bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Isuzu Looser?
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19308
Page 1 of 1

Author:  Bjarkih [ Tue 02. Jan 2007 20:03 ]
Post subject:  Isuzu Looser?

http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1244784

Lögreglubíllinn hefur bilað í 58 skipti á tveimur árum

Á dögunum varð alvarleg bilun í lögreglubílnum í Búðardal og stendur hann því nú við bílaverkstæði þar til varahlutir berast. Er þetta í 58. skiptið á síðustu tveimur árum sem bíllinn bilar. Að jafnaði hefur því bíllinn verið á verkstæði tvisvar í mánuði. Viðgerðir hafa tekið mislangan tíma en ekki er óalgengt að þær hafi tekið tvær vikur.Þetta kemur fram á fréttavefnum Skessuhorni.

Bifreiðin, sem er af gerðinni Isuzu Trooper árgerð 2000, kom notuð til Búðardals fyrir nokkrum árum og að sögn Jóhannesar Björgvinssonar varðstjóra var þá rætt um að hún yrði þar til bráðabirgða. Henni hefur nú verið ekið ríflega 272 þúsund kílómetra. Jóhannes segir að bifreiðin hafi nánast frá upphafi verið gallagripur hinn mesti og nefnir sem dæmi að 33 skipti á undanförnum tveimur árum hafi hún verið á verkstæði vegna alvarlegra bilana. Ekki hefur Jóhannes undir höndum tölur yfir viðgerðarkostnað en telur augljóst að hann sé gríðarlegur.

Jóhannes segist afar þreyttur á þessu ástandi því umdæmið sé stórt og því sé mjög mikilvægt að hægt sé að treysta einu lögreglubifreið embættisins. Hann segir mjög erfitt og hættulegt að að fara í forgangsakstur um slæma vegi á bifreið sem ekki sé hægt að treysta fullkomlega. Slíkt sé ekki ásættanlegt. Þegar lögreglubifreiðin hefur verið til viðgerðar hefur Jóhannes oft lagt embættinu til sinn eigin fjölskyldubíl. Hann segir það mikið neyðarbrauð sérstaklega vegna þess að slíkir bílar séu ekki tryggðir til forgangsaksturs.

Þessa dagana ekur Jóhannes á gamalli lögreglubifreið úr Borgarnesi en lögregluumdæmið í Búðardal var um áramótin fært undir lögreglustjórann í Borgarnesi. Jóhannes segist vonast til þess að ferli áðurnefndrar Isuzu Trooper bifreiðar sem lögreglubifreiðar ljúki sem allra fyrst og umdæminu verði sinnt með búnaði sem hæfi aðstæðum.

Author:  Frikki [ Tue 02. Jan 2007 21:03 ]
Post subject: 

Vó sami textinn kom nokkrum sinnum hjá þér :roll:

En þetta er svakalegt, þeir eiga bara að vera á X5 :P

Author:  bragi1 [ Tue 02. Jan 2007 22:04 ]
Post subject: 

Hef einmitt setið í þessum bíl. Vægast sagt drusla. Enda hefur maður heyrt að Izuzu Trooper segi bara stopp í 200k.

Author:  JonHrafn [ Tue 02. Jan 2007 22:32 ]
Post subject: 

bragi1 wrote:
Hef einmitt setið í þessum bíl. Vægast sagt drusla. Enda hefur maður heyrt að Izuzu Trooper segi bara stopp í 200k.


Get alveg staðfest þetta.

Get einnig vottað að izuzu trooper eru gallagripir, gamli hans pabba er keyrður 220 þús og það er búið að skipta um 90% af því sem er undir vélarhlífinni. Það hefur alltaf verið hugsað vel um þetta tæki og sem dæmi um það er ennþá orginal kúpling í honum.

Author:  ValliFudd [ Tue 02. Jan 2007 22:53 ]
Post subject: 

bara einu sinni setið í honum :) ekki að ég hafi keyrt varlega þarna í kring, hann var bara alltaf bilaður :lol:

Í eitt skiptið sem ég ók um dalina var ég á heldur miklum hraða, negldi niður þegar ég sá helvítis trúperinn... en neibb.. hann var svona 5 metra fyrir utan veginn og löggan var að taka myndir af honum :lol: (væntanlega að bíða eftir fari heim sýnist mér á þessarri frétt)

Author:  Angelic0- [ Wed 03. Jan 2007 09:13 ]
Post subject: 

JonHrafn wrote:
bragi1 wrote:
Hef einmitt setið í þessum bíl. Vægast sagt drusla. Enda hefur maður heyrt að Izuzu Trooper segi bara stopp í 200k.


Get alveg staðfest þetta.

Get einnig vottað að izuzu trooper eru gallagripir, gamli hans pabba er keyrður 220 þús og það er búið að skipta um 90% af því sem er undir vélarhlífinni. Það hefur alltaf verið hugsað vel um þetta tæki og sem dæmi um það er ennþá orginal kúpling í honum.


Ég er líka ennþá að hneykslast á honum bróður þínum að svíkja svona svakalega lit !

Author:  IvanAnders [ Wed 03. Jan 2007 20:06 ]
Post subject: 

úff... koma nokkrir sjúsjú-arar reglulega niðrí vinnu til mín, alveg hreint ótrúlegt hvað þetta hangir ekki í lagi!!! Er virkilega farið að gruna að þeir séu franskir!

Og til að bæta gráu ofan á svart, að þá er IH umboðsaðili, og það kemur ekki fyrir að þeir eigi til varahluti í þetta!!!

Heppinn að fá klossa í þetta án þess að sérpanta og bíða í 3 vikur

Author:  gunnar [ Wed 03. Jan 2007 21:15 ]
Post subject: 

IvanAnders wrote:
úff... koma nokkrir sjúsjú-arar reglulega niðrí vinnu til mín, alveg hreint ótrúlegt hvað þetta hangir ekki í lagi!!! Er virkilega farið að gruna að þeir séu franskir!

Og til að bæta gráu ofan á svart, að þá er IH umboðsaðili, og það kemur ekki fyrir að þeir eigi til varahluti í þetta!!!

Heppinn að fá klossa í þetta án þess að sérpanta og bíða í 3 vikur


Gleymir því líka að þó þeir eigi hlutinn. þá ríða þér þeir svo fast í rassgatið að þú ferð beinustu leið með bílinn á sölu eftir viðgerðina :lol:

Author:  HPH [ Wed 03. Jan 2007 21:24 ]
Post subject: 

þetta kallar maður að kasta krónuni fyrir aurinn. :idea:

Author:  Bjarkih [ Wed 03. Jan 2007 21:33 ]
Post subject: 

HPH wrote:
þetta kallar maður að kasta krónuni fyrir aurinn. :idea:


Er það ekki týpískt hjá ríkisvaldinu? :wink:

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/