bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Kveikt í flugeldum inni í bíl (á Akureyri í þetta skiptið)
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19411
Page 1 of 1

Author:  ValliFudd [ Mon 08. Jan 2007 11:22 ]
Post subject:  Kveikt í flugeldum inni í bíl (á Akureyri í þetta skiptið)

Það eru líka hálfvitar fyrir norðan :?

Quote:
Innlent | mbl.is | 8.1.2007 | 10:44
Kveikt í flugeldum inni í bíl

Lögreglan á Akureyri fékk í gærmorgun tilkynningu um skemmdarverk á bíl, sem hafði verið lagt í Frostagötu utan við Bílakúbb Akureyrar. Eigandi bílsins hafði skilið við hann fyrir utan húsið um kl. 4 aðfaranótt sunnudags. Hafði hann skilið flugeldatertur og nokkra flugelda eftir í aftursæti bifreiðarinnar en þegar eigandinn kom aftur að bílnum á tíunda tímanum um morguninn sá hann hvar búið var að brjóta rúðu í bifreiðinni og skjót upp tertunum og flugeldunum inni í bifreiðinni.

Lögreglan segir, að bíllinn sé mikið skemmdur að innan og mildi að ekki hafi kviknað í honum. Óskar lögreglan eftir því, að þeir sem geti gefið upplýsingar um mannaferðir og annað sem gæti hjálpað til við að upplýsa málið láti vita.

Author:  RagnarH [ Mon 08. Jan 2007 13:19 ]
Post subject: 

wasn't me :S

en veit einhver hvaða bíll þetta var ? :?

Author:  Bjarkih [ Mon 08. Jan 2007 18:59 ]
Post subject: 

Utanbæjarmenn... :wink:

Author:  Jón Ragnar [ Mon 08. Jan 2007 20:51 ]
Post subject: 

300c Hemi! :oops:

Author:  iar [ Mon 08. Jan 2007 21:10 ]
Post subject: 

RagnarH wrote:
wasn't me :S

en veit einhver hvaða bíll þetta var ? :?


Greinilega ekki BMW! :lol:

Author:  Einsii [ Mon 08. Jan 2007 22:05 ]
Post subject: 

Jón Ragnar wrote:
300c Hemi! :oops:

ertekki að djóka.. nýji bíllinn hanns Gísla.. Shit hvað fólk er hand ónýtt

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/