bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

YT-605 eða YT-506
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19263
Page 1 of 2

Author:  fart [ Fri 29. Dec 2006 21:35 ]
Post subject:  YT-605 eða YT-506

Allavega.. Græn Toyota Carina 1993. Getur einhver tékkað á því hvort að ég er enn skráður fyrir þessum góða bíl.

Þannig er mál með vexti að hann var seldur í Júní af einhverri skúnka bílasölu í Keflavík. Ég fékk bílinn greiddan (150.000) og allt í góðu með það.. nema í ágúst fæ ég meldingu í heimabankann um að ég skuldi einhverja rúnta í gegnum Hvalfjarðargöng á bílnum góða. Það skemmtilega var að ég hafði aldrei ekið bílnum né var ég á landinu á umræddum tíma.

Eftir nánari athugun kom í ljós að þessir skúnkar höfðu selt bílinn ólögráða unglingi og þess vegna höfðu eigendaskiptin ekki farið í gegn. Eftir nokkur vel valin orð í síma var mér lofað að þessu yrði kippt í liðinn hið snarasta.

Horfið er nú sumarið og sólin... eins og skáldið orti og hvað haldið þið. Komið hótunarbréf frá einhverri lögfræðistofu í nafni Spalar upp á hina feiknalegu upphæð tíuþúsund og eitthvað. Svo virðist sem þessir "fagmenn" af suðurnesjunum hafi ekki haft sig í að klára málið. Auk þess er ég ekki frá því að bifreiðagjöldin fyrir seinni hluta ársins séu enn í skuld og því er væntanlega framundan lögtak í bílnum....

ANYWAY, ef ég á hann ekki ennþá þá þarf ég ekki að hafa áhyggjur af neinu nema þessu hótunarbréfi. Ef ég á hann enn þá ætla ég að auglýsa gripinn stolinn frá og með þriðjudeginum, þrátt fyrir að ég hafi fengið bílinn greiddan. Peninginn fékk ég nefnilega ekki beint frá eigandanum heldur bílasalanum, og þess vegna verður gaman að sjá hvað gerist.

Author:  ValliFudd [ Fri 29. Dec 2006 21:42 ]
Post subject: 

Quote:
Skráningarnúmer: YT605
Fastanúmer: YT605
Tegund: TOYOTA
Undirtegund: CARINA E
Litur: Blágrænn


:wink:

Author:  Aron Fridrik [ Fri 29. Dec 2006 21:45 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
Quote:
Skráningarnúmer: YT605
Fastanúmer: YT605
Tegund: TOYOTA
Undirtegund: CARINA E
Litur: Blágrænn


:wink:


honum vantar að vita hvort hann sé enn skráður fyrir honum :wink:

Author:  ValliFudd [ Fri 29. Dec 2006 21:55 ]
Post subject: 

Jrourke wrote:
ValliFudd wrote:
Quote:
Skráningarnúmer: YT605
Fastanúmer: YT605
Tegund: TOYOTA
Undirtegund: CARINA E
Litur: Blágrænn


:wink:


honum vantar að vita hvort hann sé enn skráður fyrir honum :wink:

hehe, veit, var bara að segja hvort númerið er rétta númerið þar sem hann taldi upp tvö og sagði það vera annað hvort þeirra :wink:

I'm really not as dumb as i look.. honestly.. :lol:

Author:  arnibjorn [ Fri 29. Dec 2006 21:57 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:
Jrourke wrote:
ValliFudd wrote:
Quote:
Skráningarnúmer: YT605
Fastanúmer: YT605
Tegund: TOYOTA
Undirtegund: CARINA E
Litur: Blágrænn


:wink:


honum vantar að vita hvort hann sé enn skráður fyrir honum :wink:

hehe, veit, var bara að segja hvort númerið er rétta númerið þar sem hann taldi upp tvö og sagði það vera annað hvort þeirra :wink:

I'm really not as dumb as i look.. honestly.. :lol:


KJAFTÆÐI! :lol:

Author:  fart [ Fri 29. Dec 2006 21:58 ]
Post subject: 

og á ég hann?

Author:  ValliFudd [ Fri 29. Dec 2006 22:03 ]
Post subject: 

fart wrote:
og á ég hann?

þetta er bara úr skránni sem allir komast inn á.. þar eru engin nöfn.. ég var bara að benda á hvort númerið væri rétt númer. Ekki með aðgang að betri skrá.. sorry :?

Þessi opna skrá er hér:

http://www.us.is/id/3489

Author:  Sezar [ Fri 29. Dec 2006 22:19 ]
Post subject: 

Ohh!! Þetta er svo pirrandi að lenda í svona rugli....og borga sölulaun fyrir það :evil:
Ég eignaðist sleða í skiptum í vetur, stóð bara inní sal þar til hann seldist aftur gegn yfirtöku láni + peningar. Ég tók tilboðinu og þeir gengu frá þessu, kaupandi staðgreiddi sleðann+borgaði lánið upp(lagði summuna inná heftið hjá sölunni) en TREYSTI sölunni til að klára dæmið :?
Svo líða 2 vikur og aldrei fæ ég peninginn minn.Afsakanir fæ ég er ég hringi í þá...reddum þessu blabla. Tók mig mánuð að fá peninginn minn :shock:
Og svo kemst ég að því, þeir hafa ekki ENNÞÁ greitt upp lánið þannig að ég er með 3 gjalddaga í vanskilum. Búinn að tala við þá um hver mánaðarmót brjálaður, og alltaf "Bókaranum að kenna..bleble"
Svo missti ég mig áðan er ég fékk lögfræðiviðvörun, fór uppá sölu tók flipp.
Vona að þetta sé búið núna...,hef ekki skap í svona rugl :evil: :evil:

Author:  Alpina [ Fri 29. Dec 2006 22:36 ]
Post subject: 

Sezar upp á sölu nú
segir þá og hótar
borga skaltu bara þú
bölvar ragnar blótar

:lol: :lol: :o :o :o :o

Author:  Sezar [ Fri 29. Dec 2006 22:41 ]
Post subject: 

Alpina wrote:
Sezar upp á sölu nú
segir þá og hótar
borga skaltu bara þú
bölvar ragnar blótar

:lol: :lol: :o :o :o :o

:clap:

Author:  ///MR HUNG [ Fri 29. Dec 2006 22:53 ]
Post subject: 

Er ekki bara að láta klippa af honum því þá verða þeir að drullast til að vinna sína vinnu.

Author:  Leikmaður [ Sat 30. Dec 2006 00:08 ]
Post subject: 

Ef þú ert Sveinn Garðar Helgason (Lúxemborg) ;) og keyptir bílinn 4. mars - þá ert þú ennþá skráður eigandi skv. ekju rétt í þessu!

Author:  Svessi [ Sat 30. Dec 2006 00:49 ]
Post subject: 

Ef ég væri þú þá myndi ég reyna vinna í þessu eins fljótt og ég gæti því reglur segja að á meðan þú ert skráður eigandi á ökutæki þá berðu ábyrgð á því líka, alveg sama í hvaða ástandi það er.

Og ef ekkert gengur að fá lausn í þetta mál þá myndi ég hafa samband við umferðastofu og láta skrá bílinn stolinn og einnig láta skrá ökutækið afskráð-týnt því ég þekki til of mörg dæmi þess að lögreglan hafi klikkað á þessari stolið skráningu en ef bílinn finnst einhverja hluta vegna og er á númerum og er skráður afskráð-týnt þá tekur lögreglan að minnstakosti númerin af bílnum og á endanum endar hann í vöku ef hann er á höfuðborgarsvæðinu og þú fengir bréf um að hann væri komin þangað.
Og þá gætir þú t.d. gengið frá bílnum í förgun.

Því eins og ég var búinn að segja á meðan þú ert skráður eigandi þá berð þú ábyrgðina og ræður hvað þú gerir við bílinn.

Gangi þér annars vel.

Author:  ValliFudd [ Sat 30. Dec 2006 00:53 ]
Post subject: 

ef hann er ótryggður t.d. þá þarft þú væntanlega að borga ef einhver klessir hann... og hinn bílinn sem hann klessir á ef hann er í órétti :? Ekki gott..

er þetta ekki örugglega rétt hjá mér?

Author:  JonHrafn [ Sat 30. Dec 2006 01:51 ]
Post subject: 

þetta er dörtí

Page 1 of 2 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/