu á sirka 60 km hraða og heyri svo allt í einu *vrúúúúm-hondu V-tec hljóð- koma á fleygi ferð og beygir inná mína akrein og hægir á sér ... ég skipti yfir á hægri akreinina og gaurinn heldur að hann sé búinn að næla sér í eina góða spyrnu og gefur í uppá 100 sirka og ég tjilla bara rólegur á 70 og horfi á lögreglu þjóta á eftir honum ...
þeir beygðu svo hjá Esso og ég líka flissandi

og keyrði uppí lyfju
númerið hjá gæjanum var MX-*** minnir mig að hann hafi verið grænn
