bmwkraftur.is
https://bmwkraftur.is/spjall/

Fyrsta opinbera viðtalið við Richard Hammond í kvöld á BBC 1
https://bmwkraftur.is/spjall/viewtopic.php?f=16&t=19161
Page 1 of 1

Author:  Svessi [ Fri 22. Dec 2006 19:51 ]
Post subject:  Fyrsta opinbera viðtalið við Richard Hammond í kvöld á BBC 1

Fyrir áhugasama:

Fyrsta opinbera viðtalið við Richard Hammond "The Hamster" eftir bílslysið sem varð fyrir um þremur mánuðum eða í september á þessu ári.
Viðtalið verður í kvöld í þættinum Friday Night with Jonathan Ross á bresku sjónvarpstöðinni BBC one og byrjar þátturinn klukkan 10:35 að íslensku og breskum tíma.

Fyrir þá sem ekki vita sem ég tel ekki marga hérna þá er Hammond (36 ára og á tvö börn) einn af þremur þáttastjórendum bílaþáttanna vinsælu TopGear á BBC two. Hann er einnig þáttastjórandi vinsælu tilraunaþáttanna Brainiac.

Í lok september voru þeir að taka upp atriði fyrir TopGear þar sem Hammond var að aka einum hraðskreiðasta spyrnubíl bretlands kallaður Vampire á flugbraut. Talið er að þeir hafi ætlað að reyna slá hraðamet til að geta sagt að einn af þeirra þáttastjórnendum væri hraðskreiðasti ökumaður bretlands. Í fyrstu átti James May að keyra en einhverja hluta vegna skiptu þeir.

Talið er að Hammond hafi verið á um 280-300 mílna hraða eða um 450-480 km hraða á klukkustund þegar bílinn lyftist upp og valt margar veltur.
Hingað til hefur ekkert almennilega komið framm hvað fór úrskeiðis en helsta ástæðan sem talað hefur verið um er að dekk hafi spurngið.

Image

Author:  Bjarkih [ Fri 22. Dec 2006 20:22 ]
Post subject: 

Geturu verið svo góður að setja inn link þannig að maður getir horft á þetta á morgunn. Þetta er of seint fyrir mig, Svíþjóð er klukkutíma á undan. Það væri gaman að sjá þetta.

Author:  Svessi [ Fri 22. Dec 2006 23:51 ]
Post subject: 

Jæja, þátturinn er búinn og Richard leit bara ansi vel út.
Hann eiginlega bara grínaðist með þetta að mestu leiti.
Án þess að það sæjist vel þá fannst mér hann haltra aðeins.

En miðað við það að hafa velt bíl á yfir 450 km hraða þá er hann alveg hrikalega heppinn að sleppa svona vel.

Allavega kom framm að nýja TopGear serían verður sýnd fljótlega á næsta ári, hvenær nákvæmlega kom ekki framm.

Bjarkih, veit ekki alveg hvað þú átt við með því að biðja mig um að setja link inn á þetta. Allavega er ég nokkuð viss um að þetta verður komið inn á youtube.com eftir ekkert svo langann tíma, bara fylgjast með því þar, allavega um leið og ég sé það þar, þá skal ég linka á það hérna.

Annars fyrir þá sem misstu af þættinum í kvöld og langar að sjá þetta þá er þetta endursýnt seint annað kvöld, eða klukkan 1:25 eftir miðnætti.

Author:  snorri320 [ Sat 23. Dec 2006 00:04 ]
Post subject: 

næsta topgear byrjar 28 eða 29 janúar skv. finalgear.com

Author:  fart [ Sat 23. Dec 2006 06:15 ]
Post subject: 

Ég horfði á þetta í gær. Gaurinn virðist bara vera 100% heill heilsu. Maður veit náttúrulega ekkert um nákvæma líkamlega heilsu, en andlega virtist hann vera fínn.

Gerði nett grín af þessu og sjálfum sér.

Author:  ValliFudd [ Sat 23. Dec 2006 15:57 ]
Post subject: 

http://video.google.com/videoplay?docid=-1968768107211555089&q=richard+hammond

EDIT: Þetta er semsagt viðtalið :D

Author:  Bjarkih [ Sat 23. Dec 2006 20:06 ]
Post subject: 

Gott viðtal. Hress og kátur bara :D

Author:  Svessi [ Sun 24. Dec 2006 00:52 ]
Post subject: 

ValliFudd wrote:


Yes, flott þetta, og bara enn og aftur alveg ótrúlegt hvað hann hefur verið heppinn að sleppa svona vel útúr þessu.

Page 1 of 1 All times are UTC
Powered by phpBB® Forum Software © phpBB Group
https://www.phpbb.com/