bmwkraftur.is

BMWKraftur spjallborð
It is currently Sun 22. Jun 2025 22:40

All times are UTC




Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 
Author Message
PostPosted: Tue 26. Dec 2006 22:33 
Offline
Búðarkerrubílstjóri

Joined: Wed 01. Mar 2006 23:30
Posts: 31
Árekstur varð á gatnamótunum Vífilstaðarvegar og Hafnarfjarðarvegar (þar sem Olís er) núna í kvöld þann 26. desember. Þetta gerðist milli 20:00-20:30. Bílarnir sem lentu í árekstrinum voru vínrauð Bug Eye venjuleg Impreza og Daewoo Lanos rauðbleikur eða bleikur.

Tildrög eru þau að Imprezan er á gatnamótunum á grænu ljósi, að fara að taka beygjuna þarna til vinstri í áttina að Hafnarfirði og Daewoo inn kemur þarna að á einhverjum hraða, yfir á rauðu ljósi og inn í hliðiná á Imprezunni. Daewoo bifreiðin er að koma frá Hafnarfirði og er að fara til Reykjavíkur. Höggið var þokkalega mikið þar sem fólkið er nú upp á slysó að láta athuga sig og m.a. með eins og hálfs árs dóttur sína með sér í bílnum. Vonandi verður í lagi með alla, engin slasaður en allir frekar aumir og í sjokki.

Ökumaður Daewoo bifreiðarinnar var hálf sjokkeraður og ekki alveg viss hvað gerðist fyrst en segir svo seinna að hann hafi verið að fara yfir á grænu ljósi (hugsanlega gulu) sem stemmir engan vegin því fólkið á Imprezunni var þarna á grænu. Fólkið á Imprezunni hringir auðvitað strax í lögregluna sem mætti á staðinn.

Að sjálfsögðu er þetta nú orðið orð á móti orði þar sem ökumaður Daewoo bifreiðarinn segist hafa farið yfir á grænu sem fólki á Imprezunni segir auðvitað að standist ekki þar sem gaurinn á Daewo-inum kemur þarna á vinstri akrein og fer yfir ljósin á meðan fólkið á hægri akrein var kyrrstætt þar sem ljósið var rautt.

Fólkið á Imprezunni óskar því eftir vitnum þar sem gatnamótin voru FULL af bílum og það hlýtur einhver að hafa séð þetta og orðið vitni að þessu.

Vinsamlegast hafði samband við Lögregluna ef þið eruð vitni eða vitið um einhvern sem gæti hafa orðið vitni að þessum atburði.


Top
 Profile  
Reply with quote  
Display posts from previous:  Sort by  
Post new topic Reply to topic  [ 1 post ] 

All times are UTC


Who is online

Users browsing this forum: No registered users and 28 guests


You cannot post new topics in this forum
You cannot reply to topics in this forum
You cannot edit your posts in this forum
You cannot delete your posts in this forum

Search for:
Jump to:  
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group